Forseti ASÍ segir skynsamlegt að leggja útsvar á fjármagnstekjur

Borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins vill að útsvar verði lagt á fjár­magnstekjur svo að auð­ugt fólk greiði eitt­hvað til sveit­ar­fé­lag­anna sem það býr í. Forseti ASÍ telur til­lög­una skyn­sam­lega.

Drífa Snædal, for­seti Alþýðu­sam­bands Íslands, segir það skyn­sam­legt að leggja útsvar á fjár­magnstekjur. Það sé „óþol­andi að sumir séu í aðstöðu til að bein­línis velja að greiða ekki skatta til sveit­ar­fé­laga. Við hin borgum þá í stað­inn leik­skóla, grunn­skóla, götu­lýs­ingu, gisti­skýli, menn­ing­ar­stofn­anir, umönnun aldr­aðra og veikra og allt annað sem útsvarið okkar fer í.“

[links]Þetta segir Drífa í stöðu­upp­færslu á Facebook þar sem hún tengir við frétt Stund­ar­innar um að Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir, borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins, muni leggja fram til­lögu í borg­ar­stjórn á morgun þess efnis að útsvar verði lagt á fjár­magnstekjur.

Stað­greiðsla skatta af launa­tekjum er á bil­inu 36,94 til 46,24 pró­sent að útsvari með­töldu en fjár­magnstekju­skattur er 22 pró­sent. Þeir sem hafa tekjur sínar af fjár­magni þurfa ekki að greiða útsvar af þeim tekjum. 

[adspot]Tillaga Sönnu snýst um að fela þeim borg­ar­full­trúum sem sitja fyrir hönd Reykja­vík­ur­borgar í stjórn Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga að leggja fyrir stjórn þess, til­lögu um álagn­ingu útsvars á fjár­magnstekjur. Ástæða þess að hún vill taka til­lög­una fyrir á vett­vangi Sam­bands­ins er sú að sveit­ar­fé­lög geta ekki lagt á umrædda skatta án laga frá Alþingi.

Í grein­ar­gerð með til­lögu Sönnu segir að útsvarið sé veiga­mesti tekju­stofn sveit­ar­fé­lag­anna og sé dregið af launum launa­fólks. Fjár­magnstekjur beri hins­vegar ekk­ert útsvar ólíkt launa­tekjum. „Tekjur hinna allra auð­ug­ustu eru að miklu leyti fjár­magnstekjur og greiða þeir aðilar því ekki sama hlut­fall af tekjum sínum til sveit­ar­fé­lag­anna sem þeir búa í, líkt og launa­fólkið. Hafi ein­stak­lingur ein­ungis fjár­magnstekjur en engar launa­tekjur greiðir við­kom­andi ekk­ert útsvar til við­kom­andi sveit­ar­fé­lags sem hann býr í. Þ.e.a.s. við­kom­andi greiðir því ekki í sam­eig­in­legan sjóð borgar eða bæjar líkt og launa­fólk við­kom­andi sveit­ar­fé­lags. Til að vinna gegn þessu ósam­ræmi í skatt­lagn­ingu og til að efla tekju­stofna sveit­ar­fé­lag­anna er mik­il­vægt að leggja útsvar á fjár­magnstekjur.“

Sanna telur að með þessu megi styrkja borg­ar­sjóð og þar með borg­ina svo að hún hafi burði til að sinna öllum þeim verk­efnum er koma inn á hennar borð og þannig geti hún veitt sem bestu þjón­ust­una. „Markmið þess­arar til­lögu snýr að því að efla tekju­stofna sveit­ar­fé­lag­anna og koma á rétt­lát­ara skatt­kerfi í gegnum álagn­ingu útsvars á fjár­magnstekjur. Hlutverk Sam­bands­ins er að vinna að efl­ingu íslenskra sveit­ar­fé­laga og að hvers konar hags­muna­málum þeirra. Þá snýr til­gangur Sam­bands­ins m.a. að því að vera sam­eig­in­legur málsvari sveit­ar­fé­lag­anna í land­inu og að vinna að sam­eig­in­legum hags­munum þeirra og sam­starfi. Því er lagt til að unnið verið að fram­kvæmd til­lög­unnar á borði Sam­bands­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár