Ekki að leggja til 30 kílómetra hraða alls staðar

Andrés Ingi Jónsson þing­maður utan flokka leggur til að hámarks­hraði í þétt­býli verði alla jafna 30 kíló­metrar á klukku­stund, nema gild rök séu fyrir hærri hraða. Með frum­varpi um þetta vill þing­mað­ur­inn fara að for­dæmi Hol­lend­inga og Spán­verja.

Andrés Ingi Jónsson, þingmaður utan flokka, er fyrsti flutningsmaður frumvarpsins.
Andrés Ingi Jónsson, þing­maður utan flokka, er fyrsti flutn­ings­maður frum­varps­ins. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Frumvarp Andrésar Inga Jóns­sonar, um að hámarks­hraði bíla­um­ferðar í þétt­býli verði að jafn­aði 30 kíló­metrar á klukku­stund nema gild rök séu færð fyrir því að hrað­inn þurfi að vera hærri, hefur vakið athygli og var til tölu­verðrar umræðu í lið­inni viku, eins og mál tengd bílum verða oft í íslensku sam­fé­lagi.

Ef frum­varpið yrði að lögum myndi Ísland feta í fót­spor bæði Hollands og Spánar, sem nýlega hafa boðað aðgerðir í þá átt að lækka hámarks­hraða í þétt­býli á lands­vísu, í anda stefnu sem mörkuð í svo­kall­aðri Stokk­hólms­yf­ir­lýs­ingu um umferð­ar­ör­yggi. Hún var und­ir­rituð í febr­úar og varð svo hluti af ályktun sem sam­þykkt var á alls­herj­ar­þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna í ágúst.

Aðild­ar­ríki álykt­un­ar­innar, Ísland þar á meðal, ein­setja sér að ná stjórn á hraðakstri með því meðal ann­ars að hafa leyfðan hámarks­hraða 30 kíló­metra á klukku­stund á svæðum þar sem við­kvæmir veg­far­endur eru innan um bif­reiðar. Þetta á þó ekki við þar sem gild rök eru fyrir því að leyfa meiri hraða.

„Sú við­leitni að draga almennt úr hraðakstri mun hafa jákvæð áhrif á loft­gæði og lofts­lags­breyt­ingar auk þess sem hún er nauð­syn­leg til að fækka dauðs­föllum og slysum í umferð­inni,“ segir um þetta atriði í Stokk­hólms­yf­ir­lýs­ing­unni, sem Andrés Ingi vitnar til í grein­ar­gerð með frum­varp­inu.

Með frum­varp­inu er verið að færa til núll­punkt­inn varð­andi umferð­ar­hraða í þétt­býli, sem er í dag 50 km/klst., þannig að ekki þurfi að færa rök fyrir því að hafa hámarks­hrað­ann lægri, eins og þarf að gera í dag. 30 kíló­metrar á klukku­stund verði ein­fald­ega nýja normið og færa þurfi gild rök fyrir því að leyfður hraði á götum í þétt­býli eigi að vera meiri.

„Ólafur hefur greinilega bara ekki lesið málið“

Þing­mað­ur­inn segir í sam­tali við Kjarnann að með frum­varp­inu sé hann ekki að leggja til að hámarks­hraði í þétt­býli verði alls staðar 30 kíló­metrar á klukku­stund og hvergi verði heim­ilt að keyra hraðar, eins og ef til vill mátti ráða af umfjöllun og umræðu um frum­varpið í lið­inni viku, meðal ann­ars útvarps­við­tali við Ólaf Guð­munds­son vara­borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins í þætt­inum Reykja­vík síð­degis á Bylgj­unni á fimmtu­dag.

„Ólafur hefur greini­lega bara ekki lesið málið. Flest sem hann sagði í þessu við­tali er bara ekk­ert í þessu frum­varpi. Hann sagði til dæmis að við yrðum hérna öll keyr­andi um á 30, en það er bara alls ekki málið, ekki frekar en að við séum að keyra öll á 50 í dag, þó að það sé hámarks­hrað­inn í þétt­býli,“ segir Andrés Ingi, sem bætir við að það sé „pínu vand­ræða­legt“ að þessar rang­færslur Ólafs hafi komið fram í þætti á sömu útvarps­stöð og hann sjálfur ræddi þing­málið í vik­unni.

„Ég mætti í Bítið á þriðju­dag­inn og fór vel yfir þetta og ef þátta­stjórn­endur hefðu hlustað á Bítið hefðu þeir getað stoppað Ólaf í þess­ari dellu,“ segir Andrés Ingi.

Bent er á það í grein­ar­gerð með frum­varp­inu að hraði bíla­um­ferðar í þétt­býli hafi veru­leg áhrif á mótun byggðar, sem um leið hafi áhrif á hegðun mann­fólks­ins.

„Eftir því sem hönnun umferð­ar­mann­virkja miðar við hærri hraða, því meira rými þarf að taka undir þau og því tor­veld­ara verður fyrir gang­andi veg­far­endur að kom­ast leiðar sinnar. Með þeirri breyt­ingu sem lögð er til í frum­varpi þessu er ákvörðun um hámarks­hraða færð í hendur skipu­lags­yf­ir­valda á hverjum stað. Sveit­ar­fé­lagið hefur hags­muni af því að skipu­leggja umferð á hverju svæði þannig að auk þess að tryggðar séu greiðar sam­göngur sé sköpuð aukin örygg­is­til­finn­ing sem aftur eykur líkur á að fleiri fari ferða sinna gang­andi og hjólandi,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Einnig segir að lægri hámarks­hraði í þétt­býli sé einn helsti áhrifa­þátt­ur­inn í auknu umferð­ar­ör­yggi, ekki síst þegar komi að árekstrum á milli öku­tækja og óvar­inna veg­far­enda og bent er á að líkur á alvar­legum meiðslum eða dauð­föllum þess sem er svo óhepp­inn að verða fyrir bíl stór­aukast þegar árekstr­ar­hraði hækkar úr 30 í 50 kíló­metra á klukku­stund.

„Á meðan það er erfitt að fyr­ir­byggja öll slys er mik­il­vægt að stýra hraða þannig að sem flestir sem lenda í slysum eigi mögu­leika á að ganga heilir frá þeim,“ segir í grein­ar­gerð­inni. Þar segir einnig að þær breyt­ingar sem lagðar eru til séu í fullu sam­ræmi við mark­mið umferð­ar­laga um að vernda líf og heilsu veg­far­enda, gæta jafn­ræðis á milli sam­göngu­máta og taka til­lit til umhverf­is­sjón­ar­miða, auk þess að vera í sam­ræmi við yfir­lýs­ingar sem íslensk stjórn­völd hafi staðið að á alþjóða­vísu.

Rennur blint í sjóinn varðandi stuðning þingheims

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, sem eins og Andrés Ingi er fyrr­ver­andi þing­maður Vinstri grænna en stendur núna utan flokka, er eini með­flutn­ings­maður frum­varps­ins.

Andrés seg­ist hafa sent tölvu­póst á alla þing­flokka til þess að kynna frum­varpið og bjóða öðrum að setja nafn sitt við það, eins og þing­menn og þing­flokkar gera jafnan þegar frum­vörp eru á leið inn í þingið, en Rósa Björk var sú eina sem svar­aði kall­inu.

Andrés Ingi seg­ist ekki vita hvað hann eigi að lesa í þau við­brögð, varð­andi væntan póli­tískan stuðn­ing við frum­varpið á þingi. „Þetta voru heimt­urnar. Ég var ekk­ert að ganga harðar á eftir þeim, þetta er það sem við gerum venju­lega, að henda út neti og gá hvað kemur inn,“ segir Andrés Ingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

umferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár