Ríkar heimildir til takmarkana á umferð vegna loftgæða í nýjum reglugerðardrögum

Sam­göngu­ráðu­neytið er búið að skil­greina í reglu­gerð­ar­drögum hvaða aðgerðum sveit­ar­fé­lögum eða Vega­gerð­inni verður heim­ilt að grípa til í því skyni að tak­marka bíla­um­ferð og tryggja loft­gæði, á svoköll­uðum gráum dögum.

Bílar bruna um Borgartún. Ef til vill, einn daginn, einungis þeir sem hafa bílnúmer sem enda á oddatölu?
Bílar bruna um Borg­ar­tún. Ef til vill, einn dag­inn, ein­ungis þeir sem hafa bíl­númer sem enda á odda­tölu? Mynd: Bára Huld Beck

Nagla­dekkja­bann. Bann við akstri þungra öku­tækja. Bann við umferð öku­tækja með til­teknum enda­tölum eða enda­bók­stöfum í skrán­ing­ar­merki. Breyting á hámarks­hraða. Tak­mörkun á umferð öku­tækja sem knúin eru til­teknum meng­andi orku­gjöfum.

Þetta eru þau tíma­bundnu úrræði sem sveit­ar­fé­lögum eða Vega­gerð­inni verður heim­ilt að beita á ákveðnum svæðum ef útlit er fyrir að loft­mengun vegna bíla­um­ferðar nái í heilsu­spill­andi hæðum og væg­ari úrræði eins og gatna­hreinsun eða ryk­bind­ing dugi ekki, ef drög að reglu­gerð frá sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­inu sem nú er að finna í sam­ráðs­gátt stjórn­valda verða að veru­leika.

Lengi hefur verið von á þess­ari reglu­gerð, en með nýju umferð­ar­lög­unum sem tóku gildi í árs­byrjun 2020 er kveðið á um heim­ild til íþyngj­andi aðgerða til þess að mæta mik­illi loft­mengun.

Fram kemur í reglu­gerð­ar­drög­unum að til grund­vallar banni eða tak­mörk­unum skuli liggja fyrir mat við­kom­andi heil­brigð­is­nefndar og rök­stuðn­ingur fyrir tak­mörkun umferðar vegna meng­unar, sem á að vera studdur mæli­nið­ur­stöðum eða meng­un­ar­spám Umhverf­is­stofn­unar eða heil­brigð­is­eft­ir­lits við­kom­andi sveit­ar­fé­lags.

Mengun yfir skilgreindum mörkum þónokkra daga á ári

Loft­mengun frá bíla­um­ferð er sú mengun á Íslandi sem helst hefur áhrif á heilsu fólks, þrátt fyrir að dregið hafi úr henni und­an­farna ára­tugi með breyttri sam­setn­ingu bíla­flot­ans og auk­inni úrkomu, sam­kvæmt yfir­lits­grein um loft­mengun á Íslandi sem birt­ist í Lækna­blað­inu árið 2019. Helstu meng­un­ar­efni frá umferð eru svifryk og nit­uroxíð. Stór hluti svifryks kemur frá veg­yf­ir­borð­inu og þar eru nagla­dekkin stór áhrifa­þáttur.

[adspot]

Nið­ur­stöður nýlegrar rann­sóknar sem fram­kvæmd var hér á landi benda til þess að draga þurfi veru­lega úr notkun nagla­dekkja, ætli stjórn­völd sér að ná því mark­miði að árið 2029 verði eng­inn dagur þar sem svifryk af völdum bíla­um­ferðar fari yfir skil­greind heilsu­vernd­ar­mörk á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.[links]

Einnig væri hægt, sam­kvæmt nið­ur­stöðum rann­sókn­ar­innar, sem Kjarninn fjall­aði um í lok nóv­em­ber, að beita rót­tækum skamm­tíma­að­gerðum eins og að banna notkun um það helm­ings bíla­flot­ans (t.d. þeirra sem eru með númer sem endar á odda­tölu) á þeim dögum þar sem loft­gæði verða fyr­ir­sjá­an­lega slæm, eða bleyta götur og lækka umferð­ar­hraða. Einmitt svip­uðum aðgerðum og opnað verður á með fyr­ir­hug­aðri reglu­gerð.

Samkvæmt reglu­gerð­ar­drög­unum skulu eft­ir­far­andi mæligildi eða spá­gildi höfð til við­mið­unar við mat á því hvort loft­mengun sé yfir heilsu­vernd­ar­mörkum eða líkur á því að svo verði:

  • a) 50 µg/m3 að því er varðar sól­ar­hrings­með­al­tal á grófu svifryki (PM10)
  • b) 25 µg/m3 að því er varðar sól­ar­hrings­með­al­tal á fínu svifryki (PM2.5)
  • c) 200 µg/m3 að því er varðar klukku­stund­ar­með­al­tal nit­ur­doxíðs (NO2)

Samkvæmt skýrslu Umhverf­is­stofn­unar um loft­gæði á Íslandi árið 2019 voru í heild­ina 36 dagar þar sem sól­ar­hrings­með­al­tal PM10, grófa svifryks­ins, fór yfir heilsu­vernd­ar­mörkin. Mæli­stöðvar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu fóru sextán sinnum yfir sól­ar­hrings­með­al­talið það ár og Umhverf­is­stofnun segir að í sex skipti hafi mátt rekja upp­runann til umferðar, en þetta grófa svifryk getur átt sér ýmsan upp­runa, jafn­vel má rekja það sand­storma í Sahara-eyði­mörk­inni.

Á mæli­stöð við Strand­götu á Akureyri fór sól­ar­hrings­meng­unin rúm­lega tutt­ugu sinnum yfir heilsu­vernd­ar­mörkin hvað gróft svifryk varðar, en upp­runi svifryks­ins á Akureyri hefur þó ekki verið skráður.

Helstu mögu­legu upp­sprettur eru þó taldar veg­slit vegna nagla­dekkja­notk­unar, hálku­varnir með jarð­efnum og mögu­lega sand­fok frá opnum svæðum ofan af Gler­ár­dal.

Fína svifrykið, PM2.5, fór einnig þónokkra daga yfir heilsu­vernd­ar­mörkin sem skil­greind eru í reglu­gerð­ar­drög­unum, bæði við Grens­ás­veg og einnig á mæli­stöð sem er við Hús­dýra­garð­inn í Reykja­vík, í hjarta Laug­ar­dals­ins.

Köfn­un­ar­efn­is­dí­oxíð, eða nit­urdíóxíð, fór níu sinnum yfir þau heilsu­vernd­ar­mörk, sem skil­greind eru í reglu­gerð­ar­drög­unum, árið 2019. Í öll skiptin var það við Grens­ás­veg.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

umferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár