Nagladekk virðast hafa langmest áhrif á svifryksmyndun

Nið­ur­stöður nýlegrar rann­sóknar gefa til kynna að nagla­dekk séu lang veiga­mesti þátt­ur­inn í myndun svifryks frá umferð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Vega­gerðin vakti athygli á nið­ur­stöð­unum á vef sínum í vik­unni.

Rannsóknin byggir á gögnum sem safnað var við Kauptún í Garðabæ.
Rann­sóknin byggir á gögnum sem safnað var við Kauptún í Garðabæ. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ef íslensk stjórn­völd ætla að ná því mark­miði að á árinu 2029 verði eng­inn dagur þar sem svifryk af völdum bíla­um­ferðar fer yfir skil­greind heilsu­vernd­ar­mörk á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þarf að draga veru­lega úr notkun nagla­dekkja. Einnig þyrfti bílum að fækka um 15 pró­sent og þá gæti líka verið til bóta að að auka hörku stein­efnis í slit­lögum. 

Auk þess­ara lang­tíma­að­gerða væri hægt að beita rót­tækum skamm­tíma­að­gerðum eins og að banna notkun um það helm­ings bíla­flot­ans (t.d. þeirra sem eru með númer sem endar á odda­tölu) á þeim dögum þar sem loft­gæði verða fyr­ir­sjá­an­lega slæm, eða bleyta götur og lækka umferð­ar­hraða.



Þetta kemur fram í nýlegri rann­sókn­ar­skýrslu sem Vega­gerðin vakti athygli á í vik­unni, en skýrslan var unnin með stuðn­ingi frá Rann­sókna­sjóði Vega­gerð­ar­innar. Rann­sóknin var unnin af Brian C. Barr, meist­ara­nema við jarð­vís­inda­deild Háskóla Íslands, en verk­efna­stjóri var Hrund Ó. Andra­dóttir, pró­fessor við umhverfis- og bygg­ing­ar­verk­fræði­deild HÍ.

Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar gefa til kynna að nagla­dekk séu lang veiga­mesti þátt­ur­inn í myndun svifryks frá umferð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en rann­sóknin byggir á gögnum sem safnað var við Kauptún í Garðabæ frá októ­ber 2017 til apríl 2018.

[adspot]

Aðrir áhrifa­valdar í myndun svifryks eru teg­und veg­yf­ir­borðs, umferð­ar­magn, umferð­ar­hraði og veg­þjón­usta, eins og söltun og skolun gatna. En nagla­dekkin eru lang veiga­mest, sem áður segir.

Götuþvottur virðist óskilvirk aðferð

Líkanið sem rann­sak­endur not­uðu, svo­kallað NORTRIP-líkan, sem notað er til að spá fyrir um hlut svifryks í and­rúms­lofti vegna bíla­um­ferðar, gefur til kynna að hlutur þunga­um­ferðar í svifryk­s­myndun sé lít­ill og að götu­þvottur sé óskil­virk aðferð.

Í rann­sókn­ar­skýrsl­unni segir þó að nið­ur­staðan varð­andi götu­þvott­inn sé í ósam­ræmi við reynslu og rann­sóknir erlendis og þetta atriði þyrfti að skoða í frekara fram­haldi.

Þyrfti að draga mjög mikið úr nagladekkjanotkun

Líkaninu var beitt til þess að leggja mat á til hvaða aðgerða væri hægt að grípa til þess að ná mark­miði stjórn­valda um að það verði engir „gráir dagar“ árið 2029, eða dagar þar sem svifrykið fer yfir heilsu­vernd­ar­mörk.

Ef gert er ráð fyrir að umferð verði áfram jafn mikil og hún er í dag gefur líkanið til kynna að draga þurfi úr hámarks nagla­dekkja­notkun á miðjum vetri úr 46 pró­sentum niður í 15 pró­sent.

Skýrslu­höf­undar benda á að slík lækkun væri rót­tæk í sögu­legu sam­hengi, þar sem lægsta með­al­hlut­fall nagla­dekkja á göt­unni hafi mælst 23 pró­sent vet­urna 2011-2012 og 2013-2014 og hafði þá lækkað úr 42 pró­sent á ára­tug.

Í skýrsl­unni segir að það þurfi fjöl­þættar aðgerðir til að minnka svifryks­mengun, bæði skamm­tíma aðgerðir til að bregð­ast við fyr­ir­sjá­an­legri mengun á svoköll­uðum gráum dögum og hins vegar lang­tíma aðgerðir til að draga úr allri umferð­ar­tengdri loft­mengun, eins og rakið var í upp­hafi grein­ar­innar.

Stofnvegir voru þvegnir þrisvar í ár

Í umfjöllun um rann­sókn­ar­skýrsl­una á vef Vega­gerð­ar­innar segir að þeir stofn­vegir á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem Vega­gerðin er veg­hald­ari séu þvegnir reglu­lega. Þar er um að ræða götur á borð við Kringlu­mýr­ar­braut, Sæbraut, Miklu­braut, Hring­braut og Reykja­nes­braut.

Haft er eftir Bjarna Stef­áns­syni for­stöðu­manni umsjón­ar­deildar suð­ur­svæðis Vega­gerð­ar­innar að göt­urnar hafi verið þvegnar þrisvar í ár, í vor, sumar og haust. Þá sé Vega­gerðin í sam­starfi við Reykja­vík­ur­borg um að ryk­binda göt­urnar sér­stak­lega þegar stefnir í að svifryk verði yfir mörkum. Reykja­vík­ur­borg hefur þá frum­kvæði og kallar út verk­taka þegar aðgerða er þörf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár