Borgarlína, efling strætó og virkra ferðamáta fækki eknum kílómetrum um 90 milljónir

Í aðgerða­á­ætlun stjórn­valda eru marg­vís­legar aðgerðir sem miða að því að draga úr bíla­um­ferð. Ábatinn af aðgerð­unum er marg­vís­legur líkt og Hag­fræði­stofnun bendir á í nýrri skýrslu, hávaði minnkar ásamt loft­mengun og slysum fækkar.

Fólksbílar óku um 3,3 milljarða kílómetra á íslenskum vegum árið 2020.
Fólks­bílar óku um 3,3 millj­arða kíló­metra á íslenskum vegum árið 2020. Mynd: Pexels.

Eknir kíló­metrar á Íslandi verða rúm­lega 90 millj­ónum færri árið 2030 en ella vegna aðgerða stjórn­valda í lofts­lags­málum sam­kvæmt útreikn­ingum Hag­fræði­stofn­unar Háskóla Íslands. Ábatinn af minni akstri er marg­vís­legur en Hag­fræði­stofnun gerir grein fyrir ábat­anum í nýrri skýrslu stofn­un­ar­innar sem nefn­ist Áhrif aðgerða í lofts­lags­málum – Kostn­að­ar- og ábata­mat

Vegna aðgerða til að efla göngur og hjól­reiða verða eknir kíló­metrar 65 millj­ónum færri en ella árið 2030 sam­kvæmt áætlun stofn­un­ar­innar. „Miðað við þessar for­sendur verður kostn­aður af loft­mengun sam­tals um 188 millj­ónum króna minni árið 2030 en ef stjórn­völd ýta ekki undir göngur og hjól­reiðar með aðgerðum sínum,“ segir í skýrsl­unni.

82 prósent svifryks vegna bílaumferðar

„Ef að líkum lætur verða end­ur­bætur á almenn­ings­sam­göngum síðan til þess að akstur fólks­bíla dregst enn meira saman, eða um 26 millj­ónir km til við­bótar árið 2030. Kostn­aður af loft­mengun verður þess vegna rúm­lega 75 millj­ónum krónum minni en ella árið 2030,“ segir enn fremur í skýrsl­unni. Kostn­aður vegna meng­unar dregst því saman um sam­tals rúm­lega 260 millj­ónir króna árið 2030 vegna aðgerða sem efla almenn­ings­sam­göngur og styðja við göngur og hjól­reiðar.

Í skýrsl­unni segir að mengun frá bíla­um­ferð sé ekki ein­ungis bundin við útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. „Helstu birt­ing­ar­myndir eru svifryk (PM2,5/PM10), óson (O3) og köfn­un­ar­efn­ist­ví­oxíð (NO2). Í kostn­að­ar­mat­inu sem hér er gert er ein­blínt á mengun af þessum þrem efnum, þó að bílar gefi frá sér miklu fleiri efni sem valda skaða,“ segir í skýrsl­unni en á það er bent að sam­göngur sé helsta upp­spretta loft­meng­unar hér á landi. Til dæmis má rekja 82 pró­sent svifryks í and­rúms­lofti til bíla­um­ferðar, sam­kvæmt rann­sókn verk­fræði­stof­unnar Eflu sem vísað er í í skýrsl­unni. Tæplega helm­ingur svifryks er til­kom­inn vegna slits á götum, 31 pró­sent er úr sóti frá bílum og 1,6 pró­sent úr bremsu­bún­aði þeirra.

Rafbílar ekki hljóðlátari en bensín- og dísilbílar

Mengun frá bíla­um­ferð er ekki bara bundin við loft­mengun og útblástur gróð­ur­húsa­loft­teg­unda, henni fylgir einnig hljóð­mengun. „Raunar er bíla­um­ferð helsti valdur hljóð­meng­unar. Hljóð­mengun getur truflað svefn og hún veldur iðu­lega lækkun á fast­eigna­verði,“ segir í skýrsl­unni.

Í útreikn­ingum Hag­fræði­stofn­unar er stuðst við kostn­að­ar­mat CE Delft á hljóð­mengun. Samkvæmt því er jað­ar­kostn­aður af hljóð­mengun á hvern ekinn kíló­metra tal­inn nema 2,1 krónu að jafn­aði. „Ætla má, sam­kvæmt umferð­ar­spá Orku­stofn­unar, að fólks­bílar hafi ekið rúm­lega 3.300 millj­ónir kíló­metra á íslenskum vegum árið 2020. Miðað við þessar for­sendur kost­aði hávaði af umferð um 6,9 millj­arða króna það ár. Kostn­að­ur­inn eykst með vax­andi umferð. Ef ekki verður gripið til aðgerða er áætlað að hann fari í 7,4 millj­arða árið 2030, á sama verð­lagi. En aðgerðir í lofts­lags­málum draga úr hávaða. Þær verða til þess að fleiri ganga, hjóla og nota almenn­ings­sam­göngur. Árið 2030 minnkar kostn­aður af hljóð­mengun um 190 millj­ónir króna af þessum sökum,“ segir um mat Hag­fræði­stofn­unar. [links]

Bent er á það að raf­bíla­væð­ing hefur lítil sem engin áhrif á hljóð­mengun, ekki nema þegar ekið er hægt. Þannig hafi mælst þriggja til fjög­urra desí­bela minni hávaði frá raf­bíl sem ekið var á 15 kíló­metra hraða heldur en frá bíl sem brennir jarð­efna­elds­neyti. Þegar hrað­inn eykst minnkar mun­ur­inn og þegar ekið er á 30 til 90 kíló­metra hraða er mun­ur­inn hverf­andi. „Á 50 km/klst er hávaði frá raf­magns­bílum jafn­vel 1-2 dB meiri en frá bensín- og dísil­bílum,“ segir í skýrsl­unni. Á þessu er talin vera ein­föld skýr­ing, raf­magns­bílar eru almennt þyngri en bensín- og dísil­bílar og þyngdin getur magnað upp veg­hljóð en mestur hávað­inn kemur frá vél og dekkjum.

Kostnaður vegna umferðarslysa lækki um hálfan milljarð

Einnig er fjallað um þann sam­fé­lags­lega kostnað sem hlýst af umferð­ar­slysum í skýrslu Hag­fræði­stofn­unar en sam­bandið milli umferð­ar­magns og slysa­tíðni er flókið. „Þegar umferð minnkar dregst þessi kostn­aður saman, en aftur á móti má gera ráð fyrir að slysum á hvern ekinn kíló­metra fjölgi. Sam­bandið milli slysa­kostn­aðar og ekinnar vega­lengdar er því ekki full­kom­lega línu­legt. Töfum fækkar í umferð þegar hún minnkar. Hraði eykst og um leið eykst hætta á alvar­legum slysum.“

Við grein­ingu Hag­fræði­stofn­unar var stuðst við með­alslysa­tíðni, kostn­að­ar­tölur úr eldri skýrslu stofn­un­ar­innar og tölur um hvernig slys skipt­ast eftir alvar­leika. Þannig var kostn­aður við umferð­ar­slys met­inn vera um 5,8 millj­ónir króna fyrir hverja milljón ekna kíló­metra. Bent er á það í skýrsl­unni að tölur um jað­ar­slysa­kostnað voru ekki til taks og því er stuðst við með­al­kostnað í útreikn­ing­unum.

Þar af leið­andi gerir Hag­fræði­stofnun ráð fyrir að kostn­aður vegna bílslysa verði 376 millj­ónum króna minni árið 2030 vegna þeirra aðgerða sem ætlað er að stuðla að auknum göngum og hjól­reiðum. Því til við­bótar er gert ráð fyrir að kostn­aður vegna bílslysa verði 149 millj­ónum króna minni árið 2030 vegna aðgerða sem stuðla að bættum almenn­ings­sam­göngum.

„Samtals verða aðgerðir, sem stuðla að göngum og hjól­reiðum og efla almenn­ings­sam­göngur, til þess að slysa­kostn­aður minnkar um 525 millj­ónir króna árið 2030, ef spá um sam­drátt í akstri einka­bíla stenst.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

umferð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár