Stuðningur við kaup á rafmagnsbílum þjóðhagslega óhagkvæmur

Engin aðgerð í aðgerða­á­ætlun stjórn­valda í lofts­lags­málum er eins þjóð­hags­lega óhag­kvæm og stuðn­ingur hins opin­bera við raf­bíla­kaup ein­stak­linga að mati Hag­fræði­stofn­unar. Hag­kvæm­ustu aðgerð­irnar eru skóg­rækt, land­græðsla og end­ur­heimt vot­lendis.

Að hámarki er hægt að fá 1.320 þúsund króna afslátt af virðisaukaskatti við kaup á nýjum rafbíl.
Að hámarki er hægt að fá 1.320 þús­und króna afslátt af virð­is­auka­skatti við kaup á nýjum raf­bíl. Mynd: ON

Þjóð­hags­leg áhrif af stuðn­ingi hins opin­bera við kaup almenn­ings á vist­vænum bílum eru metin nei­kvæð um sem nemur tæpum 39 millj­örðum króna í nýrri skýrslu Hag­fræði­stofn­unnar Háskóla Íslands sem fjallar um aðgerðir stjórn­valda í lofts­lags­málum. Af þeim aðgerðum sem Hag­fræði­stofnun leggur mat á skýrslu sinni ber engin jafn mik­inn þjóð­hags­legan kostnað og stuðn­ingur rík­is­ins við kaup á vist­vænum bílum.

Hag­kvæm­ustu aðgerð­irnar í aðgerða­á­ætl­un­inni snúa að land­græðslu, skóg­rækt og end­ur­heimt vot­lendis. Núvirtur ábati af land­græðslu á árunum 2019 til 2030 er met­inn rúm­lega 58 millj­arðar, tæp­lega 52 millj­arðar af skóg­rækt og tæp­lega 40 millj­arðar af end­ur­heimt vot­lendis. Þar á eftir kemur raf­væð­ing hafna en núvirtur þjóð­hags­legur sparn­aður af raf­væð­ingu hafna á tíma­bil­inu er met­inn vera 32 millj­arðar. [adspot]

Skýrsla Hag­fræði­stofn­unar nefn­ist ein­fald­lega Áhrif aðgerða í lofts­lags­málum – Kostn­aðar- og ábata­mat. Í skýrsl­unni er mat lagt á kostnað og ábata af aðgerðum stjórn­valda í lofts­lags­málum sem kynntar voru um mitt ár 2020. Í aðgerða­á­ætlun stjórn­valda eru kynntar 48 aðgerðir en í skýrsl­unni er mat lagt á 23 þeirra. Ekki er lagt mat á 25 aðgerðir vegna þess að sumar þeirra eru enn í mótun eða í und­ir­bún­ingi og áhrif ann­arra aðgerða sem ekki er lagt mat á eru óljós.

Losun minnkar um milljón tonn

Núvirtur ábati vegna nið­ur­greiðslu á vist­vænum bílum á ára­bil­inu 2019 til 2030 er met­inn vera 176 millj­arðar króna. Ábatinn er fólg­inn í minni losun kolefnis ann­ars vegar og svo ábata kaup­enda af stuðn­ingi hins vegar. Aðgerðin er talin koma í veg fyrir útblástur um milljón tonna af kol­v­tí­sýr­ingsí­gildum. Núvirtur kostn­aður við aðgerð­ina er aftur á móti met­inn vera 214 millj­arðar króna og nettó áhrifin því nei­kvæð um sem nemur 39 millj­örðum króna.

„Alltaf er hag­kvæmt að taka kolefn­is­gjald af bens­íni og dísilolíu á bíla, en það er ekki lagt á raf­magn, vetni og metan. Und­an­þágur frá öðrum gjöldum sem lögð eru á bensín- og dísil­bíla orka fremur tví­mælis. Und­an­þág­urnar eiga aðeins að gilda í nokkur ár, en mark­miðið með þeim er að greiða fyrir orku­skiptum í sam­göngum,“ segir í inn­gangskafla skýrsl­unnar

Und­an­þág­urnar megi rök­styðja með því að erfitt getur verið að taka upp nýja tækni á undan öðrum. „En raunar má segja að þetta séu fremur rök fyrir því að styðja við upp­bygg­ingu inn­viða fyrir raf­magns­bíla en að nið­ur­greiða kaup­verð þeirra eða rekstr­ar­kostnað. Ekki er heldur aug­ljóst að stjórn­völdum beri að styrkja inn­viða­gerð. Margar nýj­ungar ná vin­sældum án nokk­urs stuðn­ings úr opin­berum sjóðum.“

Muni ýta undir ójöfnuð fyrst um sinn

Í skýrsl­unni er einnig lagt mat á félags­leg áhrif aðgerð­anna. Þar segir um nið­ur­greiðslu á kaupum á vist­vænum bílum að þær flýti fyrir orku­skiptum í akstri enda hafi fleiri tök á því að kaupa raf­bíla en ella.

„En þrátt fyrir nið­ur­greiðslur eru þeir enn dýr­ari en aðrir bílar í inn­kaupum. Á móti kemur að ódýr­ara er að reka raf­bíl en bensín- eða dísil­bíl. Líklegt er að fyrst um sinn ýti aðgerð­irnar fremur undir ójöfnuð þar sem fólk með litlar tekjur á erfitt með að kaupa nýja raf­bíla,“ segir í skýrsl­unni.

Talið er lík­legt að fólk í neðsta tekju­fjórð­ungi kjósi fremur not­aða bíla en mið­gildi ráð­stöf­un­ar­tekna fólks í þeim fjórð­ungi er um 5,5 millj­ónir á ári. Rafbílar eru aftur á móti flestir nýlegir og því er lítil reynsla af end­ur­sölu og kosta nýir frá fjórum millj­ónum og upp úr. Aftur á móti megi gera ráð fyrir „að eftir því sem fleiri raf­bílar fari í end­ur­sölu jafn­ist aðstöðu­mun­ur­inn og þeir verði hag­kvæm­ari kostur fyrir fólk með lítil efni.“

Reikna með engum virðisaukaskatti til 2030

Í þeim kafla skýrsl­unnar sem snýr að stuðn­ingi við kaup á vist­vænum bílum segir að árið 2020 hafi 46 pró­sent nýskráðra bíla gengið fyrir raf­magni að fullu eða nokkur leyti en inni í þeirri tölu eru ekki tvinn­bílar sem ekki er hægt að setja í sam­band við raf­magn. Þetta hlut­fall var komið upp í 58 pró­sent árið 2021. Gert er ráð fyrir því að raf­magns­bílar leysi bensín- og dísil­bíla að fullu af hólmi og að hlut­fall nýskrán­inga hækki línu­lega upp í 100 pró­sent árið 2030 en þá verða nýskrán­ingar bensín- og dísil­bíla bönnuð. Í spánni er gert ráð fyrir að raf­bílar verði helm­ingur af bíla­flot­anum árið 2030.

Í útreikn­ingum Hag­fræði­stofn­unar er reiknað með því að heima­hleðslu­stöð verði keypt með öðrum hverjum raf­bíl fram á árið 2022. Þá er gert ráð fyrir að fjöldi hleðslu­stöðva við vinnu­staði, heim­ili og fjöl­býli verði orð­inn svo mik­ill að aðeins þurfi að kaupa hleðslu­stöð með einum af hverjum þremur nýjum raf­bílum.

Í útreikn­ing­unum er einnig gert ráð fyrir að afsláttur af virð­is­auka­skatti verði í gildi á þeim tíma sem matið nær yfir, til árs­ins 2030. Afslátt­ur­inn er bæði bund­inn við ákveð­inn hámarks­fjölda seldra bíla og við ákveðið tíma­bil. Eins og sakir standa er heim­ilt að fella niður virð­is­auka­skatt af raf­bílum til loka árs­ins 2023 og er fjölda­tak­mörkun miðuð við 20 þús­und bíla. Útreikn­ingar Hag­fræði­stofn­unar miðað við að hámarks­af­sláttur virð­is­auka­skatts sé 1.1150 þús­und krónur en þetta hámark var hækkað upp í 1.320 þús­und krónur á síð­asta þingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár