Lægri hámarkshraði myndi kalla á fleiri strætisvagna

Strætó segir í umsögn við frum­varp Andrésar Inga Jóns­sonar um lækkun hámarks­hraða í þétt­býli að það myndi auka öryggi gang­andi veg­far­enda. En einnig ferða­tíma strætófar­þega og kostnað Strætó, nema gripið yrði til mót­væg­is­að­gerða.

Frumvarp um lækkun hámarks­hraða í þétt­býli sem nú liggur fyrir Alþingi myndi að óbreyttu auka rekstr­ar­kostnað Strætó bs., þar sem lægri með­al­hraði vagn­anna kallar að öllum lík­indum á að fleiri vagnar aki hverja leið. Þessir vagnar eru ekki til hjá Strætó í dag.

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í umsögn Strætó við frum­varpið, sem Andrés Ingi Jónsson, þá utan flokka en í dag þing­maður Pírata, lagði fram. Þar segir að lækkun hraða væri jákvæð fyrir öryggi gang­andi veg­far­enda, þar á meðal far­þega Strætó. Lækkun hrað­ans myndi þó að öllum lík­indum auka ferða­tíma Strætó, sem leiddi til auk­ins rekstr­ar­kostn­aðar og óhag­ræðis fyrir not­endur Strætó.

Í umsögn­inni er vísað til úttektar sem verk­fræði­stofan Mannvit vann fyrir Strætó árið 2017 vegna hug­mynda sem þá voru uppi um að lækka hámarks­hraða á borg­ar­götum vestan Kringlu­mýr­ar­brautar.

Aukinn kostn­aður Strætó vegna þeirra hug­mynda var þá met­inn á 150 millj­ónir króna á ári, en Strætó seg­ist ekki geta lagt nákvæmt mat á hvað það myndi kosta að lækka hámarks­hraða niður í 30 km/klst. á öllum götum í þétt­býli nema sveit­ar­stjórnir færi rök fyrir og ákveði annað, eins og lagt er til í frum­varpi Andrésar Inga.[links]

Strætó setur upp dæmi af leið 15, sem gengur á milli Vest­ur­bæjar Reykja­víkur og Mos­fells­bæjar. Ef með­al­öku­hrað­inn á leið­inni, sem í dag er um það bil 25 km/klst myndi lækka um tvo kíló­metra á klst. myndi það kalla á einn vagn til við­bótar á leið 15 til að halda í við núver­andi tíma­töflu á leið­inni.

Strætó segir að „gróft reiknað“ sé hver vagn að kosta á milli 50 til 60 millj­ónir króna á ári. Sam­an­dregið segja full­trúar Strætó í umsögn­inni að þar sem mikið af götum sem Strætó ekur um myndi fá lægri hámarks­hraða ef frum­varpið yrði að lögum kæmi það til með hafa víð­tæk áhrif á ferða­tíma Strætó og þar af leið­andi auk­ins rekstr­ar­kostn­aðar.

Ljóst er af lestri umsagnar Strætó að lækk­aður hámarks­hraði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu myndi hafa þessi áhrif, nema til kæmu mót­væg­is­að­gerðir sem myndu jafna út lækkun með­al­hrað­ans, svo sem fleiri for­gangsakreinar og for­gangs­ljós fyrir Strætó og færri hraða­hindr­anir, auk ann­ars.

[adspot]

Í umsögn Strætó segir þó að verið sé að vinna frek­ari grein­ingar á áhrifum lægri hámarks­hraða á leiða­net og rekstr­ar­kostnað Strætó. „Áætlað er að þeirri vinnu ljúki á næstu mán­uðum og þá liggja fyrir mun betri upp­lýs­ingar um áhrif lægri hámarks­hraða á leið­ar­kerfi og rekstr­ar­kostnað Strætó,“ segir í umsögn­inni.[links]

Lítil geta til að kaupa fleiri vagna

Eins og Kjarninn sagði ítar­lega frá nýlega er vagna­floti Strætó kom­inn tölu­vert á aldur og fjár­fest­inga­geta byggða­sam­lags­ins lítil, nema umtals­verð fjárinn­spýt­ing komi inn í fyr­ir­tækið frá eig­endum þess.

Í grein­ingu KPMG á flota­málum Strætó sagði að það myndi kosta um 880 millj­ónir að end­ur­nýja þá 28 vagna sem orðnir eru eldri en 10 ára og svo myndi kosta um 1,5 millj­arða til við­bótar að end­ur­nýja þá 33 vagna sem keyptir voru á árunum 2013 og 2014. Á þeim árum var ráð­ist í umfangs­mikla end­ur­nýjun flot­ans í kjöl­far þess að ein­ungis einn stræt­is­vagn var keyptur frá 2008-2012 í kjöl­far hruns.

Ekki er útlit fyrir að Strætó hafi efni á því að ráð­ast í annað slíkt átak að óbreyttu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár