Ölvun á rafskútum verði refsiverð við 0,5 prómill, en heimilt að aka þeim á sumum umferðargötum

Verk­efn­is­hópur inn­við­a­ráðu­neyt­is­ins um smá­far­ar­tæki á borð við raf­hlaupa­hjól hefur sett fram nokkrar úrbóta­til­lögur. Ef þær verða að veru­leika verður refsi­vert að aka slíkum tækjum með meira en 0,5 pró­mill af áfengi í blóð­inu.

Rafskútur hafa á skömmum tíma orðið vinsæll og mikið notaður fararmáti. En því fylgja áskoranir.
Raf­skútur hafa á skömmum tíma orðið vin­sæll og mikið not­aður far­ar­máti. En því fylgja áskor­anir. Mynd: EPA

Verk­efn­is­hópur inn­við­a­ráðu­neyt­is­ins um smá­far­ar­tæki, sem skip­aður var í upp­hafi þessa árs, leggur til að refsi­vert verði að stjórna raf­drifnum smá­far­ar­tækjum á borð við raf­skútur (raf­hlaupa­hjól) ef magn áfengis í blóði er meira en 0,5 pró­mill.

Í dag flokk­ast þessi tæki sem reið­hjól sam­kvæmt lögum og hvað ölvun á reið­hjólum varðar segir í lögum að refsi­vert sé að stjórna reið­hjóli og þar með raf­hlaupa­hjóli ef fólk er ekki fært um að stjórna tæk­inu örugg­lega vegna neyslu áfengis.

Þó er ekki að finna hlut­læg mörk um magn áfengis í blóði eða útönd­un­ar­lofti sem miða skal við líkt og þegar um vél­knúin öku­tæki er að ræða. Starfs­hóp­ur­inn leggur til að slíkum hlut­lægum mæli­kvörðum verði beitt þegar um er að ræða smá­far­ar­tæki með sama hætti og þegar um er að ræða vél­knúin öku­tæki á borð við t.d. bif­reiðar og bif­hjól.

Hópurinn telur einnig, að því gefnu að til­lögur hans um bæði ölvun við akstur og 13 ára ald­urs­tak­mark gangi eftir, að leyfa skuli akstur raf­knú­inna smá­far­ar­tækja í almennri umferð á götum þar sem hámarks­hraði er 30 kíló­metrar á klukku­stund eða lægri.

Í dag má ein­ungis vera á raf­hlaupa­hjólum á hjóla­stígum og gang­stéttum og hafa sumir not­endur bent á að stundum væri örugg­ara að vera á göt­unum, þar sem gang­stéttir eru víða ósléttar.

Á meðal úrbóta­til­lagna sem verk­efn­is­hóp­ur­inn setur fram, í skýrslu­drögum sem birt voru í sam­ráðs­gátt stjórn­valda í gær, er einnig að sett verði mörk á afl smá­far­ar­tækja með það að mark­miði að mögu­legur hámarks­hraði þeirra fari ekki yfir 25 kíló­metra á klukku­stund. „Engin sam­leið er með umferð gang­andi veg­far­enda og raf­hlaupa­hjóla sem aka á 70 km/klst. hraða,“ segir um þetta í skýrsl­unni.

Í til­lögu hóps­ins er gengið út frá því að hámarks­afl far­ar­tækj­anna verði 1000 wött, en það eru sömu mörk og eru nú í Finn­landi. Rafmótor hjól­anna frá leigu­fyr­ir­tæk­inu Hopp er 700 wött, sam­kvæmt því sem fram kemur í skýrslu­drög­unum.

39 prósent slasast á djammtíma

Starfs­hóp­ur­inn var skip­aður til þess að koma fram með til­lögur um aðgerðir sem miða að því bún­aður, umhverfi og notkun smá­far­ar­tækja séu örugg, auk þess að styðja við inn­leið­ingu fjöl­breyttra og umhverf­is­vænna far­ar­máta.

Skýrslan fjallar að miklu leyti um raf­skútur, sem hafa orðið afar vin­sæll ferða­máti á allra síð­ustu árum. Áætlað er að 2,5 millj­ónir ferða verði farnar með leigðum raf­skútum á þessu ári, auk þess sem um 30 þús­und hjól eru í einka­eigu hér­lendis.

[adspot]

Vin­sældum þessa nýja far­ar­máta hafa fylgt áskor­anir, sem fjallað er um í skýrsl­unni, en þar kemur fram að 17 pró­sent allra sem slös­uð­ust alvar­lega í umferð­inni á Íslandi í fyrra hafi verið á raf­hlaupa­hjóli er slysið varð, þrátt fyrir að akstur á raf­hlaupa­hjólum sé innan við 1 pró­sent af allri umferð í land­inu.

Ölvun hefur verið áber­andi í þessum hópi slas­aðra, sam­kvæmt rann­sókn sem neyð­ar­mót­taka Land­spít­al­ans gerði, en stór hluti slysa á sér stað seint um kvöld á föstu­dögum og laug­ar­dögum. 39 pró­sent þeirra sem slös­uð­ust alvar­lega á raf­skútum árið 2021 slös­uð­ust á djamm­tíma,

Þessar stað­reyndir, auk við­horfa ungs fólks á aldr­inum 18-24 ára í garð þess að vera ölvuð á raf­skútum, þóttu gefa til­efni til aðgerða. Í könnun sem Sam­göngu­stofa gerði í fyrra kom fram að um 40 pró­sent þeirra á aldr­inum 18-24 ára sem á annað borð höfðu prófað raf­hlaupa­hjól höfðu notað slík tæki undir áhrifum áfengis.

Verk­efn­is­hóp­ur­inn er skip­aður full­trúum lög­regl­unnar, inn­við­a­ráðu­neyt­is­ins, Reykja­vík­ur­borgar, Samtaka sveit­ar­fé­laga, Vega­gerð­ar­innar og Sam­göngu­stofu.

Fréttin hefur verið upp­færð með árett­ingum þess efnis að í dag er þegar refsi­vert að stjórnar raf­hlaupa­hjólum, rétt eins og reið­hjólum, ef fólk er ekki fært um að stjórna tæk­inu öruggl­gea vegna neyslu áfengis.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

rafskútur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár