Þrengt að rafskútuleigum í Ósló

Fjöldi raf­skúta í Ósló er rúm­lega fjórum sinnum meiri á höfða­tölu heldur en í Reykja­vík. Nú ætla borg­ar­yf­ir­völd í norsku höf­uð­borg­inni hins vegar að draga veru­lega úr þessum fjölda og rukka leig­urnar fyrir umsýslu­kostnað af far­ar­tækj­unum.

Fjöldi rafskúta hefur aukist umtalsvert í Osló og öðrum evrópskum borgum á síðustu árum
Fjöldi raf­skúta hefur auk­ist umtals­vert í Osló og öðrum evr­ópskum borgum á síð­ustu árum Mynd: EPA

Frá og með fyrsta sept­em­ber mega ekki fleiri en 8 þús­und raf­skútur vera til útleigu í Ósló, höf­uð­borg Noregs. Einnig munu fyr­ir­tækin sem leigja út raf­skút­urnar þurfa að læsa þeim að næt­ur­lagi og standa straum af umsýslu­kostn­að­inum sem lendir á borg­ar­yf­ir­völdum vegna far­ar­tækj­anna. Þetta kemur fram í norska dag­blað­inu Avisa Oslo.

Leig­urnar, sem eru nú 12 tals­ins, munu þurfa að greiða borg­ar­yf­ir­völdum alls 7,7 millj­ónir norskra króna á hverju ári vegna kostn­að­ar­ins sem hlýst af þeim. Þetta jafn­gildir rúm­lega 108 millj­ónum íslenskra króna. Með nýju fjölda­tak­mörk­unum á raf­skút­unum munu leig­urnar því borga rúm­lega sjö þús­und íslenskar krónur fyrir hverja raf­skútu sem þeir leigja út.

Búist er við að stór hluti þess­arar upp­hæðar fari í upp­setn­ingu á völdum stæðum í borg­inni þar sem leggja má skút­urnar, en hún verður einnig notuð til þess að fjár­magna þróun hug­bún­aðar sem mun gera borg­ar­yf­ir­völdum kleift að hafa yfir­sýn yfir öll far­ar­tækin.

Rúmlega fjórfalt fleiri rafskútur á íbúa en í Reykjavík

Samkvæmt frétt norska dag­blaðs­ins VG frá því fyrr í sumar var talið að 25 þús­und raf­skútur yrðu til leigu í sumar í borg­inni, sem jafn­gildir um 350 raf­skútur á hverja 10 þús­und íbúa.

Til sam­an­burðar eru sam­tals um 1.850 raf­skútur til útleigu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hér á landi hjá þremur stærstu raf­skútu­leig­unum, Hopp, Wind og Zolo, en það jafn­gildir tæp­lega 79 raf­skútum á hverja 10 þús­und íbúa. Því eru rúm­lega fjórum sinnum fleiri raf­skútur á hvern íbúa í Ósló heldur en í Reykja­vík og nágrenni.

Hins vegar mun raf­skút­unum lík­lega fækka umtals­vert í Osló eftir að hámarks­fjöld­inn verður settur á um næstu mán­að­ar­mót , en ef honum verður fylgt yrðu 112 raf­skútur til leigu á hverja 10 þús­und íbúa. Þrátt fyrir það yrði fjöldi raf­skúta enn meiri á höfða­tölu í borg­inni en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hér­lendis, ef miðað er við fjölda raf­skúta sem leigðar eru út hjá Zolo, Wind og Hopp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarskipulag

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár