Maskína leiðrétti framsetningu Moggans á göngugatnakönnun

Maskína, sem vann könnun á við­horfum til var­an­legra göngugatna fyrir hóp kaup­manna sem berst gegn göngu­götum í mið­borg­inni, sendi frá sér leið­rétt­ingu á fimmtu­dag eftir að bjöguð mynd af nið­ur­stöð­unum var dregin fram í Morg­un­blað­inu.

Könn­un­ar­fyr­ir­tækið Maskína leið­rétti á fimmtu­dag fram­setn­ingu Morg­un­blaðs­ins á könnun sem fyr­ir­tækið vann fyrir hóp kaup­manna sem kallar sig Mið­bæj­ar­fé­lagið í byrjun mars. Í frétt blaðs­ins var því haldið fram nið­ur­stöð­urnar sýndu að „meiri­hluti“ íbúa höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins væri á móti því að göngu­götur yrðu allt árið í mið­borg Reykja­víkur til fram­tíðar, en svo er ekki.

Hið rétta er, eins og kemur fram í frétt á vef Maskínu sem sett var inn á þriðju­dag eftir að rangar tölur úr könn­un­inni komu fram í umfjöllun Bylgj­unnar, að nið­ur­stöður könn­un­ar­innar gefa til kynna að 44,2 pró­sent íbúa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, ekki bara í Reykja­vík heldur einnig í nágranna­sveit­ar­fé­lög­unum, séu á móti því að Banka­stræti, Lauga­vegur alla leið frá Hlemmi að Þing­holts­stræti og neðri hluti Skóla­vörðu­stígs verði gerður að göngu­götu allt árið. Þetta er stærstur hluti aðspurðra, eins og nú segir í net­út­gáfu fréttar Morg­un­blaðs­ins.

En ein­ungis ögn færri, eða 41,1 pró­sent aðspurðra, sögð­ust fylgj­andi því að þetta svæði yrði gert að var­an­legri göngu­götu. 14,7 pró­sent þeirra sem tóku þátt í könn­un­inni voru í hvorki afger­andi hlynntir því né and­vígir. Það má því segja að íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins séu klofnir í afstöðu sinni til var­an­legra göngugatna á þessu svæði, sam­kvæmt nið­ur­stöðum könn­un­ar­innar.

Maskína spurði einnig hvort íbúar höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins teldu sig lík­legri eða ólík­legri til þess að heim­sækja mið­borg Reykja­víkur ef þessar breyt­ingar yrðu gerðar. Stærstur hluti, eða 37,4 pró­sent, sagði að það myndi engu breyta fyrir sig, en 35,6 pró­sent aðspurðra sögðu að ólík­legra væri að þeir myndu heim­sækja mið­borg­ina eftir breyt­ingar. Á móti sögðu 27 pró­sent aðspurðra að það væri lík­legra að þeir myndu sækja mið­borg­ina heim ef þar væru göngu­götur allt árið.

Lagt var rang­lega út frá nið­ur­stöðum þess­arar könn­unar í leið­ara Morg­un­blaðs­ins á föstu­dag. Þar var því haldið fram að í könnun Maskínu fyrir Mið­bæj­ar­fé­lagið hefði verið spurt um afstöðu Reyk­vík­inga til göngugatna í mið­borg­inni, þegar hið rétta er að verið var að spyrja íbúa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu öllu, eins og kom fram í frétt blaðs­ins á fimmtu­dag. Nið­ur­stöð­urnar könn­un­ar­innar voru svo sagðar sýna að „lokana­stefna“ borg­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­ans væri komin í öng­stræti.

Meirihluti Reykvíkinga er jákvæður gagnvart göngugötum

Reykja­vík­ur­borg hefur á und­an­förnum árum látið Maskínu fram­kvæma árlegar kann­anir á afstöðu Reyk­vík­inga til göngugatna í mið­borg­inni. Nið­ur­stöð­urnar sýna að meiri­hluti Reyk­vík­inga er jákvæður gagn­vart göngu­götum.

Í nýj­ustu könnun Maskínu fyrir borg­ina, sem fram­kvæmd var í sept­em­ber í fyrra, voru 64,5 pró­sent aðspurðra borg­ar­búa jákvæðir gagn­vart göngu­götum í mið­borg­inni og stærstur hluti aðspurðra, eða 28 pró­sent, sagð­ist vilja göngu­götur allt árið. Rúm 20 pró­sent sögð­ust að ein­hverju leyti nei­kvæð í garð göngugatna.

Jákvæðni í garð göngugatna eykst eftir því sem fólk kemur oftar í mið­borg­ina, en 79 pró­sent þeirra sem sögð­ust koma viku­lega eða oftar í mið­borg­ina sögð­ust jákvæðir gagn­vart göngu­götum. Það voru einnig 68 pró­sent þeirra sem komu alla­vega 1-3 sinnum í mán­uði, en ein­ungis 45 pró­sent þeirra sem koma í mið­borg­ina sjaldnar en mán­að­ar­lega.

Göngugöturnar orðnar varanlegar en samt bílar um allt

Göngu­götur í mið­borg­inni eru nú orðnar var­an­legar. Sú ákvörðun var nýlega stað­fest af borg­ar­yf­ir­völdum, en um er að ræða Laugaveg frá Klapp­ar­stíg að Þing­holts­stræti, Skóla­vörðu­stíg á milli Berg­staða­strætis og Lauga­vegar og Vega­móta­stíg frá Lauga­vegi að Grett­is­götu. Í sumar er svæðið raunar enn stærra og Lauga­veg­ur­inn tíma­bundið göngu­gata alla leið­ina að Frakka­stíg.

Búið er að setja upp skilti sem banna akstur um göngu­göt­urnar, en þeim er ekki lokað með hliðum eins og gert hefur verið und­an­farin ár.

Ástæðan fyrir því er sú að sam­kvæmt nýjum umferð­ar­lögum er ákveðnum hópum heim­ilt að fara um göngu­götur á bíl. Þetta eru hand­hafar stæð­iskorta fyrir hreyfi­haml­aða og svo þeir sem sinna akst­urs­þjón­ustu fatl­aðra. Einnig mega lög­regla, slökkvi­lið og sjúkra­bílar aka um göngu­götur.

Þó eru mun fleiri á ferð­inni á bílum sínum um göngu­göt­urnar en þeir sem hafa til þess leyfi. Hafa margir vakið máls á því á sam­fé­lags­miðlum und­an­farna daga að öku­menn brjóti umferð­ar­lögin og fari rún­t­andi niður Skóla­vörðu­stíg, Laugaveg og Banka­stræti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarskipulag

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár