Unnið að uppstokkun stofnana ráðuneytis Guðlaugs Þórs

Tæplega helm­ingur starfs­fólks 13 stofn­ana sem heyra undir umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráðu­neytið telur mikil tæki­færi fel­ast í sam­ein­ingum stofn­ana. Unnið er að „ein­földun á stofn­ana­fyr­ir­komu­lagi“.

Guðlaugur Þór Þórðarson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Frá því í sumar, er Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, umhverfis-, orku- og lofts­lags­ráð­herra, kynnti for­sendur og mark­mið verk­efnis við að greina „umbóta­tæki­færi og áskor­anir“ sem fel­ast í núver­andi stofn­ana­kerfi ráðu­neyt­is­ins, hefur verið unnið að ein­földun skipu­lags þess­ara stofn­ana. Þær eru þrettán tals­ins og hjá þeim starfa um 600 manns á 40 starfs­stöðvum víða um land. Flest störfin eða 61 pró­sent eru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

[adspot]

Markmið að ná fram hagræðingu

Guð­laugur Þór kynnti stöðu þess­arar vinnu á rík­is­stjórn­ar­fundi í síð­ustu viku. Í upp­lýs­ingum sem hann lagði þar fram og Kjarninn fékk afhentar, kom fram að mark­mið verk­efn­is­ins væri að gera stofn­anir betur í stakk búnar til að mæta „umfangs­miklum fag­legum og rekstr­ar­legum áskor­unum sem við blasa, efla sam­starf stofn­ana og ráðu­neytis, auka skil­virkni, þjón­ustu og ná fram hag­ræð­ingu“.

Í verk­efn­inu telur ráð­herr­ann einnig fel­ast sókn­ar­færi hvað varðar fjölgun starfa á lands­byggð­inni, fjölgun á störfum óháð stað­setn­ingu og upp­bygg­ingu eft­ir­sókn­ar­verðra vinnu­staða fyrir öfl­ugt fag­fólk, líkt og það er orðað í sam­an­tekt um stöðu vinn­unnar.

Þingvallafundur með forstöðumönnum

Í lok júní átti Guð­laugur Þór fund á Þing­völlum með for­stöðu­mönnum allra stofn­ana sem heyra undir ráðu­neyti hans. Á þeim fundi voru meðal ann­ars kynntar áherslur um að nýta þekk­ingu, inn­viði og gögn sem fyrir eru og að auka sam­þætt­ingu stefnu­mót­unar og áætl­ana­gerðar.

Grein­ing­ar­vinna byggir á heild­stæðri nálgun mála­flokka, líkt og það er orðað, og verk­efna sem í sumum til­fellum ná út fyrir skil­greind við­fangs­efni stofn­ana og ráðu­neyt­is­ins. Með sama hætti er horft til þess hvort núver­andi verk­efnum væri betur fyrir komið með öðrum hætti, s.s. „þar sem tæki­færi gætu legið til sam­þætt­ingar eða flutn­ings verk­efna á milli ráðu­neyta“. Meðal ann­ars vegna þessa er áhersla lögð á mik­il­vægi náins sam­starfs við önnur ráðu­neyti, segir í þeim gögnum sem ráð­herr­ann kynnti fyrir rík­is­stjórn.

Minnihluti sér mikil tækifæri

For­stöðu­menn allra stofn­ana hafa skilað inn grein­ar­gerðum og hefur Guð­laugur Þór fundað með starfs­mönnum þeirra allra. Við­horfskönnun var gerð nú í ágúst á meðal starfs­fólks­ins og var þátt­taka um 74 pró­sent. Í könn­un­inni kom m.a. fram að innan við helm­ingur eða 48 pró­sent telja mikil eða mjög mikil tæki­færi fel­ast í sam­ein­ingum stofn­ana. 63 pró­sent telja hins vegar mikil eða mjög mikil tæki­færi liggja í að sam­þætta verk­efni og auka sam­vinnu.

Einnig var spurt um við­horf til fjar­vinnu og voru 82 pró­sent starfs­fólks jákvæð gagn­vart því að sinna starf­inu með þeim hætti að hluta eða öllu leyti.

[adspot]

Geta nýrra stofnana

„Í grunn­inn er horft á getu nýrra stofn­ana til að mæta allra stærstu áskor­unum sem bíða á þessu sviði en auk þess var sér­stak­lega horft til efn­is­at­riða sem hafa, með einum eða öðrum hætti, verið á borði margra stofn­ana og verk­efna sem hafa verið með mikla skörun eða teng­ingar á milli stofn­ana,“ segir í gögnum þeim sem lögð voru fyrir rík­is­stjórn­ina. Er þar örugg­lega verið að vísa til lofts­lags­mála. „Með nýrri nálgun er stefnt að því að auka skil­virkni og draga úr sóun sem hlýst af tví­tekn­ingu, skorti á sam­starfi og sam­skiptum.“

Niðurstaða í lok árs

Verk­efn­is­á­ætlun gerir ráð fyrir að á næstu vikum fari fram frek­ari gagna­öflun og grein­ing sam­hliða því sem fundað verði með stjórnum, nefndum, öðrum ráðu­neytum og hag­að­ilum. Á þessum fundum verður verk­efnið kynnt auk þess sem sér­stök áhersla verður á umræður um mögu­legan flutn­ing verk­efna til og frá ráðu­neyt­inu og stofn­unum þess. Gert er ráð fyrir að í lok þessa árs liggi fyrir hver nið­ur­staðan verður og í fram­haldi af því mun hefj­ast vinna við inn­leið­ingu breyt­ing­anna.

Sam­ein­ing stofn­ana kom til tals á fundi þing­manna Vinstri grænna í Borg­ar­nesi nýverið. Tilefni fund­ar­ins var umræða sem vaknað hefur um vind­orku­ver en að mati á slíkum fram­kvæmdum, sem hafa áhrif á umhverfi, sam­fé­lög og fleiri þætti, koma einmitt margar stofn­anir s.s. Skipu­lags­stofnun, Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands, Umhverf­is­stofnun og Orku­stofnun.

„Ruslakistustofnunin“

Einn gestur fund­ar­ins sagði að hið nýja inn­við­a­ráðu­neyti, sem Sigurður Ingi Jóhanns­son for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins fer fyrir, vera að „gleypa alls konar stofn­anir sem eru ætl­aðar til þess að hindra fram­gang svona mála“.

Hann nefndi Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun, sem væri „ruslakistu­stofnun“ og ótt­að­ist að næsta skref yrði að sam­eina Skipu­lags­stofnun þeirri kistu í þeim til­gangi að lama það eft­ir­lit og hlut­verk sem hún hefur. Vinstri græn verði að sjá til þess að „freku kall­arnir“ kom­ist ekki upp með að losna við þær bremsur sem þó eru í mann­virkja­gerð hér á landi og eru m.a. á hendi Skipu­lags- og Umhverf­is­stofn­unar.

Skipu­lags­mál voru færð frá umhverf­is­ráð­herra til inn­við­a­ráð­herra er ný rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur var kynnt seint á síð­asta ári. Þar með færð­ist Skipu­lags­stofnun frá umhverf­is­ráðu­neyt­inu undir nýtt emb­ætti inn­við­a­ráð­herra.

Orri Páll Jóhanns­son, þing­flokks­for­maður VG, minnti á Borg­ar­nes­fund­inum á að Skipu­lags­stofnun starfi á grund­velli laga. „Hún verður ekk­ert lögð niður eða henni breytt nema með laga­setn­ingu“ og sagð­ist því ekki deila sömu áhyggjum og fund­ar­gest­ur­inn. Hann hefði hvergi fengið það stað­fest að til standi að sam­eina Skipu­lags­stofnun annarri stofnun „en ég hef alveg heyrt þetta, ég við­ur­kenni það“.

Bjarni Jónsson, þing­maður VG, var einnig á þessum fundi í Borg­ar­nesi. „Ég skal alveg við­ur­kenna það að ég var ekk­ert ofboðs­lega skot­inn í þessum breyt­ingum, per­sónu­lega,“ sagði Bjarni og vís­aði til stofn­unar inn­við­a­ráðu­neyt­is­ins.

Þær stofn­anir sem heyra undir ráðu­neytið eru: Íslenskar orku­rann­sóknir (ÍSOR), Land­mæl­ingar Íslands, Minja­stofnun, Nátt­úru­fræði­stofnun Íslands, Nátt­úru­rann­sókn­ar­stöðin við Mývatn, Orku­stofnun, Stofnun Vil­hjálms Stef­áns­sonar, Umhverf­is­stofnun, Úrskurð­ar­nefnd umhverfis- og auð­linda­mála, Úrvinnslu­sjóður, Vatna­jök­uls­þjóð­garður, Veð­ur­stofa Íslands, Þjóð­garð­ur­inn á Þing­völlum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár