Landsvirkjun takmarkar sölu á orku til rafmyntavinnslu

Orkusala Lands­virkj­unar til gagna­vera nemur um 100 MW um þessar mundir. Til sam­an­burðar er upp­sett afl Vatns­fells­virkj­unar 90 MW. Um helm­ingur af starf­semi gagna­ver­anna teng­ist greftri eftir raf­myntum.

Verne Global rekur gagnaver á Suðurnesjum. Fyrirtækið hyggst hætta starfsemi í rafmyntariðnaði á næstu mánuðum.
Verne Global rekur gagna­ver á Suð­ur­nesjum. Fyr­ir­tækið hyggst hætta starf­semi í raf­mynt­ar­iðn­aði á næstu mán­uðum. Mynd: Heimasíða Verne Global

Fréttin hefur verið upp­færð og fyr­ir­sögn hennar breytt. Í upp­lýs­ingum sem Kjarninn fékk skrif­lega frá Lands­virkjun í gær sagði að á næstu 1-2 árum yrði allri sölu á raf­orku til raf­mynta­graftrar hætt. Hið rétta er, segir í leið­rétt­ingu frá Lands­virkjun, að fyr­ir­tækið hefur ekki ákveðið hvort að samn­ingar við gagna­ver hvað vinnslu raf­mynta snertir verði end­ur­nýj­aðir að hluta eða í heild er þeir renna út eftir 1-2 ár. Fyr­ir­tækið muni sjá hvernig ræt­ist úr stöð­unni og taka ákvörðun í fram­hald­inu.

Eftir að Kína ákvað að banna gröft eftir raf­myntum, sem fram fer með afl­frekum tölvum í gagna­verum sem þarf að skipta títt út, jókst eft­ir­spurn eftir raf­orku frá Lands­virkjun vegna slíkrar starf­semi mikið. Fyr­ir­tækið hefur nú hafnað öllum nýjum beiðnum um raf­orku­kaup vegna raf­mynta, bæði til núver­andi við­skipta­vina og nýrra aðila sem hafa áhuga á að hefja starf­semi. Heild­ar­eft­ir­spurnin nam um 1.000 MW sem er tífalt það magn sem gagna­verin á Íslandi nýta í dag. For­stjóri Lands­virkj­unar hefur enn­fremur sagt að ekki verði virkjað sér­stak­lega til raf­mynta­graftrar. Núver­andi samn­ingar um þessa starf­semi renna út á næstu 1-2 árum.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í svörum Lands­virkj­unar við fyr­ir­spurn Kjarnans í til­efni af því að fyr­ir­tækið ákvað að skerða afhend­ingu á raf­orku til fiski­mjöls­verk­smiðja sem og stórnot­enda með skerð­an­lega skamm­tíma­samn­inga, t.d. gagna­vera og álvera.

[adspot]

„Ástæðan fyrir skerð­ingu til fiski­mjöls­verk­smiðja er fyrst og fremst sú að þær, einar iðn­fyr­ir­tækja á almennum mark­aði, eru ein­göngu með skerð­an­lega samn­inga,“ segir Ragn­hildur Sverr­is­dóttir upp­lýs­inga­full­trúi Lands­virkj­unar. Aðrir stórnot­endur semja um for­gangsorku og að auki um skerð­an­lega orku, í samn­ingum til skemmri tíma. Fiski­mjöls­verk­smiðj­urnar hafa hins vegar „kosið að greiða lágt orku­verð, gegn því að sæta skerð­ingu þegar nauð­syn krefur“.

Nóg af orku en flöskuhálsar í flutningi

Það er ekki þannig að skerð­ingin nú skýrist af almennum orku­skorti í land­inu, þ.e. að þær orku­stöðvar sem hér hafa verið reistar, virkj­an­irnar, eigi ekki að duga til svo loðnu­bræðsl­urnar geti starfað. Margir þættir hafa komið saman sem skapað hafa þá nauð­syn á skerð­ingum sem Ragn­hildur nefnir.

Í fyrsta lagi þá ræður flutn­ings­kerfið ekki við að flytja alla þá orku sem hægt væri að fram­leiða í stærstu virkjun lands­ins, Kára­hnjúka­virkjun, til við­skipta­vina. Þannig eru fiski­mjöls­verk­smiðj­urnar á Aust­ur­landi sem nú þurfa að búa við skerð­ingu „röngu megin“ í flutn­ings­kerf­inu, líkt og Ragn­hildur orðar það. Þær eru engu að síður í nágrenni Kára­hnjúka . „Meiri fram­leiðslu­geta er fyrir norðan en notkun og minni fram­leiðslu­geta en notkun á Suð­vest­ur­landi,“ segir Ragn­hildur. Þetta verður til þess, að því er sagði í til­kynn­ingu Lands­virkj­unar um skerð­ing­una, að á tíu dögum rann fram­hjá Kára­hjúka­virkjun orka sem sam­svarar heils­árs­notkun allra bræðslna á land­inu. „Þessar tak­mark­anir orsaka það að ekki er hægt að full­nýta raf­orku­kerfið,“ bendir Ragn­hildur á.

Á Suð­vest­ur­landi er svo á sama tíma gríð­ar­mikil eft­ir­spurn ef raf­orku, „enda leggja stærstu við­skipta­vinir okkar áherslu á að full­nýta verk­smiðjur sínar, nú þegar eft­ir­spurn eftir vörum þeirra er í hæstu hæðum og verðið þá um leið,“ segir Ragn­hildur. Þetta á m.a. við um álverin og gagna­verin. Nú er raf­magn afhent til gagna­vera á fimm stöðum á land­inu. Þrjú ver eru rekin á Suð­ur­nesjum, eitt á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og eitt á Blöndu­ósi. Eitt álver er á Grund­ar­tanga, annað í Hafn­ar­firði og það þriðja á Aust­ur­landi.

En það er fleira en flutn­ings­kerfið sem skýrir stöð­una. Staðan í vatns­bú­skapnum er verri á Suð­ur­landi en hún hefur verið um langt skeið. Uppi­stöðu­lónið Þór­is­vatn, sem fóðrar virkj­anir Lands­virkj­unar í Þjórsá, fyllt­ist ekki í haust. Þetta hefur áhrif niður virkj­ana­kerfið á svæð­inu. Vatn í öðru uppi­stöðu­lóni, Krókslóni, hefur lækkað það mikið að hleypa þurfti vatni fram­hjá Vatns­fells­virkjun. Því hefur dregið úr orku­vinnslu á Þjórsár- og Tungnár­svæði og orku­sölu þaðan þá sömu­leiðis.

Bilanir hjá Landsvirkjun og HS orku

Svo eru það bil­anir. Bilun kom upp í vél (hverfli) í Búr­fells­virkjun fyrir nokkrum dögum. Enn er ekki ljóst hversu umfangs­mikil hún er. Áætlað var að hefja vinnu við útskipti á vatns­hjóli þess­arar sömu vélar um miðjan jan­úar og mun sú vinna standa fram í byrjun maí.

Um er að ræða einn af sjö hverflum Búr­fells­virkj­unar og eru þeir sjaldn­ast keyrðir allir í einu. Hinar vél­arnar verða að lík­indum keyrðar meira á meðan sú bil­aða er úti sem eykur áhættu í rekstri raf­orku­kerf­is­ins, að sögn Ragn­hildar.

Kjarninn fékk einnig þau svör frá HS Orku að ein 6 MW vél í Svarts­engi væri biluð og því ekki „að keyra núna“ líkt og Jóhann Snorri Sig­ur­bergs­son, for­stöðu­maður við­skipta­þró­unar fyr­ir­tæk­is­ins, orðar það. Orku­vinnslan í virkj­unum HS orku væri í með­al­lagi miðað við síð­ustu fimm ár.

1-4 prósent raforkunnar til gagnavera

Sá iðn­aður hér á landi sem vex einna hrað­ast um þessar mundir teng­ist gagna­verum. Geymslu og vinnslu gagna í öfl­ugum tölvum. Við­skipta­vinir Lands­virkj­unar í gagna­vers­iðn­aði eru fjórir og getur eft­ir­spurnin sveifl­ast á milli ára. Þannig hefur sala til gagna­ver­anna verið á bil­inu 1-4 pró­sent af heild­ar­raforku­sölu fyr­ir­tæk­is­ins á árunum 2017–2021. Sala Lands­virkj­unar til gagna­vera nemur um 100 MW um þessar mundir og sala HS orku til þeirra er um 15 MW til við­bótar.

„Gagna­vers­iðn­aður er í stöðugri sókn á heims­vísu enda verða gögn sífellt mik­il­væg­ari í við­skiptum og dag­legu lífi,“ segir Sigríður Mogensen, sviðs­stjóri iðn­aðar- og hug­verka­sviðs Samtaka iðn­að­ar­ins, við Kjarnann. Gagna­magn auk­ist á degi hverjum og til­heyr­andi gagna­vinnsla sömu­leiðis. „Aukin notkun fyr­ir­tækja og ein­stak­linga á upp­lýs­inga­tækni hefur stuðlað að hröðum vexti gagna­vers­iðn­aðar og búist er við að hann haldi áfram í veld­is­vexti.“

Samtök iðn­að­ar­ins áætla að um helm­ingur af starf­semi gagna­vera hér á landi teng­ist vinnslu raf­mynta. Hlut­fallið af starf­semi sem teng­ist greftri eftir raf­myntum hefur farið minnk­andi á und­an­förnum árum en það var um 80-90 pró­sent þegar mest lét. Önnur starf­semi gagna­vera hefur hins vegar verið í hrað­ari vexti. Ekkert þeirra fjög­urra stóru gagna­vera sem starf­rækt eru á Íslandi er ein­göngu í raf­myntum.

Milljarðar til þjóðarbúsins

Sigríður bendir á að gagna­verin leggi bæði mikið til þjóð­ar­bús­ins, um 20 millj­arða í gjald­eyr­is­tekjur á ári, auk þess sem þar starfi um 100 fast­ráðnir starfs­menn. Einnig tekur hún fram að hér hafi skotið upp koll­inum tækni­fyr­ir­tæki sem ein­göngu starfi í kringum gagna­vers­iðn­að­inn. Þá þjón­usta íslensk upp­lýs­inga­tækni­fyr­ir­tæki einnig gagna­verin.

Staðan sem upp er komin núna sem leitt hefur til þess að skerða hefur þurft raf­orku til gagna­vera og fleiri fyr­ir­tækja „er meðal ann­ars birt­ing­ar­mynd þess að hér hefur umræða um orku­öflun verið í ákveðnum skot­gröfum á síð­ustu árum, sam­an­ber ramma­á­ætlun sem hefur verið í algjöru frosti um ára­bil,” segir Sigríður. „Ljóst er að stjórn­sýsla raf­orku­mála hefur ekki verið skil­virk og þvert á móti, í raun hefur upp­bygg­ing raf­orku­kerf­is­ins verið í algjöru lama­sessi. Lær­dóm­ur­inn er auð­vitað sá að við verðum að temja okkur að hugsa lengra fram í tím­ann, það hefur legið fyrir lengi að atvinnu- og efna­hags­líf fram­tíðar verður að miklu leyti raf­orkuknúið og það eru að verða miklar breyt­ingar í iðn­aði. Orku­skipti, fram­tíð­ar­iðn­aður; meðal ann­ars gagna­vers­iðn­aður, hátækni­mat­væla­fram­leiðsla, líf­tækni, vetnis- og raf­elds­neyt­is­fram­leiðsla (sem má nefna sem dæmi) eru allt stór tæki­færi fyrir okkur Íslend­inga. Við getum hins vegar ekki nýtt þau tæki­færi, til hags­bóta fyrir þjóð­ar­búið allt, nema með því að efla raf­orku­kerfið til muna, auka orku­öflun og stuðla að auk­inni skil­virkni og bol­magni í flutn­ings- og dreifi­kerfi raf­orku.”

Samn­ingar Lands­virkj­unar við gagna­ver eru breyti­legir sem end­ur­spegla marg­breyti­lega starf­semi þeirra. Þjónusta gagna­vera við fyr­ir­tæki byggir á miklum áreið­an­leika tölvu­kerfa, fjar­skipta og orku og gagna­ver tryggja sér kaup á for­gangsorku fyrir þá starf­semi. Vinnsla gagna­vera vegna námu­graftar eftir raf­myntum hefur í för með sér kvik­ari eft­ir­spurn og eru samn­ing­arnir styttri. Nú hefur Lands­virkjun gripið til skerð­inga í slíkum samn­ingum en Ragn­hildur segir í sínum svörum til Kjarnans á að skerð­ingin hafi tak­mörkuð áhrif á starf­semi gagna­ver­anna þar sem um umsamið magn raf­orku í skerð­an­legum skamm­tíma­samn­ingum sé lítið.

Ætla að fasa út rafmyntir

Verne Global er fyrsta alþjóð­lega gagna­verið á Íslandi og þjón­ustar m.a. stór alþjóð­leg fyr­ir­tæki og stofn­anir. Dæmi um við­skipta­vini gagna­vers­ins eru bíla­fram­leið­endur og hönn­uðir, fyr­ir­tæki í líf­tækni­iðn­aði, fjár­mála­stofn­anir sem þurfa mikið reikni­afl og svo fram­vegis. Gagnaver á Íslandi hyggj­ast hins vegar „fasa út“ raf­myntir og færa sig meira yfir í hefð­bundna við­skipta­vini.

„Verne Global er jafn­framt fyrsta gagna­verið til þess að fasa út raf­myntir og ekki er gert ráð fyrir slíkri starf­semi í gagna­ver­inu frá og með á næsta ári,“ segir Ragn­hildur. Önnur gagna­ver á Íslandi eru með bland­aða starf­semi og eru að bæta við sig alþjóð­legum við­skipta­vinum sem þurfa á miklu reikni­afli að halda. Hún segir að raf­mynta­starf­semin hafi hjálpað gagna­ver­unum að kom­ast á legg, þ.e. til að ná stórnot­enda­við­miðum í flutn­ings­samn­ingum raf­orku, greiða niður fjár­fest­ingar og byggja upp alþjóð­legan við­skipta­vina­hóp sem þarf á reikni­afli ofur­tölva að halda. Lands­virkjun hefur nú hafnað öllum óskum nýrra gagna­ver­svið­skipta­vina um orku­kaup vegna raf­mynta­graftrar. Raf­orku­samn­ingar fyrir raf­mynta­gröft eru stuttir og verða allir útrunnir eftir eitt til tvö ár. Lands­virkjun hefur hins vegar ekki ákveðið hvort samn­ing­arnir verða end­ur­nýj­aðir að hluta eða heild. Fyr­ir­tækið mun sjá hvernig ræt­ist úr stöð­unni og taka ákvörðun í fram­hald­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár