Sólblóm víkja fyrir sólarsellum – sólarorkuver eru ekki án umhverfisáhrifa

Evr­ópu­ríki vilja ekki rúss­neska gasið og hafa sett sér háleit mark­mið að draga veru­lega úr notkun jarð­efna­elds­neytis. Horft er til vind- og sól­ar­orku og síð­ar­nefndi orku­gjaf­inn er í gríð­ar­legri sókn í álf­unni.

Sólarsellur taka mikið pláss. Líftími þeirra er um 20-25 ár.
Sól­ar­sellur taka mikið pláss. Líftími þeirra er um 20-25 ár. Mynd: EPA

Breiður af sól­ar­sellum eru að verða sífellt algeng­ari sjón víða í Evrópu. Kalla mætti þetta sól­vanga, svona til jafns við „vind­orku­garða“ eða „vind­orku­lundi“ líkt og fyr­ir­tæki í þeirri orku­starf­semi gera gjarnan. Sól­vang­arnir eru í að margra áliti tákn um nýja tíma, um fram­fara­skref í átt að grænni fram­tíð. Í nýlegri könnun Evrópska fjár­fest­ing­ar­bank­ans kom í ljós að mik­ill meiri­hluti fólks (80 pró­sent) sem býr í löndum Evr­ópu­sam­bands­ins seg­ist finna fyrir lofts­lags­breyt­ingum á eigin skinni í sínu dag­lega lífi. Sumar öfga í veðri er enda að baki, þar sem hita­bylgjur og þurrkar hafa herjað á mörg ríki.

[adspot]

Frá maí og til ágúst­loka í ár var 12 pró­sent alls raf­magns innan ESB fram­leitt með sól­ar­orku. Það er algjört met og mun hafa sparað ríkj­unum tæpa 30 millj­arða evra í kaup á gasi. Gasi sem Rússar fram­leiða einna mest af og sem Evrópa notar einna mest af. Þessa stöðu hafa rúss­nesk stjórn­völd nýtt sér til að forð­ast alls­herjar við­skipta­bann í kjöl­far inn­rásar sinnar í Úkraínu í byrjun árs.

[links]Mjög mis­jafnt er hins vegar milli ríkja Evrópu hversu mikil orka var unnin úr sól­inni í sumar. Hlut­fallið var hæst í Hollandi (23 pró­sent), Þýska­landi (19 pró­sent) og í sól­skins­rík­inu Spáni (17 pró­sent). Grikkir bera hins vegar höfuð og herðar yfir ESB-löndin þegar kemur að því að nota end­ur­nýj­an­lega orku­gjafa og í sumar náðu þeir því mark­miði að fram­leiða allt sitt raf­magn úr slíkum orku­upp­sprettum – þótt það hafi aðeins verið staðan í fimm klukku­stundir. Pól­verjar eiga hins vegar metið í mestri aukn­ingu á virkjun sól­ar­orku en nýt­ing hennar hefur 26-fald­ast frá árinu 2018. Finnland og Ung­verja­land eru á svip­aðri braut.

Stórhuga áform

Og þetta er engin til­viljun því ef ná á því mark­miði að halda hlýnun jarðar frá upp­hafi iðn­bylt­ingar undir 1,5 gráðum er reiknað með að nífalda þurfi sól­ar­orku­fram­leiðslu í Evrópu til árs­ins 2035, að mati evr­ópsku hug­veit­unnar Ember.

Evr­ópu­þingið og fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins hafa sett sér þau mark­mið að 45 pró­sent af orku­fram­leiðsl­unni komi frá end­ur­nýj­an­legum orku­gjöfum fyrir árið 2050. En sum aðild­ar­ríkin segja úti­lokað að ná því og vilja að mark­miðin verði lækkuð í 40 pró­sent. Og til að þessi mark­mið náist þarf mikla sól­ar­orku og mikla vind­orku.

Flestir líta svo á að það sé af hinu góða að auka við sól­ar­ork­una. Flestir íbúar ESB eru til dæmis áfram um að fleiri sól­vangar verði settir upp til að stemma stigu við nei­kvæðum áhrifum lofts­lags­breyt­inga. Einn þeirra, svo dæmi sé tekið, hefur þegar verið reistur í 2.500 metra hæð í Ölpunum í Sviss. Þeir geta verið nán­ast alls staðar þar sem sólin skín.

En vill fólk hafa þá alls staðar?

Nei, og stjórn­mála­menn eru vissu­lega ekki á einu máli þar um. Rishi Sunak, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, sagði m.a. fyrir nokkru að hann vildi ekki sjá „stóra hluta okkar besta land­bún­að­ar­lands tap­ast undir sól­vanga“.

Á það hefur hins vegar verið bent að eins og staðan er í dag þekja þeir um 0,1 pró­sent Bret­landseyja – mun minna land en golf­vellir, svona sem dæmi.

[adspot]

Á meg­in­landi Evrópu er sól­ar­orku­ver að finna á marg­vís­legum stöðum. Vissu­lega á gömlum land­bún­að­ar­svæðum, en líka hátt uppi í fjöllum við miðl­un­ar­lón og á ónýttu landi með­fram lestar­teinum og vegum. Sem og auð­vitað víðar.

Ein ástæða þess að nýt­ing sól­ar­orku er á allra vörum þessi miss­erin er sú að sól­ar­sellur eru orðnar mun ódýr­ari en þær voru fyrir um ára­tug. Svokölluð „ljós­spennu­að­ferð“ (e. Photovoltaics) við föngun sól­ar­orkunnar er líka eins og fyrr segir mögu­leg mjög víða. Meira að segja inni í miðri Svíþjóð.

Gígavatts-löndin

Sam­bandið SolarPower Europe, sem í eiga sæti full­trúar ESB-ríkja, hefur ákveðna skil­grein­ingu þegar kemur að stór­fram­leið­endum raf­magns úr sól­ar­orku. Löndin sem mest virkja þá orku eru kölluð „gíga­vatts-löndin“ og er þar átt við þau sem eru með sól­ar­orku­ver sem sam­an­lagt eru að minnsta kosti 1 gíga­vatt að afli eða á pari við afl eins kjarnakljúfs. Með 1 GW er hægt að fram­leiða raf­magn fyrir um 300 þús­und heim­ili, segir í grein Euronews um málið.

Þýska­land, Holland og Spánn eru komin þangað. Þau eru líka stór og geta fengið góð til­boð í stóra sól­vanga. Danmörk er einnig á lista yfir „gíga­vatts-löndin“ og Ítalía, Svíþjóð og Belgía eru í þann veg­inn að ná þeim mörkum.

Sól­vangar hafa ýmsa kosti. Það er fljót­legt að setja þá upp þegar til­skilin leyfi eru komin. Þeir vinna vel með vind­orku­verum og vatns­afls­verum en fram­leiðsla í öllum þessum orku­verum sveifl­ast með veðri og vindum. Og birtu.

Þeir eiga ekki heima alls staðar að mati almenn­ings og stjórn­valda en hvert ríki ESB setur sínar reglur um hvar orku­vinnsla á að vera. Fram­kvæmda­stjórn ESB hefur hins vegar hvatt aðilda­ríkin til að vinna að skipu­lagi vegna sól­ar­orku­vera, að skoða og ákveða hvar hægt er að koma þeim fyrir.

En sól­ar­orku­ver eru ekki án umhverf­is­á­hrifa. Þau taka mikið pláss. Af þeim er sjón­mengun, þau gjör­bylta ásýnd lands, og geta haft áhrif á líf­fræði­lega fjöl­breytni sem er einn lyk­il­þáttur í því að vernda vist­kerfi heims­ins og þar með lofts­lagið. Því er svo mik­il­vægt að vandað sé til verka þegar þeim eru valdir staðir.

Sólarsellur geta veitt skjól

Sunak hefur áhyggjur af land­bún­að­ar­landi en margir sér­fræð­ingar í sól­ar­orku­verum vilja meina að sól­ar­sellur á rækt­ar­landi geti jafn­vel stutt við vöxt og við­gang plantna. Þær geti til dæmis gefið plöntum skjól fyrir brenn­andi sól­inni í hita­bylgjum.

Til­raunir með þetta eru þegar hafnar, m.a. í Þýska­landi og Frakk­landi. SolarPower Europe segja rann­sóknir sýna að líf­fræði­leg fjöl­breytni geti við ákveðnar aðstæður auk­ist með því að setja niður sól­ar­sellur.

Einnig er hægt að nota sól­ar­sellur sem hljóð­manir, þ.e. að segja: Koma þeim fyrir í nágrenni umferð­ar­þungra vega. Þetta hefur m.a. verið gert í Hollandi og Sviss. Þessar svoköll­uðu „sól­ar­orku-hrað­brautir“, sem vinna á skipu­lega að á næstu árum, gætu orðið um 55 GW að afli.

Bláir sólvangar

Í Rúmeníu, Póllandi og Búlgaríu hefur sól­ar­orku­verum verið komið fyrir í aflögðum kola­námum.

Þá hafa Portú­galir gert til­raunir með að koma upp „bláum sól­vöngum“, fljót­andi sól­ar­orku­verum á vatni. Stærst slíka vera í heimi hefur verið reist í Alqueva-uppi­stöðu­lón­inu.

En sól­ar­orku­ver hafa ekki aðeins áhrif á ásýnd lands og land­notkun. Í hverri ein­ustu sól­ar­sellu er að finna sjald­gæf jarð­efni, málma og annað, sem í fyrsta lagi eru einmitt sjald­gæf en í öðru lagi í ein­hverjum til­vikum unnin úr jörðu í ríkjum á borð við Austur-Kongó þar sem mann­rétt­inda­brot eru framin á starfs­mönnum í námu­vinnslu. Og þessi námu­vinnsla skilur eftir sig spor. Til hennar eru not­aðar vélar sem ganga fyrir jarð­efna­elds­neyti. Flytja þarf efnin frá upp­runa­stað með skipum eða flug­vélum sem nota jarð­efna­elds­neyti.

Þetta kolefn­is­fót­spor sól­ar­sella fer eðli máls­ins sam­kvæmt eftir því hvar þær eru fram­leiddar og hversu mikið jarð­efna­elds­neyti þarf til fram­leiðsl­unnar. Sem dæmi þá voru 64 pró­sent allrar raf­orku í Kína fram­leidd með kolum árið 2020. Og meira en 60 pró­sent allra sól­ar­sella sem fram­leiddar eru koma einmitt frá því landi. Það er því ljóst að kol eru í stórum stíl notuð til fram­leiðslu á sól­ar­sellum.

Efnin geta svo verið meng­andi. Sól­ar­sellur eru flókin fyr­ir­bæri. Það þarf jú mjög sér­staka tækni við að vinna raf­orku úr sól­ar­ljósi. Í þeim er því að finna marg­vís­leg efni, sum hættu­leg mönnum og öðrum dýrum eða vist­kerfum í heild. Má þar nefna efna­sam­setn­ingar á borð við kop­ar­sel­eníð (copper sel­enide), þung­málm­inn kadmíum telluríð (Cadium Telluride) og brenni­steins­sýru.

Að síð­ustu þá eru fáar góðar leiðir til að end­ur­vinna þau efni sem notuð eru í sól­ar­sellum. Þær enda því, að minnsta kosti sem komið er, flestar sem land­fyll­ingar. Sem er auð­vitað ekki sjálf­bært og taka þarf með í reikn­ing­inn þegar talað er um slík orku­ver sem „umhverf­is­væn“ og „græn“.

[adspot]

Sól­ar­orka er vissu­lega end­ur­nýj­an­leg. En öflun hennar gengur á aðrar auð­lindir, auð­lindir sem sumar eru af skornum skammti og ekki eru end­ur­unnar – end­ur­nýttar – nema að mjög litlu leyti. Metn­að­ar­full áform hafa verið viðruð til að breyta þessu.

Það sem hins vegar er oft bent á er að vinnsla kola, olíu og gass er líka meng­andi. Til hennar eru einnig notuð hættu­leg efni og losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda við bruna þeirra eru svo auð­vitað gríð­ar­leg.

Þannig að í þessum sam­an­burði hafa sól­ar­sellur vinn­ing­inn. Og sé nýt­ing þeirra góð og þær not­aðar eins lengi og mögu­legt er, er ávinn­ing­ur­inn mik­ill.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár