Þingmenn Framsóknar vilja sjá ríkisfyrirtæki um rafeldsneytisframleiðslu

Í þings­á­lykt­un­ar­til­lögu frá þing­flokki Fram­sóknar er lagt til að rík­is­stjórnin skoði stofnun fyr­ir­tækis um raf­elds­neyt­is­fram­leiðslu, sem yrði í meiri­hluta­eigu rík­is­ins. Hafa skuli til hlið­sjónar hvernig Noregur byggði upp olíu­vinnslu sína.

Stefán Vagn Stefánsson þingmaður Framsóknar er fyrsti flutningsmaður tillögunnar.
Stefán Vagn Stef­áns­son þing­maður Fram­sóknar er fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar. Mynd: Bára Huld Beck

Þing­flokkur Fram­sókn­ar­flokks­ins leggur til rík­is­stjórnin skoði stofnun rík­is­fé­lags um raf­elds­neyt­is­fram­leiðslu á Íslandi, og að við frum­at­hugun í þeim efnum verði litið til starf­semi Equinor í Noregi, sem áður hét Statoil.

Þings­á­lykt­un­ar­til­laga flokks­ins um þetta mál hefur verið lögð fram á Alþingi, en á bak við hana standa allir þing­menn flokks­ins sem ekki sitja sem ráð­herrar. Stefán Vagn Stef­áns­son er fyrsti flutn­ings­maður til­lög­unnar.

Ábatinn renni til þjóðarinnar

Í grein­ar­gerð með til­lögu þing­manna Fram­sóknar segir að fram­leiðsla raf­elds­neytis, þá vetnis eða ann­ars raf­elds­neytis í formi ammón­íaks, met­anóls eða met­ans, séu græn tæki­færi sem bíði þess að vera nýtt. Fram­tíð­ar­tæk­in­færin í þessum efnum séu mikil, og mik­il­vægt sé að Ísland verði sjálf­bært er kemur að öflun raf­elds­neytis.

En þing­flokknum er ljós­lega ekki sama hvernig staðið verður að því að nýta þau tæki­færi sem liggja í fram­leiðsl­unni, heldur vill horfa til þess að stofnað verði rík­is­fé­lag um fram­leiðsl­una til þess að tryggja að stærsti hluti ábatns af fram­leiðsl­unni renni til þjóð­ar­innar.

[adspot]

„Ef horft er til Noregs og stofn­unar rík­is­ol­íu­fé­lags­ins Statoil árið 1972 ætti öllum að vera ljós ábati norska rík­is­ins af þeirri ákvörðun. Norski olíu­sjóð­ur­inn er einn sá stærsti í heim­inum í dag og hefur ger­breytt stöðu Norð­manna til upp­bygg­ingar inn­viða og þjón­ustu við íbúa um allan Noreg. Ísland er í kjör­stöðu til að nýta auð­lindir sínar til fram­leiðslu raf­elds­neytis, bæði fyrir inn­an­lands­fram­leiðslu og mögu­lega til útflutn­ings, og styrkja þannig tekju­stofna rík­is­sjóðs,“ segir í grein­ar­gerð­inni með þings­á­lykt­un­ar­til­lögu fram­sókn­ar­fólks.

Þar segir einnig að það megi velta upp hvort tekjur af slíku fyr­ir­tæki, ef af yrði, ættu að renna í sam­fé­lags­sjóð líkt og þeim sem Norðmenn hafa komið sér upp í tengslum við olíu­vinnslu sína.

Í grein­ar­gerð fram­sókn­ar­fólks segir einnig að til að stofnun rík­is­fé­lags um fram­leiðsl­una geti orðið að veru­leika skipti „stuðn­ingur og aðgerðir opin­berra aðila og nýsköp­un­ar­sjóða afar miklu máli svo mögu­leiki sé á að skapa það umhverfi sem best verður á kosið og styðja við þróun tækni og lausna“.

„Við á Íslandi erum í sterkri stöðu til orku­skipta. Þar af leið­andi þurfum við að gæta þess að tæki­færin sem liggja fyrir í þessum mála­flokki renni okkur ekki úr greipum. Tæknin er til staðar og okkur ber að nýta hana í þágu þjóð­ar­innar,“ segir þing­flokkur Fram­sóknar í til­lögu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár