Lítil rafmyntarfyrirtæki verða undanskilin greiðslu eftirlitskostnaðar

Frumvarp um að breyta pen­inga­þvætt­is­lögum svo þau nái yfir þá sem stunda við­skipti með sýnd­arfé var afgreitt úr nefnd í gær. Sam­þykkja þarf frum­varpið fyrir þing­lok til að hindra refsi­verðra starf­semi sem kunni að þríf­ast í skjóli þess nafn­leysis.

Nokkuð breið póli­tísk sátt var um það í meiri­hluta efna­hags- og við­skipta­nefndar að und­an­skilja fyr­ir­tæki sem sýsla með raf­myntir eða ann­ars konar sýnd­arfé frá greiðslu 700 þús­und króna árgjalds vegna opin­bers eft­ir­lits Fjár­mála­eft­ir­lits­ins með fjár­mála­fyr­ir­tækjum. Slík fyr­ir­tæki þurfa þó að skrá sig hjá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu þótt þeirri skrán­ingu fylgi ekki kostn­aður. Eini flokk­ur­inn sem styður ekki frum­varpið eru Píratar.

[links]Þetta kemur fram í nefnd­ar­á­liti hennar þegar nefndin afgreiddi frum­varp Sig­ríðar Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra um að breyta lögum um aðgerðir gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka með þeim hætti að þjón­ustu­veit­endur þeirra sem stunda við­skipti og fyr­ir­huguð við­skipti með raf­eyri og sýnd­ar­fjár verði gert skylt að til­kynna grun um pen­inga­þvætti eða fjár­mögnun hryðju­verka til lög­reglu úr nefnd í gær.

Breyt­ingin er til­komin eftir að nefnd­inni var bent á að mörg af þeim fyr­ir­tækjum sem fáist við þjón­ustu af þessu tagi séu „lítil sprota­fyr­ir­tæki með fáa starfs­menn og að gjald af þess­ari fjár­hæð gæti reynst þeim mjög íþyngj­andi. Nefndin telur að almennt beri að virða þá meg­in­reglu að þeir sem sæta eft­ir­liti á fjár­mála­mark­aði skuli standa straum af kostn­aði við eft­ir­litið. Þrátt fyrir það telur nefndin mik­il­vægt að leggja ekki stein í götu lít­illa fyr­ir­tækja sem eru að stíga sín fyrstu skref á mark­aði þar sem ör tækni­þróun og nýsköpun ráða ríkjum, einkum þegar ekki liggur fyrir hver raun­veru­legur kostn­aður af eft­ir­lit­inu verður.“

[adspot]Að öðru leyti lagði efna­hags- og við­skipta­nefnd til að frum­varpið verði sam­þykkt óbreytt.

Liggur á að samþykkja frumvarpið

Kjarninn fjall­aði um frum­varpið í lok síð­asta mán­aðar. Í grein­ar­gerð þess seg­ir: „Sýnd­ar­fjár­við­skipti fara fram utan hins hefð­bundna fjár­mála­kerfis og geta aðilar sem stunda pen­inga­þvætti, hryðju­verka­sam­tök eða hópar með auð­veldum hætti milli­fært fjár­muni yfir landa­mæri eða innan sýnd­ar­fjár­mark­að­ar­ins nafn­laust og án þess að færslur þeirra sæti athug­un. Til að stemma stigu við refsi­verðri starf­semi sem kann að þríf­ast í skjóli þess nafn­leysis sem fylgir sýnd­ar­fjár­við­skiptum er nauð­syn­legt að útvíkka gild­is­svið lag­anna svo að fram­an­greindir þjón­ustu­veit­endur falli undir lög­in.“

Hætt sé við því að verði slík starf­semi látin óátalin þar til ný heild­ar­lög um pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka, sem leggja á fram í haust, verði sam­þykkt muni margir aðilar sjá sér hag í því að koma upp slíkri starf­semi áður en það frum­varp nái fram að ganga og geti starfað eft­ir­lits­laust í marga mán­uði. „Reynslan sýnir að fjölgun þjón­ustu­veit­enda sýnd­ar­fjár er hröð. Á heims­vísu voru hrað­bankar fyrir sýnd­arfé sam­tals 951 þann 1. jan­úar 2017, 2.048 þann 1. jan­úar 2018 og 2.534 þann 20. mars 2018. Það er því mik­il­vægt að bregð­ast við með skjótum hætti og gera þessa þjón­ustu­veit­endur til­kynn­ing­ar- og eft­ir­lits­skylda.“

Bæði Seðla­banki Íslands og Fjár­mála­eft­ir­litið styðja frum­varpið og leggja áherslu að það verði sam­þykkt.

Vildi tveggja ára biðtíma

Ýmsir aðilar sem starfa á þessum mark­aði komu fyrir nefnd­ina og skil­uðu umsögnum um frum­varpið. Einn þeirra, Jason Scott, eig­andi og stjórn­andi fyr­ir­tæk­is­ins Icetor ehf., sem á og rekur fyrsta bitcoin-hrað­bank­ann sem settur hefur verið upp á Íslandi, vildi að íslensk stjórn­völd bíði með það í tvö ár að reglu­væða með nokkrum hætti starfs­um­hverfi staf­rænna raf­mynta og sýnd­ar­fjár á borð við bitcoin.

Þess í stað lagði Scott, sem opn­aði bitcoin-hrað­bank­ann sinn hér­lendis í vor, til að nán­ara sam­tal eigi sér stað milli raf­mynta­iðn­að­ar­ins, sem er í miklum vexti á Íslandi, og lög­gjafans. Hann varar við því að strangar reglur muni gera það að verkum að iðn­að­ur­inn muni leita til ann­arra landa þar sem reglu­verkið er hag­stæð­ara. Nefnir hann Möltu, Eist­land og Sviss sem dæmi um slík lönd.

Þá fer Scott fram á að settur yrði veltu­þrösk­uldur og þau fyr­ir­tæki sem fari ekki yfir hann þurfi ekki að gang­ast undir sams­konar upp­lýs­inga­skyldu og þau sem stærri eru.

Nefnd­inni þótti ekki til­efni til að taka til­lit til athuga­semda Scott.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

rafmyntir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár