Seðlabankinn spáir dýpri kreppu og hægari efnahagsbata en hann gerði í sumarlok

Seðla­bank­inn telur að 750 þús­und ferða­menn muni heim­sækja Ísland á næsta ári. Það eru 250 þús­und færri en bank­inn spáði í ágúst og 150 þús­und færri en for­sendur fjár­laga segja til um. Afleið­ingin verður minni hag­vöxtur 2021 en reiknað hafði verið með.

Það verður bið á því að örtröð myndist við landganga í Leifsstöð, samkvæmt spá Seðlabanka Íslands.
Það verður bið á því að örtröð mynd­ist við land­ganga í Leifs­stöð, sam­kvæmt spá Seðla­banka Íslands. Mynd: Bára Huld Beck

„Mikil fjölgun COVID-19-smita á haust­dögum og hertar sótt varnir valda því að dregið hefur úr þeirri við­spyrnu í efna­hags­líf­inu sem hófst á þriðja fjórð­ungi árs­ins eftir sögu­legan sam­drátt á öðrum árs­fjórð­ungi. Efna­hags­horfur hafa því versnað og gerir nóv­em­ber­spá Pen­inga­mála ráð fyrir 8,5 pró­sent sam­drætti lands­fram­leiðslu á þessu ári sem er ríf­lega 1 pró­sentu meiri sam­dráttur en spáð var í ágúst.“

Þetta er meðal þess sem fram kemur í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­banka Íslands sem birt var í morgun sam­hliða ákvörðun hennar um að lækka stýri­vexti á Íslandi í fyrsta sinn niður fyrir eitt pró­sent. Þeir eru nú 0,75 pró­sent.

Í spá Seðla­bank­ans er auk þess spáð minni hag­vexti á næsta ári en áður var gert, að hann verði 2,3 pró­sent í stað 3,4 pró­sent líkt og spáð var í ágúst.

Að mati nefnd­ar­innar er óvissa um efna­hags­horfur mikil og mun þróun efna­hags­mála að tölu­verðu leyti ráð­ast af fram­vindu far­sótt­ar­innar. „Gert er ráð fyrir að hún verði að mestu gengin niður í lok þessa árs og að víð­tæk bólu­setn­ing hafi náðst hér á landi og í helstu við­skipta­löndum um mitt næsta ár. Efna­hags­bat­inn verður enn hæg­ari ef erf­ið­ara reyn­ist að ráða nið­ur­lögum far­sótt­ar­innar. Hið sama á við ef heim­ilin ganga hægar á þann sparnað sem byggst hefur upp í far - sótt­inni. Gangi betur í viður­eign­inni við far­sótt­ina eða ef heim­ilin ganga hraðar á eigin sparnað verður efna­hags­bat­inn með sama hætti kröft­ugri.“

Ferðamenn verða færri en forsendur fjárlaga segja til um

Í rit­inu Pen­inga­mál, sem Seðla­bank­inn birti sam­hliða vaxa­táá­kvörðun sinni í dag, segir að ástæða þess að spá bank­ans fyrir næsta ár er svart­ari nú en í ágúst er sú að hann telur horfur á að færri ferða­menn komi til lands­ins á árinu 2021 en áður var reiknað með, en í for­sendum fjár­laga var til að mynda gengið út frá því að þeir yrðu 900 þús­und. „Atvinnu­leysi eykst því meira og verður þrá­lát­ara. Þótt spáð sé kröft­ugum hag­vexti árin 2022-2023 næst fram­leiðslu­stig árs­ins 2019 ekki fyrr en árið 2023,“ segir í Pen­inga­málum.

Mikil óvissa sé um horfur í ferða­þjón­ustu um heim allan og um hvenær verði horfið frá hömlum á ferða­lög milli heims­álfa, einkum milli Evrópu og Norður-Ameríku.

[adspot]„Banda­ríkja­menn voru fjöl­menn­asti hópur ferða­manna sem hingað komu áður en far­ald­ur­inn hófst eða um fimmt­ungur þeirra. Ekki er gert ráð fyrir að ferða­lögum fjölgi að ráði fram á annan fjórð­ung næsta árs en þá er talið að ferða­þjón­usta taki við sér þegar far­sóttin rénar og dregið verður úr tak­mörk­unum á ferða­lögum milli landa.„

Seðla­bank­inn áætlar því að um 750 þús­und erlendir ferða­menn komi til lands­ins á næsta ári sem eru umtals­vert færri ferða­menn en í ágúst­spánni sem áætl­aði að þá kæmu um ein milljón far­þegar, og um 150 þús­und færri en for­sendur fjár­laga gerðu ráð fyrir.

Jákvæðu tíð­indin eru þó þau að gert er ráð fyrir að fram­leiðslu­geta ferða­þjón­ustu varð­veit­ist að miklu leyti og því geti efna­hags­bat­inn orðið hraður þegar fólk fer aftur að ferð­ast milli landa og að um 1,5 millj­ónir far­þega komi til lands­ins árið 2022.

Búinn að kaupa fyrir tvo milljarða

Fjár­mögn­un­ar­þörf rík­is­sjóðs hefur auk­ist eftir því sem áhrif far­ald­urs­ins verða lang­vinn­ari og vega vænt­ingar um aukna skuld­setn­ingu rík­is­sjóðs. Seðla­bank­inn telur að hún vegi þungt í hækkun lang­tíma­vaxta að und­an­förnu ásamt því að erlendir aðilar, meðal ann­ars evr­ópska skulda­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið BluBay Asset Mana­gement, hafi selt rík­is­skulda­bréf fyrir um 45 millj­arða króna frá því í byrjun ágúst.

[links]Bankinn hefur verið gagn­rýndur fyrir að eiga sinn þátt í þeirri hækkun sjálfur vegna þess að bank­inn hefur ekki verið eins virkur í að kaupa rík­is­skulda­bréf og hann boð­aði í vor. Þá til­kynnti bank­inn að hann myndi hefja kaup á rík­is­skulda­bréfum á eft­ir­mark­aði til að tryggja enn frekar að laus­ara taum­hald pen­inga­stefn­unnar miðlist til heim­ila og fyr­ir­tækja og að kaupin gætu numið allt að 150 millj­örðum króna. Hingað til hefur Seðla­bank­inn keypt fyrir tvo millj­arða króna. 

Í grein­ingu Íslands­banka á stöð­unni, sem birt var í síð­ustu viku, keom fram að ávöxt­un­ar­krafa langra verð­tryggðra rík­is­skulda­bréfa sé nú tæpu pró­sentu­stigi hærra en í lok ágúst­mán­að­ar, en hún leiðir af sér hækkun lang­tíma­vaxta. Sam­kvæmt Íslands­banka á þessi þróun engan sinn líka meðal ann­arra þró­aðra ríkja, þar sem stjórn­völd hafi víð­ast hvar reynt að halda vöxtum niðri í kór­ónu­krepp­unn­i. 

Í grein­ingu sinni bætir Íslands­banki við að hærri lang­tíma­vextir séu farnir að end­ur­spegl­ast í versn­andi láns­kjörum heim­ila og fyr­ir­tækja, en hann hækk­aði sjálfur vexti á hús­næð­is­lánum sínum í lok síð­asta mán­aðar vegna þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár