Seðlabankinn lækkar vexti niður í 0,75 prósent

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að lækka meg­in­vexti bank­ans um 0,25 pró­sentu­stig.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri. Mynd: Bára Huld Beck

Pen­inga­­­stefn­u­­­nefnd Seðla­­­banka Íslands hefur ákveðið að meg­in­vextir bank­ans verði 0,75 pró­sent, og því lækka þeir um 0,25 pró­sent frá því sem áður var. Vextir hafa verið lækk­­­­aðir fjórum sinnum frá því að yfir­­­stand­andi efna­hags­á­­­stand vegna COVID-19 far­ald­­­ur­s­ins hóf­st, og alls hafa stýri­vextir lækkað um fjögur pró­­­­­­­sent­u­­­­­­­stig frá því í maí í fyrra.

Vext­irnir lækk­uðu síðar í maí, þegar þeir voru lækk­aðir um 0,75 pró­sentu­stig niður í eitt pró­sent.

Vext­irnir nú, 0,75 pró­sent, eru lægstu meg­in­vextir sem Seðla­banki Íslands hefur nokkru sinni boðið upp á.

Í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar segir að mikil fjölgun COVID-19-smita á haust­dögum og hertar sótt­varnir valdi því að dregið hefur úr þeirri við­spyrnu í efna­hags­líf­inu sem hófst á þriðja fjórð­ungi árs­ins eftir sögu­legan sam­drátt á öðrum árs­fjórð­ungi. „Efna­hags­horfur hafa því versnað og gerir nóv­em­ber­spá Pen­inga­mála ráð fyrir 8,5 pró­sent sam­drætti lands­fram­leiðslu á þessu ári sem er ríf­lega 1 pró­sentu meiri sam­dráttur en spáð var í ágúst. Einnig er spáð minni hag­vexti á næsta ári. Óvissa um efna­hags­horfur er mikil og mun þróun efna­hags­mála að tölu­verðu leyti ráð­ast af fram­vindu far­sótt­ar­innar.“

[adspot]Þótt verð­bólga hafi auk­ist frá því í vor, og sé nú 3,6 pró­sent, hafi verð­bólgu­vænt­ingar til með­al­langs og langs tíma lítið breyst. Samkvæmt spá Seðla­bank­ans eru horfur á að verð­bólga verði um 3,7 pró­sent að með­al­tali fram á næsta ár en taki þá að hjaðna enda sé slak­inn í þjóð­ar­bú­inu mik­ill. „Þótt verð­bólga hafi auk­ist tíma­bundið og horfur séu á að hún verði meiri en búist var við í ágúst gerir traust­ari kjöl­festa verð­bólgu­vænt­inga pen­inga­stefnu­nefnd kleift að bregð­ast við versn­andi efna­hags­horfum með afger­andi hætti. Lækkun vaxta og aðrar aðgerðir sem Seðla­bank­inn hefur gripið til und­an­farna mán­uði hafa stutt við inn­lenda eft­ir­spurn og dregið úr nei­kvæðum áhrifum efna­hags­á­falls­ins.“

Mikill þrýst­ingur hefur verið á Seðla­bank­ann að kaupa rík­is­skulda­bréf af meiri þrótti, líkt og hann boð­aði að yrði gert í vor. Ástæðan er meðal ann­ars sú að ávöxt­un­ar­krafa langra verð­tryggðra rík­is­skulda­bréfa hefur hækkað, sem hefur aftur leitt til vaxta­hækanna.

[links]Sú aðgerð kall­ast magn­bundin íhlutun (e. quantita­tive easing) og hefur hún verið notuð af seðla­bönkum víða um heim­inn til að örva fjár­fest­ingar og lán­töku með því að færa lang­tíma­vexti nið­ur. Í apríl til­kynnti bank­inn að hann ætl­aði að kaupa bréf fyrir allt að 150 millj­arða króna. Af þessum 150 millj­örðum til­kynnti bank­inn að hann gæti keypt fyrir allt að 60 millj­örðum króna á þessu ári, eða fyrir allt að 20 millj­örðum á hverjum árs­fjórð­ungi í mesta lag­i.

Hins vegar hefur lítið orðið af þeim kaupum hingað til. Á milli apr­íl- og júní­mán­aðar keypti Seðla­bank­inn rík­is­skulda­bréf fyrir ein­ungis tæp­lega 900 millj­ónir króna og á þriðja árs­fjórð­ungi keypti hann ekk­ert. Sam­kvæmt efna­hags­reikn­ingi Seðla­bank­ans virð­ist hann svo hafa selt rík­is­skulda­bréf í síð­asta mán­uði, þar sem rík­is­skulda­bréfa­eign hans minnk­aði um 40 millj­ónir króna. 

Kaupin hafa verið aukin á und­an­förnum vikum og Kjarninn greindi frá því á mánu­dag að frá 9. októ­ber og til þess hefði bank­inn keypt fyrir rúma 1,5 millj­arða í rík­is­skulda­bréfum með gjald­daga árið 2028 og 2031 (RIK­B28 og RIK­B31).

Í yfir­lýs­ingu pen­inga­stefnu­nefndar í dag segir að hún muni áfram „nota þau tæki sem nefndin hefur yfir að ráða, m.a. kaup Seðla­bank­ans á rík­is­skulda­bréfum, til að styðja við þjóð­ar­bú­skap­inn og tryggja að laus­ara taum­hald pen­inga­stefn­unnar miðlist með eðli­legum hætti til heim­ila og fyr­ir­tækja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár