Aukinn kraftur í magnbundna íhlutun Seðlabankans

Þrátt fyrir að hafa til­kynnt allt að 150 millj­arða króna kaup á rík­is­skulda­bréfum í vor hafði Seðla­bank­inn aðeins keypt innan við eitt pró­sent af þeim fimm mán­uðum seinna. Á síð­ustu vikum hefur bank­inn þó aukið kaup sín tölu­vert.

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands
Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands Mynd: Seðlabanki Íslands.

Seðla­bank­inn hefur keypt rík­is­skulda­bréf fyrir einn og hálfan millj­arð króna á síð­ustu fimm vikum, en þar af keypti hann fyrir tæpar 500 millj­ónir króna í gær. Þetta er virkasta tíma­bil Seðla­bank­ans á skulda­bréfa­mark­aði frá því að hann hóf magn­bundna íhlutun í apríl síð­ast­liðnum.

Magnbundin íhlutun

Þann 23. mars til­kynnti pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands fyrst að bank­inn hygð­ist hefja kaup á rík­is­skulda­bréfum. Þessi aðgerð kall­ast magn­bundin íhlutun (e. quantitative easing) og hefur hún verið notuð af seðla­bönkum víða um heim­inn til að örva fjár­fest­ingar og lán­töku með því að færa lang­tíma­vexti niður.

Mánuði seinna kom nán­ari útlistun á fyr­ir­hug­uðum kaupum bank­ans, en þá var til­kynnt að heild­ar­fjár­hæð hennar gæti numið allt að 150 millj­örðum króna. Af þessum 150 millj­örðum til­kynnti bank­inn að hann gæti keypt fyrir allt að 60 millj­örðum króna á þessu ári, eða fyrir allt að 20 millj­örðum á hverjum árs­fjórð­ungi í mesta lagi.

Hins vegar hefur lítið orðið af þeim kaupum hingað til. Á milli apríl- og júní­mán­aðar keypti Seðla­bank­inn rík­is­skulda­bréf fyrir ein­ungis tæp­lega 900 millj­ónir króna og á þriðja árs­fjórð­ungi keypti hann ekk­ert. Samkvæmt efna­hags­reikn­ingi Seðla­bank­ans virð­ist hann svo hafa selt rík­is­skulda­bréf í síð­asta mán­uði, þar sem rík­is­skulda­bréfa­eign hans minnk­aði um 40 millj­ónir króna.

Í fund­ar­gerð pen­inga­stefnu­nefndar Seðla­bank­ans við síð­ustu vaxta­á­kvörðun í byrjun októ­ber skrifar hún að ekki hafi verið ástæða til umfangs­mik­illar íhlut­unar þar sem fram­boð á rík­is­bréfum hefði enn ekki auk­ist til muna og verð­myndun og virkni mark­aða hefði verið eðli­leg. Nefnd­ar­menn væru sam­mála um að ekki væri til­efni til kröft­ugri við­bragða að þessu sinni.

Langtímavextir hafa hækkað

Á sama tíma og Seðla­bank­inn hefur haldið aftur að sér í rík­is­skulda­bréfa­kaupum hefur svo krafan á rík­is­skulda­bréfum til langs tíma hækkað nokkuð, en slíka þróun á magn­bundin íhlutun að koma í veg fyrir.

Í grein­ingu Íslands­banka á stöð­unni, sem birt var í síð­ustu viku, kemur fram að ávöxt­un­ar­krafa langra verð­tryggðra rík­is­skulda­bréfa sé nú tæpu pró­sentu­stigi hærra en í lok ágúst­mán­aðar. Samkvæmt Íslands­banka á þessi þróun engan sinn líka meðal ann­arra þró­aðra ríkja, þar sem stjórn­völd hafi víð­ast hvar reynt að halda vöxtum niðri í kór­ónu­krepp­unni.

Þessar vaxta­hækk­anir hafa haft áhrif á lang­tíma­horfur, ef marka má árs­fjórð­ungs­lega könnun Seðla­bank­ans á vænt­ingum mark­aða. Í síð­ustu könnun, sem birt var á mið­viku­dag­inn í síð­ustu viku, vænta mark­aðs­að­ilar þess að lang­tíma­vextir verði 0,7 pró­sent á næstu tíu árum. Þetta er ekki langt frá vænt­ingum þeirra á fyrsta árs­fjórð­ungi, þar sem þeir töldu vext­ina munu verða 0,9 pró­sent. Með öðrum orðum hefur magn­bundin íhlutun Seðla­bank­ans haft til­tölu­lega lítil áhrif á vænt­ingar á skulda­bréfa­mark­aði.

Í grein­ingu sinni bætir Íslands­banki við að hærri lang­tíma­vextir séu farnir að end­ur­spegl­ast í versn­andi láns­kjörum heim­ila og fyr­ir­tækja, en hann hækk­aði sjálfur vexti á hús­næð­is­lánum sínum í lok síð­asta mán­aðar vegna þess.

Í umfjöllun Frétta­blaðs­ins um málið síð­asta fimmtu­dag var haft eftir Agnari Tómasi Möller, sjóðs­stjóra skulda­bréfa hjá Kviku banka, að líkur væru á að allir fastir vextir á íbúða­lánum bank­ana myndi hækka á næst­unni, að öllu óbreyttu, vegna þess­arar þró­unar.

Kaupin aukast

Samkvæmt Frétta­blað­inu var talið að Seðla­bank­inn hefði ákveðið að vera í bið­stöðu eftir að þangað til þrýst­ingur á mark­aði vegna sölu evr­ópska skulda­bréfa­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins BlueBay Asset Mana­gement á íslenskum rík­is­skulda­bréfum minnk­aði. BlueBay seldi öll útistand­andi rík­is­skulda­bréf sín fyrir meira en 20 millj­arða króna síð­ustu vik­una í októ­ber.

Í kjöl­farið hafa svo kaup Seðla­bank­ans á rík­is­skulda­bréfum auk­ist nokkuð, þótt þau sé enn langt undir yfir­lýstu 20 millj­arða króna hámarki á þessum fjórð­ungi. Frá 9. októ­ber hefur bank­inn keypt fyrir rúma 1,5 millj­arða í rík­is­skulda­bréfum með gjald­daga árið 2028 og 2031 (RIKB28 og RIKB31), en tæpur þriðj­ungur af þeirri upp­hæð var keyptur í gær, sam­kvæmt við­skipta­kerfi Kaup­hall­ar­innar. Því hafa kaupin á rík­is­skulda­bréfin verið meiri á síð­ustu fimm vikum heldur en þau voru í á fyrstu fimm mán­uðum magn­bund­innar íhlut­unar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár