Vextir hækkaðir um 0,5 prósentustig

Seðla­bank­inn hefur ákveðið að hækka meg­in­vexti sína um hálft pró­sentu­stig vegna hækk­andi verð­bólgu. Nokkur óvissa er um fram­vindu efna­hags­mála, en bank­inn spáir þó meiri hag­vexti en áður fyrir næsta ár.

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bank­ans um 0,5 pró­sentu­stig og verða þeir því 2 pró­sent. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu nefnd­ar­innar sem birt var á vef bank­ans í morgun.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni hafa hag­vaxt­ar­horfur batnað nokkuð, en búist er við að hag­vöxt­ur­inn muni nema 4 pró­sentum í ár og 5 pró­sentum á næsta ári. Hins vegar segir nefndin að óvissa sé enn mikil og þróun efna­hags­mála muni sem fyrr markast af fram­vindu far­sótt­ar­innar.

Nefndin segir að verð­bólgan, sem mæld­ist 4,5 pró­sent í októ­ber, hafi að stórum hluta vegna inn­lends kostn­að­ar­þrýst­ings, hækk­unar hús­næð­is­verðs und­an­farna mán­uði. Hins vegar bætir nefndin við að áhrif hækk­ana alþjóð­legs olíu- og hrá­vöru­verðs hafi einnig auk­ist. Hún segir einnig að und­ir­liggj­andi verð­bólga vera minni og hafa minnkað und­an­farna mán­uði.

Verð­bólgu­horfur hafa versnað nokkuð frá því í ágúst sem m.a. má rekja til þrá­lát­ari alþjóð­legra verð­hækk­ana, hrað­ari við­snún­ings í inn­lendum efna­hags­um­svifum og hækk­unar launa­kostn­aðar. Horfur eru á að verð­bólga auk­ist áfram á næstu mán­uðum en taki síðan að hjaðna enda hald­ist kjöl­festa verð­bólgu­vænt­inga við mark­mið.

Í lok til­kynn­ing­ar­innar ítrekar nefndin að hún muni beita þeim tækjum sem hún hefur yfir að ráða til að tryggja að verð­bólgan hjaðni aftur í mark­mið innan ásætt­an­legs tíma.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár