Herdís Steingrímsdóttir í peningastefnunefnd

For­sæt­is­ráð­herra hefur skipað Herdísi Stein­gríms­dóttur í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans næstu fimm árin. Herdís er hag­fræði­dós­ent við Copenhagen Business School, en hún tekur sæti Katrínar Ólafs­dóttur í nefnd­inni.

Herdís Steingrímsdóttir, hagfræðidósent við CBS, og Katrín Ólafsdóttir, hagfræðidósent við HR.
Herdís Stein­gríms­dóttir, hag­fræði­dós­ent við CBS, og Katrín Ólafs­dóttir, hag­fræði­dós­ent við HR. Mynd: Samsett

Herdís Stein­gríms­dóttir, hag­fræði­dós­ent við Copenhagen Business tekur sæti Katrínar Ólafs­dóttur í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Stjórn­ar­ráð­inu.

Herdís er með dokt­ors­próf í hag­fræði frá Columbia háskól­anum í New York og meist­ara­próf í stærð­fræði­legri hag­fræði og hag­rann­sóknum frá London School of Economics. Rann­sóknir Herdísar snúa að vinnu­mark­aðs­hag­fræði og hefur hún hlotið ýmsar við­ur­kenn­ingar fyrir störf sín á þeim vett­vangi.

Þá er Herdís með­limur og umsjón­ar­maður ýmissa rann­sókna­setra í Kaup­manna­höfn sem greina hag­fræði­leg úrlausn­ar­efni er varða líf­eyr­is­mál, ójöfnuð, hag­fræði heim­il­anna o.fl.

Herdís er reglu­legur pistla­höf­undur í Vís­bend­ingu, en þar hefur hún meðal ann­ars skrifað greinar um áhrif auk­innar fjar­vinnu á kynja­jafn­rétti á vinnu­mark­aðnum og jafn­ari skipt­ingu fæð­ing­ar­or­lofs á milli for­eldra.

Í síð­ustu viku skrif­aði svo Herdís um kynja­halla í háskólum á Íslandi, en þar er náms­þátt­taka karla mun minni heldur en kvenna. Samkvæmt henni þyrfti að grípa inn snemma til að minnka þennan halla, sem mögu­lega stafar af staðalí­myndum og félags­legum normum.

Herdís tekur sæti Katrínar Ólafs­dóttur, sem er hag­fræði­dós­ent við Háskól­ann í Reykja­vík. Katrín hefur setið í nefnd­inni í tíu ár, en hún verið ein af tveimur utan­að­kom­andi nefnd­ar­mönnum þar.

Aðrir nefnd­ar­menn pen­inga­stefnu­nefndar eru Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri, Rannveig Sig­urð­ar­dóttir vara­seðla­banka­stjóri pen­inga­stefnu og Gunnar Jak­obs­son vara­seðla­banka­stjóri fjár­mála­stöð­ug­leika. Þá situr Gylfi Zoega, hag­fræði­pró­fessor við Háskóla Íslands, einnig í nefnd­inni sem utan­að­kom­andi nefnd­ar­maður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár