Gerir ráð fyrir meiri verðbólgu

Seðla­bank­inn telur að verð­bólgan muni aukast á næstu mán­uðum og hjaðna hægt. Hann segir óviss­una um fram­vindu efna­hags­mála í náinni fram­tíð hafa auk­ist, meðal ann­ars vegna hættu á stríðs­á­tökum í Evrópu.

Rannveig Sigurðardóttir varaseðlabankastjóri peningastefnu og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri
Rannveig Sig­urð­ar­dóttir vara­seðla­banka­stjóri pen­inga­stefnu og Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri Mynd: Bára Huld Beck

Verð­bólgan gæti auk­ist enn frekar á þessum árs­fjórð­ungi og tekið langan tíma að hjaðna, en Seðla­bank­inn gerir ekki ráð fyrir að hún nái undir fjórum pró­sentum fyrr en á næsta ári. Enn fremur nefnir hann að hætta á stríðs­á­tökum í Evrópu hafi aukið óviss­una um efna­hags­horfur á næstu miss­erum. Þetta kemur fram í nýjasta hefti Pen­inga­mála, sem kom út í morgun.

Seðla­bank­inn gerir ráð fyrir að verð­bólgan verði 5,8 pró­sent að með­al­tali á yfir­stand­andi árs­fjórð­ungi. Gangi sú spá upp mun hún því aukast annað hvort í febr­úar eða mars, en hún nam 5,7 pró­sentum í jan­úar.

Hann segir að fram­lag hækk­unar hús­næð­is­verðs til verð­bólgu áfram vera mikið og skýra tæp­lega helm­ing af verð­bólg­unni, en bætir þó við að verð­bólga án hús­næðis hafi einnig auk­ist og mælist nú 3,7 pró­sent, sem er rúmu pró­sentu­stigi yfir verð­bólgu­mark­miði.

Ekki bara húsnæðisverð

Bankinn telur að verð­bólgan verði tölu­vert meiri á næstu miss­erum en spáð var í nóv­em­ber og býst við að hún verði 5,6 pró­sent á öðrum fjórð­ungi þessa árs. Þar spila vænt­ingar um áfram­hald­andi verð­hækk­anir á hús­næð­is­mark­aði stórt hlut­verk, en einnig er búist við að inn­flutt verð­bólga muni aukast á næstu mán­uðum.

Alþjóð­leg verð­bólga hefur nú þegar verið meiri en gert var ráð fyrir, en Seðla­bank­inn segir það meðal ann­ars vera vegna hækk­unar olíu- og hrá­vöru­verðs. Samkvæmt bank­anum mun lengri tíma taka að vinda ofan af fram­boðs­hnökrum vegna afleið­inga far­sótt­ar­innar, en hann telur þó flutn­ings­kostnað hafa náð hámarki.

Þar að auki nefnir Seðla­bank­inn að útlit sé fyrir mikla launa­hækk­ana í ár vegna svo­kall­aðs hag­vaxt­ar­auka kjara­samn­inga. Á sama tíma er ekki gert ráð fyrir miklum fram­leiðni­vexti starfs­fólks, svo bank­inn býst við að launa­kostn­aður á fram­leidda ein­ingu hækki tölu­vert. Þetta, ásamt alþjóð­legri verð­bólgu, segir bank­inn gera það að verkum að verð­bólga hjaðnar hægt í mark­mið.

Hætta á stríði nefnd í fyrsta skiptið

Líkt og áður nefnir Seðla­bank­inn að óvissa sé um fram­vindu efna­hags­mála og að spár hans byggj­ast á þeirri for­sendu að hvorki verði alvar­legt bakslag í bar­átt­unni við far­sótt­ina né óbreyttar fram­boðs­trufl­anir á heims­vísu.

Bankinn nefnir einnig hættu á stríðs­á­tökum í Evrópu sem annan óvissu­þátt um efna­hags­þróun á heims­vísu, en líkt og Kjarninn hefur áður fjallað um hefur tölu­vert her­lið Rússa safn­ast saman við landa­mæri Úkraínu. Þetta er í fyrsta skiptið sem bank­inn gerir grein fyrir þessum óvissu­þætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár