Hvað gerist ef Rússland ræðst inn í Úkraínu?

Banda­ríkja­for­seti gerir nú ráð fyrir að rúss­neski her­inn muni ráð­ast inn í Úkraínu. Evr­ópu­sam­bandið, Bretland og Banda­ríkin hóta því að grípa til harðra aðgerða, verði inn­rásin að veru­leika.

Utanríkisráðherra Bandaríkjanna, Antony Blinken, á blaðamannafundi með utanríkisráðherra Þýskalands, Annalena Baerbock, fyrr í dag.
Utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, Antony Blinken, á blaða­manna­fundi með utan­rík­is­ráð­herra Þýska­lands, Annalena Baerbock, fyrr í dag. Mynd: EPA

„Mitt gisk er að hann ráð­ist inn,“ sagði Joe Biden, Banda­ríkja­for­seti, um Vladimír Pútín, for­seta Rúss­lands, sem hefur sent allt að 100 þús­und her­menn að landa­mærum Úkraínu á síð­ustu dögum. Vest­ur­veldin hafa nú hvert á fætur öðru til­kynnt að slíkri inn­rás yrði mætt með hörðum aðgerðum, til dæmis með hugs­an­legri lokun Nord Stream gasleiðsl­unnar.

Vesturveldin samstíga

Samkvæmt umfjöllun Reuters-frétta­stof­unnar um málið hitti utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, Antony Blinken, ráð­herra Bret­lands, Frakk­lands og Þýska­lands í Berlín í dag til að ræða við­brögð við hugs­an­legri inn­rás Rússa. Á blaða­manna­fundi í kjöl­far fund­ar­ins sagði hann að löndin yrðu sam­stíga í sínum aðgerðum, en þær færu eftir því hvaða leið Rússland vilja fara.[adspot]

Yfir­lýs­ingar Blinken koma degi eftir að Biden sagði að Vest­ur­veldin væru ósam­mála um hvernig væri rétt að bregð­ast við „smá­vægi­legri inn­rás,“ en þau ummæli mættu mik­illi gagn­rýni frá leið­togum Evr­ópu­þjóða. Volodomyr Zelenskiy, for­seti Úkraínu, svar­aði Biden með Twitter-færslu þar sem hann sagði enga inn­rás vera smá­vægi­lega, á sama hátt og að ekk­ert mann­tjón væri smá­vægi­legt.

Banda­ríkja­stjórn dró til baka þessi ummæli seinna um kvöldið, þar sem Jen Psaki, upp­lýs­inga­full­trúi Hvíta húss­ins, sagði að Vest­ur­lönd myndu setja harðar og sam­ræmdar refsi­að­gerðir á Rússland ef rúss­neski her­inn fer yfir landa­mæri Úkraínu.

Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, og Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, voru sama sinnis og sögðu í dag að hvers kyns inn­rás myndi hafa slæmar afleið­ingar fyrir Rússa.

Gasleiðslan samningatæki

Kanslari Þýska­lands, Olaf Scholz, hefur áður sagt að hann væri opinn fyrir við­skipta­þving­unum við Rússland ef inn­rásin verður að veru­leika. Aðspurður um hvort slíkar þving­anir fælu í sér lok­unar á Nord Stream 2 gasleiðsl­unni, sem liggur í gegnum Eystra­salt, úti­lok­aði Scholz það ekki.

Kjarninn hefur áður fjallað um Nord Stream 2 leiðsl­una, en hún er að mestu í eigu rúss­neska rík­is­fyr­ir­tæk­is­ins Gazprom. Leiðslan er til­búin en hefur ekki enn verið tekin í gagnið, þar sem hún hefur ekki fengið heim­ild til þess frá þýskum yfir­völdum.

Lokun Nord Stream 2 myndi hafa mikil áhrif á efna­hag Rúss­lands, en helm­ingur útflutn­ings­tekna lands­ins er í gegnum útflutn­ing á jarð­gasi. Sergei Lavrov, utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands, sagði að leiðslan myndi auka orku­ör­yggi Evrópu og að til­raunir til að blanda póli­tík inn í það verk­efni yrðu ekki væn­legar til árang­urs.

SWIFT-lokun hent af borðinu

Aðrar teg­undir af við­skipta­þving­unum hafa einnig verið ræddar á meðal Vest­ur­veld­anna, en ein þeirra fól í sér að úti­loka Rússland úr alþjóð­lega SWIFT-greiðslu­kerf­inu. Hins vegar hurfu Evr­ópu­sam­bandið og Banda­ríkin frá þeim áformum fyrr í vik­unni, þar sem þau gætu leitt til upp­náms á fjár­mála­mörk­uðum og hvatt til bygg­ingar ann­ars konar greiðslu­kerfis sem Vest­ur­lönd ættu enga aðkomu að.

Í við­tali Bloomberg við emb­ætt­is­mann frá Evr­ópu­sam­band­inu voru mörg lönd mót­fallin því að úti­loka Rússa frá SWIFT-kerf­inu, þótt mögu­leik­inn sé ekki alveg úti­lok­aður. Hins vegar væri lík­legt að rúss­neskir bankar yrðu í eld­lín­unni, kæmi til átaka á milli Rúss­lands og Úkraínu.

Hóta sjálfir að grípa til hernaðaraðgerða

Rússnesk yfir­völd hafa gefið út að yfir­lýs­ing­arnar frá leið­togum Vest­ur­land­anna væru ekki til þess fallnar til að lægja öld­urnar. Sömu­leiðis þver­taka þau fyrir það að vera búin að skipu­leggja inn­rás, en hóta þó hern­að­ar­að­gerðum ef Atl­ants­hafs­banda­lagið lofar að sam­þykkja inn­göngu Úkraínu í sam­bandið.

Rík­is­stjórn Bret­lands til­kynnti fyrr í vik­unni að hún myndi útvega úkra­ínskum stjórn­völdum vopn til að verj­ast hugs­an­legri inn­rás Rússa. Sömu­leiðis hefur rík­is­stjórn Banda­ríkj­anna gefið Eystra­salts­ríkj­unum leyfi til að gefa Úkraínu banda­rísk flug­skeyti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár