Óvissan um stóra rörið

Þýskir þing­menn, með Merkel kansl­ara í broddi fylk­ingar eru fox­illir út í Rússa vegna til­ræð­is­ins við Alexei Navalní og tala um að fresta jafn­vel að taka nýja gasleiðslu frá Rúss­landi til Þýska­lands í notkun. Það hefði mikil áhrif á efna­hag Rússa.

Nord Stream gasleiðslurnar
Nord Stream gasleiðsl­urnar Mynd: Samsett

Gasleiðslan, sem gengur undir nafn­inu Nord Stream 2, og er að stærstum hluta í eigu rúss­neska fyr­ir­tæk­is­ins Gazprom, liggur frá Vyborg í Rúss­landi til Lubmin skammt frá Greifswald í Þýska­landi, 1200 kíló­metra leið. Lengstan hluta leið­ar­innar liggur leiðslan (þver­mál hennar er 120 senti­metrar) á botni Finn­lands­flóa og Eystra­salts, sam­hliða Nord Stream 1.

[links]Nord Stream fyr­ir­tækið var stofnað árið 2005 í þeim til­gangi að leggja gasleiðslu frá Rúss­landi til Þýska­lands. Áður en Nord Stream 1 leiðslan var tekin í notkun haustið 2011 fór stærstur hluti þess gass sem Rússar vinna, og selja úr landi, um Úkraínu. Sam­skipti Rússa og Úkra­ínu­manna eru, og hafa lengi verið, mjög stirð. Úkra­ínu­menn kaupa gas af Rússum og borga ekki alltaf á gjald­daga.

Rússar áttu hins­vegar ekki hægt um vik að þrýsta á um greiðslur, því þá hót­uðu Úkra­ínu­menn að loka fyrir streymið til Vestur-Evrópu. Þetta þótti Rússum væg­ast sagt óþægi­legt en með til­komu Nord Stream 1 urðu þeir ekki jafn háðir Úkra­ínu­mönnum varð­andi gas­flutn­ing­inn. Nord Stream 1 ann­aði hins vegar ekki flutn­ingi alls þess gass sem Rússar vilja selja, og Þjóð­verjar kaupa, og þess vegna hófst und­ir­bún­ingur lagn­ingar ann­arrar leiðslu, Nord Stream 2, nán­ast á sömu stundu og Nord Stream 1 var komin í gagnið.

Um danskt hafsvæði

Eins og áður var getið liggur Nord Stream 1 um Finn­lands­flóa og Eystra­salt til Þýska­lands. Til að kom­ast hjá því að leggja lykkju á leið leiðsl­unnar þurftu Rússar að fá leyfi Dana til leggja hana um danskt haf­svæði skammt undan Borg­und­ar­hólmi, rúm­lega 100 kíló­metra leið. Það leyfi veittu Danir árið 2009, þá hafði danska Orku­mála­stofn­unin í grein­ar­gerð til þings­ins kveðið upp úr með að Dönum bæri að heim­ila lagn­ingu leiðsl­unnar í sam­ræmi við 79. grein Haf­rétt­ar­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Málið kom þess vegna aldrei til kasta danska þings­ins, Fol­ket­inget. Orku­mála­stofn­unin veitti heim­ild­ina. Margir haf­rétt­ar­sér­fræð­ingar lýstu sig í kjöl­farið ósam­mála túlkun Orku­mála­stofn­un­ar­innar, sögðu það algjör­lega í valdi Dana að ákveða hvort Rússum væri heim­ilt að leggja leiðsl­una svo nálægt landi við Borg­und­ar­hólm, vel innan 12 sjó­mílna frá strönd­inni. Urgur var í mörgum dönskum þing­mönnum sem stóðu frammi fyrir orðnum hlut, en fengu engu breytt. Þetta var í tíð Lars Løkke Rasmus­sen og flokks hans, Venstre.

Nord Stream 2

Þegar und­ir­bún­ingur Rússa vegna Nord Stream 2 hófst höfðu orðið stjórn­ar­skipti í Danmörku. Nýja stjórnin var undir for­ystu sós­í­alde­mókrata og for­sæt­is­ráð­herr­ann var Helle Thorning-Schmidt. Vitað var að innan stjórnar hennar voru mjög skiptar skoð­anir um Nord Stream 2. Rússar hófu eins og áður sagði und­ir­bún­ing nýju leiðsl­unnar árið 2011 og þá var gert ráð fyrir að hún kæm­ist í gagnið árið 2018, ef til­skilin leyfi fengjust. Rússar lögðu mikla áherslu á að fá sam­þykki þeirra ríkja sem í hlut eiga fyrir lagn­ingu leiðsl­unnar sem auk Dan­merkur og Rúss­lands eru Finnland, Svíþjóð og Þýska­land. Vel gekk að útvega leyfin, sem eru veitt í nokkrum áföngum, fram­kvæmda­leyfi, rekstr­ar­leyfi o.s.frv. 

Þótt Danir hafi sam­þykkt að Rússum væri heim­ilt að hefja fram­kvæmdir drógu þeir mjög lengi að sam­þykkja notkun þess hluta leiðsl­unnar sem liggur um danskt haf­svæði við Borg­und­ar­hólm. Rússar höfðu reyndar ákveð­inn mót­leik uppi í erminni færi svo að Danir myndu synja um leyfið. Þeir hefðu þá þurft að leggja lykkju á leið leiðsl­unnar, og krækt út fyrir dönsku lög­sög­una. Vegna þess að þeir höfðu þegar fengið fram­kvæmda­leyfið byrj­uðu þeir hins vegar að leggja leiðsl­una í dönsku lög­sög­unni, þótt notk­un­ar­leyfið vant­aði.

Vegna við­skipta­þving­ana Banda­ríkja­manna gagn­vart Rússum seink­aði öllu verk­inu og á þess­ari stundu er óljóst hvenær gasið getur farið að streyma um leiðsl­una, Nord Stream 2.

Danir nota Rússagasið og stjórnin kúvendir

Sl. mánu­dag (28.9) greindi dag­blaðið Berl­ingske frá því að hluti þess gass sem kemur með Nord Stream frá Rúss­landi endi í elda­vélum og kyndi­tækjum á dönskum heim­ilum. Þessar fréttir komu mörgum á óvart því Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra og Dan Jørg­en­sen orku- og lofts­lags­ráð­herra hafa lengi mælt gegn því að lönd Evr­ópu­sam­bands­ins verði háð rússagas­inu. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá danska Ørsted orku­fyr­ir­tæk­inu kemur nú allt að helm­ingur þess gass sem Danir nota frá Rússum. Ein ástæða þess er að eitt helsta gasvinnslu­svæði Dana, Tyra svæðið í Norð­ur­sjó, er lokað vegna end­ur­nýj­unar og verður svo fram til árs­ins 2022. Til er gam­all samn­ingur milli Ørsted og rúss­neska orku­fyr­ir­tæk­is­ins Gazprom um kaup á gasi frá Rúss­landi.

Hver sem ástæðan er hefur danska stjórnin skyndi­lega snúið við blað­inu og fyrir þremur dögum (1.10) til­kynnti danska Orku­mála­stofn­unin að Rússum hefði verið til­kynnt að þeim væri heim­ilt að dæla gasi um leiðsl­una þegar hún verður til­búin, án þess að krækja fram hjá danskri lög­sögu. Danskir stjórn­mála­skýrendur, að minnsta kosti sumir, undr­ast þessa kúvend­ingu stjórn­ar­innar en hafa sett sama sem merki milli leyf­is­veit­ing­ar­innar og umfjöll­unar Berl­ingske sl. mánu­dag.

Merkel hefur í hótunum

Í Þýska­landi hafa skoð­anir um sam­starf við Rússa á sviði orku­mála lengi verið skiptar, og sá ágrein­ingur ekki bund­inn við til­tekna stjórn­mála­flokka. Innan Kristi­legra demókrata, flokks Angelu Merkel kansl­ara hefur ríkt mik­ill ágrein­ingur varð­andi Nord Stream 2 og sam­starf við Rússa. Margir hátt­settir menn í flokknum vilja fara sér hægt og jafn­vel gera hlé til að end­ur­meta sam­starfið við Rússa.

Þjóð­verjar vita vel að gas­salan skiptir Rússa miklu, tekjur af henni eru um það bil helm­ingur útflutn­ings­tekna rík­is­ins. Munar sann­ar­lega um minna. Angela Merkel kansl­ari hefur iðu­lega sagt að ekki eigi að blanda saman samn­ingum um gasvið­skipti og póli­tískum ágrein­ings­efnum.

En nú er skyndi­lega komið annað hljóð í Merkel strokk­inn. Og á því er skýr­ing: Alexei Navalní. Þýsk stjórn­völd krefj­ast full­nægj­andi skýr­inga frá Rússum á því sem þau kalla morð­til­raun­ina á stjórn­ar­and­stæð­ingnum Alexei Navalní. Hann veikt­ist skyndi­lega um borð í flug­vél, á leið­inni frá Tomsk í Síberíu til Moskvu. Nær dauða en lífi var hann fluttur til Berlínar, en rúss­neskir læknar höfðu fyrst þver­tekið fyrir að hann yrði fluttur úr landi. Þýskir læknar hafa full­yrt, eftir ítar­legar rann­sóknir að Alexei Navalní hafi verið byrlað eitur, tauga­eitrið Novisjok. Rússnesk stjórn­völd hafa harð­neitað að hafa nokkuð með málið að gera, en ekki leggja allir trúnað á þær full­yrð­ingar. Þar á meðal Angela Merkel.

Rússar skilja fyrr en skellur í tönnum og þegar kansl­ari Þýska­lands er far­inn að tala um ekk­ert sé úti­lokað, þar á meðal að taka mál Alexei Navalní upp á vett­vangi Evr­ópu­sam­bands­ins, vita ráða­menn í Kreml að alvara er á ferðum. Ekki er á þess­ari stundu vitað hverju fram vindur. Blaða­maður þýska viku­rits­ins Spiegel sagði eitt­hvað á þá leið að „nú stæði yfir stóra störu­keppnin.“ Hann vildi ekki spá neinu um nið­ur­stöð­una en sagði nokkuð ljóst að „í Kreml svæfu menn ekki rótt nú um stundir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár