Langa rörið

Rúss­neskir hags­munir eru nú á borði danskra stjórn­valda. Gas­flutn­ingar kalla á miklar fram­kvæmdir og mun rörið meðal ann­ars liggja um danskt hafs­svæði.

Rörin sem flytja gasið eru gríðarstór.
Rörin sem flytja gasið eru gríð­ar­stór. Mynd: EPA

,,Og það er margt bréfið” sagði gamli mað­ur­inn, í upp­haf­skafla Íslands­klukk­unnar, þegar hans majestets bífal­ings­maður kom á Þing­velli til að höggva niður sam­eign þjóð­ar­innar, klukku. Þá vant­aði eir og kopar til að end­ur­reisa Kaup­in­hafn.

Danska rík­is­stjórnin á von á bréfi. Þótt bréfa sé iðu­lega beðið með eft­ir­vænt­ingu, og jafn­vel til­hlökkun, er það bréf sem nú er vænt­an­legt ekki eitt þeirra. Bréfið kemur frá rúss­neskum stjórn­völdum. Það fjallar ekki um eir og kopar heldur um stál­rör. Og það er ekk­ert smá­ræðis rör sem hér um ræðir. Það verður 1200 kíló­metrar á lengd og 120 senti­metrar í þver­mál og á að liggja frá Vyborg í Rúss­landi til Greifswald í Þýska­landi. Lengstan hluta leið­ar­innar á botni Finn­lands­flóa og Eystra­salts. Rörinu er ætlað að flytja gas, frá Rúss­landi til Þýska­lands. Erindi bréfs­ins frá Rússum til Dana verður beiðni um leyfi til að rörið liggi um danska haf­svæðið við Borg­und­ar­hólm.

Á að liggja við hlið Nord Stream 1

Fyr­ir­tækið sem stendur að lagn­ingu leiðsl­unnar heitir Nord Stream. Rúss­neska fyr­ir­tækið Gazprom á rúm­lega helm­ings hlut en nokkur evr­ópsk fyr­ir­tæki afgang­inn. Nord Stream var stofnað árið 2005 í þeim til­gangi að leggja gasleiðslu frá Rúss­landi til Þýska­lands. Sú leiðsla, sem er í raun tvær sam­liggj­andi leiðslur, gengur undir nafn­inu Nord Stream 1 og var tekin í notkun í sept­em­ber 2011. Þessi leiðsla leysti úr brýnni þörf því Rússar vinna geysi­mikið gas og selja stóran hluta þess úr landi. Þangað til Nord Stream 1 var tekin í notkun fór stærstur hluti gas­flutn­ing­anna til Vestur- Evrópu um Úkraínu.

Sam­skipti Rússa og Úkra­ínu­manna eru afar stirð og Rússum þykir lík­lega síður en svo gott vera háðir Úkra­ínu­mönnum að þessu leyti. Rúss­arnir selja Úkra­ínu­mönnum gas og stundum hefur það gerst að greiðslur hafa ekki skilað sér. Rússar hafa lítið getað aðhafst, því þá hafa Úkra­ínu­menn ein­fald­lega lokað fyrir streymið til Vestur-Evrópu, hafa sem­sagt haft tögl og haldir í þessum efnum. Rússum er lík­lega bölv­an­lega við að sitja í þess­ari klemmu og þess vegna hófu þeir fyrir all­mörgum árum und­ir­bún­ing nýrrar gasleiðslu, sem liggja skyldi við hlið Nord Stream 1. Hluta leið­ar­innar, eins og áður sagði, um danskt haf­svæði, skammt undan strönd Borg­und­ar­hólms. Leyfið fyrir Nord Stream 1 veittu Danir árið 2009,án þess að depla auga, en nú eru breyttir tímar.

Hvað hefur breyst?

Það sem hefur breyst er einkum tvennt. Í fyrsta lagi það að sam­skipti marga þjóða og Rúss­lands eru ekki með sama hætti og þau voru árið 2009. Eru væg­ast sagt stirð. Rússar hafa und­an­farið aukið hern­að­ar­um­svif sín svo mjög að mörgum stendur stuggur af. Innan Evr­ópu­sam­bands­ins er sú skoðun útbreidd að gasleiðslan Nord Stream 2 sé fremur liður í milli­ríkjapóli­tík Rússa en öryggi í gas­flutn­ingum. Í raun sé ekki bein þörf fyrir þessa nýju leiðslu eins og Rússar halda fram. Í öðru lagi kom í ljós fyrir nokkru að upp­lýs­ing­arnar sem danska þingið, Fol­ket­inget, fékk á sínum tíma frá dönsku Orku­mála­stofn­un­inni voru að öllum lík­indum rangar.

Í grein­ar­gerð frá stofn­un­inni kom fram að Dönum bæri skylda til að heim­ila lagn­ingu leiðsl­unnar, í sam­ræmi við Haf­rétt­ar­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna (79. grein). Málið kom aldrei til kasta þings­ins, Orku­mála­stofn­unin veitti leyfið. En síðan hafa margir haf­rétt­ar­sér­fræð­ingar lýst sig ósam­mála þess­ari nið­ur­stöðu Orku­mála­stofn­un­ar­innar, það sé algjör­lega í valdi Dana að ákveða hvort Rússar megi leggja leiðsl­una svo nálægt landi við Borg­und­ar­hólm, innan 12 sjó­mílna frá strönd­inni. Þar með er málið komið í hendur danska þings­ins og þar eru menn ekki á einu máli. Sumir vilja leyfa lögn­ina, aðrir eru því mót­fallnir. Margir þing­menn eru líka afar ósáttir við að leyfið fyrir eldri lögn­inni hafi verið veitt á röngum for­sendum, eins og flest bendir til. Í nýrri skoð­ana­könnun kom fram að meiri­hluti Dana vill ekki að Rússar fái leyfi fyrir nýju lögn­inni.

Leituðu aðstoðar Evrópusambandsins

Danska rík­is­stjórnin hefur lengi vitað að von væri á bréf­inu frá Rússum. Hún hefur fyrir löngu haft sam­band við yfir­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins og óskað eftir aðstoð. Í Brussel ríkir skiln­ingur á því að erfitt sé fyrir litla þjóð, einsog Dani, að standa eina gegn Rússum. En ekki er þó ein­hugur meðal ráða­manna ESB um afstöð­una til Rússa og leiðsl­unnar. Þjóð­verjar vilja mjög gjarna fá Nord Stream leiðsl­una í gagnið sem fyrst, sama gildir um Frakka. Fram­kvæmda­stjórn ESB til­kynnti fyrir nokkrum dögum að hún færi fús til að ann­ast samn­inga við Rússa, fyrir hönd Dana. Sú vinna fer þó ekki í gang fyrr en form­legt erindi berst frá dönsku stjórn­inni.

Rússar segja nýju leiðsluna tryggja öryggi í flutningum

Rússar leggja mikla áherslu á að fá sam­þykki Dana fyrir nýju lögn­inni og það sem fyrst. Segja leiðsl­una tryggja öryggi í gas­flutn­ing­unum en millj­óna­tugir evr­ópskra heim­ila nota rússagasið, eins og það er oft kallað, til upp­hit­unar og matseldar. Þeir benda líka á að ekk­ert hafi komið fram sem bendi til þess að eldri lögnin, Nord Stream 1, hafi haft skað­leg áhrif á líf­ríkið í haf­inu.

Hvað ef Danir segja nei?

Vinna við smíði rör­anna og til­heyr­andi búnað hófst árið 2013. Áætlanir Rússa gera ráð fyrir að lagn­ing leiðsl­unnar hefj­ist á næsta ári og hún kom­ist í gagnið árið 2019. Þá er miðað við að leiðslan liggi sam­hliða Nord Stream 1. Ef svo færi að Danir synj­uðu beiðni Rússa þýðir það ekki að leiðslan verði ekki lögð. Rússar myndu ein­fald­lega leggja lykku á leið leiðsl­unnar, færa hana fjær Borg­und­ar­hólmi og út úr danskri lög­sögu. Það myndi vænt­an­lega seinka því að leiðslan kom­ist í gagnið en eitt eða tvö ár til eða frá skipta kannski ekki máli í þessu sam­hengi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár