Gjaldeyrisforðinn minnkaði um 14 milljarða í október

Eignir Seðla­bank­ans í erlendum gjald­eyri minnk­uðu lít­il­lega í síð­asta mán­uði, en hafa þó auk­ist tölu­vert frá ára­mótum. Þó er hann enn ekki orð­inn jafn­mik­ill og hann var á miðju síð­asta ári.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri Mynd: Bára Huld Beck

Alls minnk­aði gjald­eyr­is­forði Seðla­banka Íslands um 1,5 pró­sent í októ­ber, en það sam­svarar minnkun um 14,2 millj­arða króna. Forðinn er ekki enn orð­inn jafn­stór og hann var á sum­ar­mán­uðum 2020, en hann minnk­aði um fimmt­ung sam­hliða miklum inn­gripum bank­ans á gjald­eyr­is­mark­aði á seinni hluta síð­asta árs. Þetta kemur fram í hag­tölum frá Seðla­bank­anum.

15 prósent stærri forði í ár

Samkvæmt töl­unum hefur gjald­eyr­is­forð­inn auk­ist um 15 pró­sent, eða um 108 millj­arða króna frá upp­hafi árs. Á sama tíma hefur gengi krón­unnar gagn­vart helstu við­skipta­myntum hennar hald­ist nokkuð stöðugt, en geng­is­vísi­talan styrkt­ist um tvö pró­sent á milli jan­úar og októ­ber.

Líkt og Kjarninn hefur áður fjallað um minnk­aði gjald­eyr­is­forð­inn hratt sam­hliða geng­is­veik­ingu, miklum inn­gripum Seðla­bank­ans á gjald­eyr­is­mark­aði og reglu­bund­innar sölu hans á gjald­eyri á seinni hluta síð­asta árs. Gjald­eyr­is­salan var algjört eins­dæmi ef litið er aftur til síð­ustu alda­móta.

Einnig gengið á forðann í byrjun ársins

Seðla­bank­inn hélt áfram að grípa inn í á gjald­eyr­is­mark­aði í stórum stíl á fyrstu mán­uðum þessa árs, en hann seldi gjald­eyri fyrir tæp­lega 40 millj­arða króna í jan­úar, febr­úar, mars og apríl.

Á sum­ar­mán­uð­unum sner­ist hins vegar sú þróun við, þar sem seðla­bank­inn brást við miklu inn­flæði fjár­magns með kaupum á gjald­eyri, en kaupin námu um 20 millj­örðum í maí, júní og júlí. Síðan þá hafa inn­gripin verið mun minni, þrátt fyrir að gengi krón­unnar hafi veikst um tæp þrjú pró­sent á þessum tíma.

Krónan veikari eftir Delta

Íslands­banki rekur geng­is­þróun krón­unnar í nýlegri úttekt, en sam­kvæmt henni styrkt­ist krónan á fyrri helm­ingi árs­ins, m.a. vegna umfangs­mik­illa kaupa erlendra aðila á íslenskum verð­bréfum.

Í kjöl­far hertra landamæra­að­gerða vegna ris Delta-bylgju kór­ónu­veirunnar hafi gengið hins vegar gefið eftir. Einnig hefur inn­lend eft­ir­spurn eftir vörum og þjón­ustu tekið við sér á síð­ustu mán­uðum, sem hefur leitt til meiri inn­flutn­ings og þar af leið­andi aukið hall­ann á vöru- og þjón­ustu­við­skiptum við útlönd.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabankinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár