Gjaldeyrisforðinn hefur minnkað um fimmtung

Allt frá miðju síð­asta ári hefur gjald­eyr­is­forði Seðla­bank­ans í krónum talið minnkað um tutt­ugu pró­sent, en rekja má stærsta hluta minnk­un­ar­innar til gjald­eyr­is­sölu Seðla­bank­ans.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri
Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri Mynd: Bára Huld Beck

Seðla­bank­inn hefur selt að and­virði 120 millj­arða króna í erlendum gjald­eyri á síð­ustu sjö mán­uðum og hefur gjald­eyr­is­forði bank­ans minnkað um fimmt­ung á sama tíma. Gjald­eyr­is­sala bank­ans á þessu tíma­bili er sú mesta sem hefur átt sér stað á þessarri öld.

Þetta kemur fram í upp­færðum hag­tölum frá Seðla­bank­anum sem birt­ust á heima­síðu hans í gær. Samkvæmt þeim seldi bank­inn gjald­eyri fyrir um 14,6 millj­örðum króna í jan­úar og voru þau við­skipti tæpur helm­ingur allra við­skipta á gjald­eyr­is­mark­aði þann mán­uð­inn.

Inngrip og reglubundin sala

Samkvæmt síð­asta hefti Pen­inga­mála er þessi mikla sala bæði vegna gjald­eyr­is­inn­gripa Seðla­bank­ans og reglu­bund­innar sölu hans á gjald­eyri.

Í fyrra­haust hóf Seðla­bank­inn reglu­bundna gjald­eyr­is­sölu í þeim til­gangi að auka dýpt gjald­eyr­is­mark­að­ar­ins og bæta verð­myndum. Á síð­ustu fjórum mán­uðum hefur reglu­bundna gjald­eyr­is­salan numið um 60 til 66 millj­ónum evra á mán­uði, eða um 9 til 11 millj­örðum króna.

Til við­bótar við þessa sölu hefur bank­inn beitt sér­stökum inn­gripum á gjald­eyr­is­mark­aði, en Ásgeir Jónsson seðla­banka­stjóri sagði á vaxta­á­kvarð­ana­fundi 18. nóv­em­ber að það hafi verið gert til að halda gengi krón­unnar stöð­ugu. Þegar slík inn­grip fela í sér sölu gjald­eyris styrkja þau gengi krón­unnar og geta komið í veg fyrir gjald­eyr­is­flótta þegar krónan hefur veikst snöggt.

Skipting gjald­eyr­is­sölu Seðla­bank­ans eftir teg­undum má sjá á mynd hér að ofan, þar sem gert er ráð fyrir að öll sala sem var ekki reglu­leg er vegna inn­gripa á gjald­eyr­is­mark­aði. Þar sést að reglu­bundin sala Seðla­bank­ans hefur verið stór hluti af gjald­eyr­is­sölu hans á mark­aði síð­ustu mán­uð­ina. Seðla­bank­inn hefur hins vegar minna þurft að grípa inn á gjald­eyr­is­mark­aði á sama tíma, ef miðað er við októ­ber í fyrra.

20 prósenta minnkun

Í júlí síð­ast­liðnum nam gjald­eyr­is­forði Seðla­bank­ans rúmri billjón króna, eða þús­und millj­örðum. Í jan­úar hafði forð­inn hins vegar lækkað um 20 pró­sent og stóð virði hans í 805 millj­örðum íslenskra króna. Meiri­hluti þess­arar minnk­unar er til­kom­inn vegna umfangs­mik­illar gjald­eyr­is­sölu bank­ans, sem seldi á sama tíma að and­virði 120 millj­arða af gjald­eyri, en einnig hefur forð­inn minnkað sökum styrk­ingar krón­unnar, sem gerir eignir í öðrum gjald­miðlum verð­minni. Gengi krón­unnar á tíma­bil­inu hefur styrkst um 7 pró­sent á tíma­bil­inu, en með því minnk­aði forð­inn um uþb 70 millj­arða.

Sögulega mikið magn

Sala Seðla­bank­ans á gjald­eyri á síð­ustu mán­uðum er algjört eins­dæmi, ef litið er aftur til síð­ustu 20 ára. Frá því í júlí hefur salan numið um 19 millj­örðum króna að með­al­tali á hverjum mán­uði og er það lang­hæsta sjö mán­aða með­al­tal af gjald­eyr­is­sölu sem mælst hefur á þess­ari öld. Eina tíma­bilið sem kemst næst slíkri sölu voru fyrstu sjö mán­uð­irnir eftir fjár­mála­hrunið í októ­ber árið 2008, en þá seldi Seðla­bank­inn að með­al­tali virði 8 millj­arða króna í hverjum mán­uði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Seðlabanki

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár