Þyrfti að grípa inn snemma til að minnka kynjahalla í háskólum

Vinnu­mark­aðs­hag­fræð­ingur segir minni ásókn karla í háskóla geta verið vegna staðalí­mynda og félags­legra við­miða. Nauð­syn­legt sé að byrja á að hjálpa drengjum að ná fót­festu á fyrri stigum skóla­kerf­is­ins ef jafna á hlut karla og kvenna í háskólum.

Mikill munur er á náms­þátt­töku karla og kvenna í háskólum á Íslandi, en mik­il­vægt er að grípa inn á fyrri stigum skóla­kerf­is­ins til að draga úr honum. Þetta segir Herdís Stein­gríms­dóttir, vinnu­mark­aðs­hag­fræð­ingur og dós­ent við Copenhagen Business School, í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar sem kom út í síð­ustu viku.

Hallinn byrjar snemma

Samkvæmt Herdísi virð­ast drengir eiga á bratt­ann að sækja frá því skóla­ganga þeirra hefst hér­lendis. Samræmd próf sýna að mark­tækur munur sé á milli kynj­anna í íslensku­kunn­áttu, en 15 ára strákar eru tvö­falt lík­legri til að geta ekki lesið sér til gagns heldur en stelpur.

Þrátt fyrir þennan mikla mun segir Herdís þó að lík­lega sé ekki mark­tækur munur á náms­greind drengja og stúlkna. Hins vegar virð­ist vera kyn­bund­inn munur þegar kemur að færni og hegð­un­ar­þáttum. Hún bætir við að flest bendi til þess að slíkir eig­in­leikar séu ekki óum­breyt­an­legir og ráð­ist að miklu leyti af umhverf­is­þáttum, svo sem upp­eldi, fyr­ir­myndum og við­horfum.

Ýmsir mögulegir áhrifaþættir

Herdís bendir einnig á að fækkun karl­kyns kenn­ara gæti að ein­hverju leyti útskýrt hvers vegna drengir hafi dreg­ist aftur úr í skóla­kerf­inu. Sú þróun gæti leitt til þess að karl­kyns nem­endur hafi færri fyr­ir­myndir, en Herdís segir einnig að kenn­arar gætu verið bjag­aðir í við­horfi sínu gagn­vart nemum af gagn­stæðu kyni. Þó hafa rann­sóknir sem skoða þessar kenn­ingar ekki sýnt fram á afger­andi nið­ur­stöður.

Önnur mögu­leg útskýr­ing á meiri náms­þátt­töku kvenna í háskól­anum er sú að þær hafi meiri fjár­hags­legan ábata af námi heldur en karlar. Samkvæmt Herdísi geta konur vænst þess að hækka meira í launum með betri menntun heldur en karlar hér á landi, miðað við vinnu­mark­aðs­tölur Hag­stof­unnar. Þó segir hún að lík­lega liggi aðrar ástæður einnig að baki kynja­hall­anum í háskólum á Íslandi, þar sem mun­ur­inn á náms­þátt­töku karla og kvenna hafi auk­ist á síð­ustu árum, sam­hliða því sem fjár­hags­legi ávinn­ingur háskóla­náms hefur orðið jafn­ari á milli kynj­anna.

Að lokum segir Herdís að nýjar rann­sóknir bendi til þess að staðalí­myndir og félags­leg norm gætu valdið kynja­hall­anum. Hins vegar hafa fáar rann­sóknir skoðað þessa áhrifa­þætti á háskóla­göngu karla og kvenna, en sýnt hefur verið að þeir hafa áhrif á aðra þætti, til dæmis vinnu­mark­aðs­þátt­töku kvenna. Þessi við­mið gætu virst vera þrá­lát og breyt­ast hægt, en sam­kvæmt Herdísi er ýmis­legt sem bendir til þess að hægt sé að breyta þeim ef réttum aðgerðum er beitt.

Hægt er að lesa grein Herdísar í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár