Hugmyndafræði Pútíns jafnhættuleg og fasismi Mússólínís

Ólíklegt er að Pútín léti staðar numið eftir að hafa yfir­tekið Úkraínu miðað við hug­mynda­fræð­ina sem hann aðhyllist í utan­rík­is­málum, segja Gylfi Zoega og Juan Vicente Sola.

Vladimír Pútín, forseti Rússlands
Vladimír Pútín, for­seti Rúss­lands Mynd: EPA

Sú heims­sýn sem Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seti aðhyllist er náskyld nas­isma Hitlers og fas­isma Mús­sól­ínís og mjög hættu­leg lýð­ræð­is­ríkjum. Þetta kemur fram í grein Gylfa Zoega, hag­fræði­pró­fess­ors við HÍ, og Juan Vicente Sola, lög­fræði­pró­fess­ors við háskól­ann í Buenos Aires, í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Dapurt efnahagsástand

Samkvæmt Gylfa og Juan er mögu­legt að Pútín hafi ákveðið að láta her sinn ráð­ast inn í Úkraínu til þess að sam­eina þjóð­ina á bak við sig á tímum mik­illa efna­hags­þreng­inga. Efna­hagur lands­ins líti ekki vel út í alþjóð­legum sam­an­burði, þar sem sá hag­vöxtur sem náð­ist á fyrstu valda­árum for­set­ans hafi smám saman fjarað út. Síðustu tíu árin hafi svo verið algjör stöðnun í efna­hags­lífi lands­ins.

Lands­fram­leiðsla Rúss­lands á mann er nú helm­ingi lægri en hún er í Svíþjóð, ef tekið er til­lit til mis­mun­andi verð­lags í lönd­unum. Sömu­leiðis eru sex sinnum fleiri banaslys í umferð­inni í Rúss­landi og níu sinnum fleiri morð. Þessir þættir, auk meiri jöfn­uðar á milli kynj­anna, meiri nýsköp­unar, meiri frjó­semi og lengri lífslíkna, benda til þess að lífs­kjör séu langtum verri í Rúss­landi heldur en á Norð­ur­lönd­unum.

Daprari heimssýn

Þegar skyggnst er inn í hug­mynda­fræði og heims­sýn Pútíns og nán­ustu banda­manna hans kemur þó í ljós mun ógn­væn­legri mynd en að inn­rásin hafi ein­ungis verið leið hans til að afla sér vin­sælda, bæta höf­und­arnir við.

Einn af helstu hug­mynda­fræð­ingum í nán­asta umhverfi for­set­ans er Aleksandr Dugin. Samkvæmt Gylfa og Juan sækir hann hug­myndir sínar til ein­ræð­is­herr­anna Mús­sól­íní á Ítalíu og Perón í Argent­ínu, en byggja að miklu leyti á því að finna sér sam­eig­in­legan óvin. Í hug­ar­heimi Dugins eru Banda­ríkin helsti óvinur Rúss­lands, sem ætti að vera leið­andi ríki á Evr­asíuflek­anum.

Þjóðarsátt rofin

Þrátt fyrir þessa heims­sýn er óvíst hvort Pútín hafi get­una til þess að fram­fylgja þessum áformum.

Samkvæmt höf­und­unum er efna­hags­stefna for­set­ans, sem byggir á þjóð­ar­sátt á milli almenn­ings, auð­hringja og rík­is­ins. Slík sátt fól í sér að póli­tískum völdum auð­hringja væru settar skorður á meðan þeir fengju að arð­ræna almenn­ing, sem naut þess í stað lífs­kjara­bóta vegna hag­vaxtar á kostnað borg­ara­legra rétt­inda.

Þessi leið hefur ekki náð að skapa við­var­andi hag­vöxt og því segja Gylfi og Juan að þjóð­ar­sáttin sé nú rofin eftir tíu ára stöðnun í efna­hags­líf­inu. „Veikt hag­kerfi, efna­hags­hremm­ingar, hern­að­ar­ó­sigrar og þrýst­ingur frá mæðrum her­manna geta þó haldið aftur af honum,“ skrifa Gylfi og Juan. „Vonum það besta,“ bæta þeir við.

Hægt er að lesa grein Gylfa og Juan í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár