„Við getum ekki endurspeglað reynslu sem við höfum ekki“

Ára­móta­blað Vís­bend­ingar er komið út, en í því er að finna við­tal við Sig­ur­línu V. Ingv­ars­dóttur og auk þess greinar eftir sér­fræð­inga á sviði hag­fræði og við­skipta­fræði. Sjónum er beint að því hvernig nýta má krafta breið­ari hóps fólks í við­skipta­líf­inu.

Sigurlína Valgerður Ingvarsdóttir kemur inn í íslenskt viðskiptalíf með víðtæka stjórnunarreynslu úr tölvuleikjaiðnaði. Hún segir að nú sé lag að laða hingað til lands þekkingarstarfsmenn.
Sig­ur­lína Val­gerður Ingv­ars­dóttir kemur inn í íslenskt við­skipta­líf með víð­tæka stjórn­un­ar­reynslu úr tölvu­leikja­iðn­aði. Hún segir að nú sé lag að laða hingað til lands þekk­ing­ar­starfs­menn.

Fjöl­breyti­leiki er í fyr­ir­rúmi í öllum störfum sem Sig­ur­lína Val­gerður Ingv­ars­dóttir tekur að sér. Hún situr í stjórnum smærri og stærri fyr­ir­tækja og segir hlut­verk stjórna það sama í öllum fyr­ir­tækjum þótt við­fangs­efnin séu ólík. Mik­il­vægt sé að fá fjöl­breyttar raddir að borð­inu, enda geti fólk ekki end­ur­speglað reynslu sem það hafi ekki sjálft. Hún vill að Ísland nýti tæki­færin sem fel­ast í núver­andi efna­hags­á­standi og laði til sín þekk­ing­ar­starfs­menn erlendis frá.

Sig­ur­lína er í við­tali í ára­móta­blaði Vís­bend­ingar. Í blað­inu er sjónum sér­stak­lega beint að fjöl­breytni, jafn­rétti og því hvernig unnt er að nýta hæfni og krafta breið­ari hóps í við­skipta­líf­inu, ekki síst í stjórnum og stjórn­un­ar­stöðum, en ekki bara hæfni og krafta þeirra sem eru líkir þeim sem stýra fyrir.

Hún bendir á í við­tal­inu að það sé vara­samt að of þröngir eða eins­leitir hópar taki stórar ákvarð­anir, enda byggir ákvarð­anir ein­stak­linga ávalt á reynslu þeirra sjálfra að ein­hverju leyti. Fólk geti ekki end­ur­speglað reynslu sem það hefur ekki. Þá segir hún mik­il­vægt að nýta þá stöðu sem skap­ast hefur með upp­sögnum stórra tækni­fyr­ir­tækja á hæfu starfs­fólki. Tækifæri geti falist í því fyrir Ísland að laða þekk­ing­ar­starfs­menn hingað til lands.

„Tækni­fyr­ir­tæki sem hafa verið með þús­undir starfs­manna hafa verið að skera tals­vert niður. Þarna er hópur af fólki, mjög hæfu fólki, sem kannski hefur misst vinn­una og það er þörf fyrir þetta vinnu­afl á Íslandi. ... Í tölvu­leikja­geir­anum til dæmis er mikil sam­keppni um starfs­fólk og það hefur þurft að sækja mikið af sér­fræð­ingum og koma með þekk­ingu þeirra til Íslands. Auðvitað hefur orðið til líka mjög mikið af íslenskum sér­fræð­ingum en það er líka bara gott fyrir öll sam­fé­lög að fá inn nýtt blóð. Fá inn fólk sem kemur úr öðru umhverfi, frá öðrum fyr­ir­tækjum, hugsar öðru­vísi og kemur með ferskar hug­myndir.“

Sautján ár milli ráðninga á konu í forstjórastól í skráðu fyrirtæki

Í ára­móta­blað­inu eru greinar frá ýmsum af helstu sér­fræð­ingum lands­ins á sviði hag­fræði og við­skipta­fræði. Ásta Dís Óla­dóttir dós­ent við við­skipta­fræði­deild og stjórn­ar­for­maður MBA náms við HÍ fjallar um rann­sóknir á kynja­hlut­föllum í leið­toga­störfum í við­skipta­líf­inu og upp­lifun kvenna af ráðn­ing­ar­ferli í stjórn­un­ar­störf.

Í grein hennar kemur fram að sautján ár liður á milli ráðn­inga á milli ráðn­inga á konu í for­stjóra­stól í skráðu fyr­ir­tæki hér á landi. „Karlmenn sem gegnt hafa stöðu for­stjóra í skráðum félögum skipta hund­ruðum en ein­ungis sex konur hafa gegnt stöðu for­stjóra í skráðu félagi frá upp­hafi,“ segir Ásta Dís í grein sinni í ára­móta­blað­inu.

Vinnustaðahúsverk líklegri til að lenda á konum

Á hverjum vinnu­stað eru unnin ýmis verk sem ekki leiða til fram­gangs í starfi. Í grein sinni í ára­móta­blað­inu fjallar Guðrún Johnsen lektor við CBS um svokölluð „vinnu­staða­hús­verk“ en þau lenda í meira mæli á konum en körlum.

„Þegar skoðað er hversu margar stundir konur í yfir­mann­stöðum vinna að verk­efnum sem stuðla að fram­gangi má glögg­lega sjá að þær vinna nán­ast jafn­mikið og karl­kyns kollegar í sömu stöðum – en þær vinna 250 fleiri klukku­stundir að verk­efnum sem ekki leiða til starfs­frama en karl­arnir. ... Jafnari dreif­ing vinnu­staða­hús­verka er mik­il­vægur þáttur í því að við náum að brjót­ast út úr órétt­læti og óskil­virkni þegar kemur að nýt­ingu mannauðs. Tækifæri glat­ast í við­skiptum og sam­fé­lag­inu öllu ef við náum ekki að virkja hæfni ein­stak­linga óháð kyni þeirra og kyn­þætti, og eins og hér á landi eftir stuðn­ingi við ólíka stjórn­mála­flokka,“ segir Guðrún í grein sinni.

Í blað­inu er einnig að finna greinar eftir Gylfa Magn­ús­son pró­fessor við HÍ, Katrínu Ólafs­dóttur dós­ent við HR og fleiri.

Ára­móta­blað Vís­bend­ingar má lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár