Án nýsköpunar væru „hrútskýring“ og „þriðja vaktin“ ekki til

Þörf er á nýsköpun á öllum sviðum fyrir fram­þróun í sam­fé­lag­inu, líka í tungu­mál­inu, að mati Sig­ur­línu Val­gerðar Ingv­ars­dóttur. Hugtök eins og „hrút­skýr­ing“ og „þriðja vaktin“ voru ekki til þegar hún steig sín fyrstu skref í karllægum tölvu­leikja­bransa.

Sigurlína Valgerður Ingvarsdóttir kemur inn í íslenskt viðskiptalíf með víðtæka stjórnunarreynslu úr tölvuleikjaiðnaði.
Sig­ur­lína Val­gerður Ingv­ars­dóttir kemur inn í íslenskt við­skipta­líf með víð­tæka stjórn­un­ar­reynslu úr tölvu­leikja­iðn­aði. Mynd: Golli

Fjöl­breyti­leiki er í fyr­ir­rúmi í öllum störfum sem Sig­ur­lína Val­gerður Ingv­ars­dóttir tekur að sér. Hún situr í stjórnum smærri og stærri fyr­ir­tækja og segir hlut­verk stjórna það sama í öllum fyr­ir­tækjum þótt við­fangs­efnin séu ólík. Mik­il­vægt sé að fá fjöl­breyttar raddir að borð­inu, enda geti fólk ekki end­ur­speglað reynslu sem það hafi ekki sjálft.

Sig­ur­lína er í við­tali í ára­móta­blaði Vís­bend­ing­ar. Í blað­inu er sjónum sér­stak­lega beint að fjöl­breytni, jafn­rétti og því hvernig unnt er að nýta hæfni og krafta breið­ari hóps í við­skipta­líf­inu, ekki síst í stjórnum og stjórn­un­ar­stöð­um, en ekki bara hæfni og krafta þeirra sem eru líkir þeim sem stýra fyr­ir. Sjálf er hún verk­fræð­ingur en sneri nýlega heim til Íslands eftir 14 ára störf sem fram­leið­andi tölvu­leikja í Svíþjóða, Kanada og Banda­ríkj­unum.

Öllum hag­kerfum er nýsköpun nauð­syn­leg að mati Sig­ur­línu en nýsköp­unin er ekk­ert endi­lega bundin við nýja tækni, ný tæki eða nýja hluti. Hún er líka í því að finna upp nýjar leiðir og nýjar lausnir á vel þekktum vanda­málum.

„Ef við horfum til dæmis á mörg kerfi sem eru rík í okkar sam­fé­lagi, hvort sem það er heil­brigð­is­kerfi, mennta­kerfi eða stjórn­kerfi, þegar þau komu fram þá eru þau alltaf börn síns tíma. Svo þró­ast sam­fé­lagið og þarfir þegn­anna. Allt í einu kannski upp­lifum við að þau kerfi sem á ein­hverjum tíma virka ofsa­lega vel eru í dag orðin ákveðin hindrun á fram­þróun, af því þau hafa kannski ekki ekki þró­ast með sam­fé­lag­inu sem nýta þau. Það er alls ekk­ert eitt­hvað íslenskt vanda­mál. Ég held að það sé dálítið alþjóð­legt,“ segir Sig­ur­lína.

[links]Þörf er á nýsköpun alls staðar í sam­fé­lag­inu að hennar mati og finnst henni áhuga­vert að fylgj­ast með nýsköpun í tungu­mál­inu og hvernig það þró­ast í takt við þarfir sam­fé­lags­ins.

„Til dæmis þegar eru komin hug­tök yfir hluti sem áður var erfitt að koma í orð. Ég nefni sem dæmi þegar það skemmti­lega orð hrút­skýr­ingin kemur fram þá er þar komið orð sem nær full­kom­lega að kjarna eitt­hvað sem margar konur höfðu kann­ast við en var erfitt að ræða því orðið var ekki til. Annað hug­tak sem mér finnst mjög gagn­legt er þriðja vaktin, sem er hug­tak sem nær yfir heim­il­is­skipu­lag, eins og það að sjá um að panta læknis­tíma, eða skipu­leggja barna­af­mæli eða muna eftir gam­alli frænku sem þarf að heim­sækja á sjúkra­hús eða hvað það nú er. Oft er þetta safn óskil­greindra hluta en öll heim­ili kann­ast við þetta og þetta eru verk sem þarf að vinna. Þegar þetta hug­tak kemur upp, þriðja vaktin, þá nær það svo skemmti­lega utan um það. Það er líka áhuga­vert að fylgj­ast með þeirri umræðu sem þessi nýsköpun í mál­inu skapar.“

Margoft verið eina konan í herbergi fullu af karlmönnum

Sá hugs­un­ar­háttur var lengi ríkj­andi að tölvu­leikir séu fyrir drengi og karl­menn og tölu­vleikja­brans­inn hefur lengi verið mjög karllægur. „Svo ger­ist það í raun og veru á þessum tímum sem ég hef unnið í tölvu­leikjum að þeir sem taka ákvarð­anir í brans­anum átta sig á að tölvu­leikir höfða til miklu stærri hóps. En til þess að geta náð til fleiri þá þarftu að hafa fjöl­breytt­ara fólk sem býr til leik­ina,“ segir Sig­ur­lína.

„Ég fer að kynna mér þetta og átta mig á að ég hef upp­lifað þetta á eigin skinni. Ég hef svo margoft verið eina konan í her­bergi fullu af karl­mönnum og kannski upp­lifað að það er ein­hver ríkj­andi sýn, ég hef kannski haft aðrar hug­myndir. Mér hefur ekk­ert endi­lega liðið þannig að mínar hug­myndir væru sér­stak­lega vel­komnar eða að ég hefði hrein­lega kjark til að koma fram með ein­hverja hug­mynd sem væri mjög ólík þeim sem var verið að ræða. Og ef umhverfið er þannig að ekki allir þora að leggja orð í belg þá ertu með umhverfi sem missir af fullt af hug­myndum.“

Íslendingar óhræddir og hafa kjark til að gera alls konar

Í við­tal­inu talar Sig­ur­lína einnig um kjarkinn sem ein­kennir íslenskt við­skipta­líf og segir hún gaman að vera komin heim og sjá Ísland með nýjum gler­augum.

„Það sem ég hef mjög gaman af hér á Íslandi er að við erum frjáls­leg og við erum ekki að flækja hlut­ina of mikið fyrir okkur. Það er bæði styrkur en síðan þegar við erum Íslend­ingar í sam­skiptum við þessa erlendu félög þá skortir stundum skiln­ing­inn á þeirra umhverfi og við komum ekki alltaf nógu fag­mann­lega fram. Við áttum okkur ekki alltaf á því að við þurfum ekki bara að hugsa hvernig hlut­irnir eru gerðir á Íslandi heldur líka að hugsa um það hvaða vænt­ingar hefur þetta erlenda fyr­ir­tæki til okkar.“

Hún segir hug­mynda­auðgi ein­kenna okkar litla sam­fé­lag. „Íslend­ingar eru óhræddir og hafa kjark til að gera alls konar. Í þessum stærri sam­fé­lögum þá þarf fólk ein­hvern veg­inn að klifra lengra til þess að leyfa sér að vera stór­huga og gera nýja hluti. Miðað við hvað við erum lítil þjóð þá eigum við ótrú­lega stórt safn af fólki sem hefur gert alla konar hluti og erum svona í alþjóð­legum sam­an­burði svo­lítið ein­stök.“

Viðtalið við Sig­ur­línu má lesa í heild sinni í ára­móta­blaði Vís­bend­ingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjölbreytni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár