Segir óhófleg launakjör og sjálftöku tekjuhárra friðarspilli á vinnumarkaði

Gylfi Zoega segir að það sé óum­deilt að mikil lækkun vaxta hafi aukið mis­skipt­ingu. Ef lýð­ræð­is­lega kjörnum full­trúum finn­ist þessi áhrif á tekju- og eigna­dreif­ingu vera óæski­leg þá sé það þeirra að leið­rétta þau áhrif.

Gylfi Zoega, prófessor í hagfræði sem situr í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands.
Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði sem situr í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands. Mynd: Skjáskot/RÚV

Óumdeilt er að mikil lækkun vaxta hér á landi jafnt sem erlendis á COVID tím­anum jók mis­skipt­ingu eigna. „Þegar hluta­bréf hækka í verði þá hagn­ast þeir sem mest eiga af slíkum bréfum. Vaxta­lækkun hefur sömu­leiðis í för með sér hækkun á verði skulda­bréfa bæði ríkis og einka­að­ila sem eykur eignir þeirra sem slík bréf eiga. Hækkun hús­næð­is­verðs kemur sömu­leiðis þeim best sem stærstu eign­irnar eiga o.s.frv. Og þegar vextir nú hækka og búast má við lækkun eigna­verðs þá bitnar vaxta­hækk­unin mest á þeim sem minnstan höf­uð­stól hafa, þ.e.a.s. eigna­minnsta fólk­inu.“

Þetta skrifar Gylfi Zoega, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands og ytri með­limur í pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­banka Íslands, í grein sem birt­ist í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar. Þar fjallar Gylfi um stýri­vaxta­hækk­anir Seðla­bank­ans, sem eru til þess fallnar að vinna á auk­inni verð­bólgu. Gylfi tekur sér­stak­lega fram að þau við­horf sem komi fram í grein­inni end­ur­spegli ekki við­horf ann­arra með­lima pen­inga­stefnu­nefndar, sem tekur ákvarð­anir um stýri­vexti.

Stjórnmálamanna að bregðast við

Gylfi segir að í þessu sam­hengi, að mis­skipt­ing eigna hafi auk­ist á veiru­tím­anum og að vaxta­hækkun bitni mest á eigna­minnsta fólk­inu, verði að hafa í huga að rík­is­stjórn og Alþingi hafa lýð­ræð­is­legt umboð til þess að leggja á skatta og greiða bætur til ákveð­inna þjóð­fé­lags­hópa. „Ef að lýð­ræð­is­lega kjörnum full­trúum finnst áhrif pen­inga­stefnu á tekju- og eigna­dreif­ingu vera óæski­leg þá er það þeirra að beita sínum stjórn­tækjum til þess að leið­rétta þessi áhrif. Pen­inga­stefnu­nefnd eða Seðla­bank­inn hefur ekki umboð til slíkra aðgerða.“

[adspot]Í grein Gylfa segir að þegar verð­bólga fari vax­andi sé mik­il­vægt að kippa sem fyrst í taumana í stað þess að horfa upp á hana stig­magn­ast. „Það er auð­veld­ara að ná verð­bólgu niður fyrr en seinna en slíkt krefst þess að fyrstu skrefin í vaxta­hækk­un­ar­ferli séu stærri en þau sem á eftir koma. Sú aukn­ing verð­bólgu sem varð í vor vegna styrj­aldar í Úkraínu og sótt­varn­ar­að­gerðir í Kína var ekki fyr­ir­séð en reynslan frá átt­unda ára­tug síð­ustu aldar kennir okkur að tíma­bundin fram­boðs­á­föll geta valdið langvar­andi verð­bólgu ef spenna er mikil á inn­lendum vinnu­mark­aði.“

Mikilvægt að friður skapist á vinnumarkaði

Gylfi segir mik­il­vægt að friður skap­ist á vinnu­mark­aði þannig að bæði launa­fólk og atvinnu­rek­endur verði sáttir við sinn hlut í þjóð­ar­kök­unni og verð­bólgu­vand­inn magn­ist ekki frekar. „Þótt launa- og starfs­loka­samn­ingar for­stjóra vegi ekki þungt í þjóð­hags­legu sam­hengi né launa­kjör helstu ráða­manna, sveit­ar­stjóra eða ráðu­neyt­is­stjóra og ann­arra sem gegna trún­að­ar­stöðum, þá eru óhóf­leg launa­kjör og jafn­vel sjálf­taka þess­ara aðila frið­ar­spillir á vinnu­mark­aði og geta orðið til þess að verð­bólga verði erf­ið­ari viður­eignar.“

Hægt er að lesa grein Gylfa Zoega í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár