„Hægt væri að banna Airbnb í þéttbýli þegar skortur er á íbúðarhúsnæði“

Ef fleiri flytja til lands­ins en frá því verður til flókið sam­spil hag­stærða sem valda breyt­ingum á eft­ir­spurn og/ eða fram­boði á hús­næði með til­heyr­andi verð­hækk­unum eða lækk­unum. Tveir hag­fræð­ingar leggja til að kerf­inu verði breytt.

Gylfi Zoega er annar höfundur greinar sem birtist í nýjasta tölublaði Vísbendingar.
Gylfi Zoega er annar höf­undur greinar sem birt­ist í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar. Mynd: Skjáskot/RÚV

Ekki er allt með felldu í því sam­spili hag­stærða á Íslandi sem veldur miklum hækk­unum á hús­næð­is­mark­aði, sem leiðir svo af sér verð­bólgu sem leiðir af sér vaxta­hækk­anir sem leiða af sér hærri afborg­anir af hús­næð­is­lánum. Þetta skynji flestir og spurn­ingin er hvort það sé ekki kom­inn tími til að breyta þessu kerfi?

Að þessu spyrja hag­fræð­ing­arnir Gylfi Zoega, pró­fessor við Háskóla Íslands, og Kjartan B. Bragason, sem er sjálf­stætt starf­andi, í grein sem þeir skrifa saman í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar.

Í grein­inni benda þeir á að það væri til dæmis hægt að „láta hækk­anir á verði íbúð­ar­hús­næðis koma hægar inn í vísi­tölu neyslu­verðs eins og margoft hefur verið bent á. Það væri einnig hægt að láta fast­eigna­gjöld fara eftir stærð híbýla en ekki mark­aðs­verði vegna þess að stærð mælir fremur þjón­ustu­þörf en mark­aðs­verð­mæti, fjölda ein­stak­linga sem búa í eign.“

[adspot]Þá gætu ríki, sveit­ar­fé­lög eða líf­eyr­is­sjóðir látið byggja hús­næði til þess að mæta óvæntri eft­ir­spurn í fram­tíð­inni og dregið þannig úr verð­sveiflum. „Hægt væri að banna Airbnb í þétt­býli þegar skortur er á íbúð­ar­hús­næði og setja reglur um að vextir á lánum til þess að kaupa íbúð­ar­hús­næði til leigu séu hærri en til kaupa á eigin hús­næði.“

Væntingar um hærra gengi valda gengishækkun

Hér eigi sér stað flókið sam­spil þar sem fólks­fjölgun – í formi aðfluttra umfram brott­fluttra – geti valdið veru­legum ófyr­ir­séðum breyt­ingum á eft­ir­spurn og/ eða fram­boði á hús­næði með til­heyr­andi verð­hækk­unum eða lækk­unum auk þess sem vaxta­breyt­ingar Seðla­bank­ans hafi mikil áhrif á hús­næð­is­verð. „Samspil hús­næð­is­verðs, fast­eigna­mats, verð­bólgu og vaxta verður nú enn flókn­ara þegar í ljós kemur að sveiflur raun­gengis auka aðflutn­ing fólks til lands­ins sem síðan veldur hækkun hús­næð­is­verðs, sem veldur hærri verð­bólgu­mæl­ingu, hækkun höf­uð­stóls verð­tryggðra lána, hærri fast­eigna­gjöldum og hækk­andi vöxtum seðla­banka. En hvað veldur hærra raun­gengi?.“

Þeir svara spurn­ing­unni svo sjálfir og segja ýmsa þætti koma þar við sögu. Bætt við­skipta­kjör, auk­inn sjáv­ar­afli, fleiri erlendir ferða­menn, færri Íslend­ingar sem fara til útlanda og erlendar fjár­fest­ingar leiða til að mynda til hærra raun­gengis. „Ekki þarf annað en að vænt­ingar mynd­ist um hærra gengi krón­unnar og útflytj­endur flýti sér að skipta erlendum gjald­eyri í krónur sem síðan veldur geng­is­hækkun og þar með hærra raun­gengi sem svo hefur þau áhrif sem hér hefur verið lýst.“

Hægt er að lesa grein Gylfa og Kjartans í heild sinni með því að ger­­­­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár