Umhverfisáhrif virkjana þurfi að meta til fjár

Hag­fræð­ingur segir mat virkj­ana­kosta í ramma­á­ætlun ýmsum ann­mörkum háð og bendir á að nið­ur­stöður mats á umhverf­is­á­hrifum hafi ekki áhrif á arð­sem­is­mat virkj­ana­kosta.

Ef tekið væri tillit til alls umhverfiskostnaðar í tilfelli Urriðafossvirkjunar myndi kostnaður hækka um 60 prósent. Það hefði sennilega einhver áhrif á arðsemismat virkjunarinnar, ritar Ágúst Arnórsson í Vísbendingu, en útilokar ekki frekari virkjanir.
Ef tekið væri til­lit til alls umhverfis­kostn­aðar í til­felli Urriða­foss­virkj­unar myndi kostn­aður hækka um 60 pró­sent. Það hefði senni­lega ein­hver áhrif á arð­sem­is­mat virkj­un­ar­innar, ritar Ágúst Arn­órs­son í Vís­bend­ingu, en úti­lokar ekki frek­ari virkj­anir. Mynd: Samsett/Kjarninn

Núgild­andi aðferða­fræði við ein­kunna­gjöf virkj­ana­kosta innan ramma­á­ætl­unar er ýmsum ann­mörkum háð, þar sem ein­kunna­gjöfin nær ekki að end­ur­spegla raun­veru­leg verð­mæti þar sem arð­sem­is­mat virkj­ana tekur ekki til­lit til umhverf­is­á­hrifa þeirra. Þetta kemur fram í grein Ágúst Arn­órs­sonar hag­fræð­ings í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar, sem birt­ist áskrif­endum síð­asta föstu­dag.

„Nið­ur­stöður mats á umhverf­is­á­hrifum hafa ekki áhrif á arð­sem­is­mat og rask á nátt­úr­unni er því oft afgreitt sem til­finn­ingarök þegar kemur að ákvörð­unum um virkj­ana­fram­kvæmdir. En þetta þarf ekki að vera svona. Til eru fjöl­margar mats­að­ferðir þar sem umhverf­is­á­hrif eru metin til fjár – svo­kall­aðar hag­rænar mats­að­ferðir,“ ritar Ágúst.

Í grein sinni fjallar hann um mat Urriða­foss­virkj­unar sem er neðsti virkj­ana­kost­ur­inn í Þjórsá sam­kvæmt núgild­andi ramma­á­ætlun. Samkvæmt kostn­að­ar­flokkun Orku­stofn­unar, sem miðað er við í ramma­á­ætlun, er Urriða­foss­virkjun hag­kvæm miðað við aðra virkj­un­ar­kosti en hins vegar sé ekki tekið til­liti til umhverf­is­á­hrifa virkj­un­ar­innar.

Hafa áhyggjur af laxastofninum

Í fyrr­nefndu mati á Urriða­foss­virkjun voru við­horf og afstaða þjóð­ar­innar til fram­kvæmd­ar­innar könnuð. Farið var yfir hvernig virkj­un­ar­kostum er raðað í ljósi ráð­gjafar og rann­sókna fag­hópa í ramma­á­ætlun og virkj­un­inni lýst ásamt væntum umhverf­is­á­hrifum og mót­væg­is­að­gerðum. Að því loknu voru þátt­tak­endur í könn­un­inni beðnir um að raða Urriða­fossi í orku­nýt­ingar- eða vernd­ar­flokk út frá þeim upp­lýs­ingum sem lágu fyrir. 41,5% aðspurðra settu Urriða­foss­virkjun í orku­nýt­ing­ar­flokk en tæp 36% töldu hana eiga heima í vernd­ar­flokki.

Þeir sem völdu orku­nýt­ing­ar­flokk nefndu helst að umhverf­is­á­hrifin væru lítil sam­kvæmt fag­hópum eða að þörf væri á meiri orku. Á þriðja tug þeirra sem völdu orku­nýt­ing­ar­flokk tóku sér­stak­lega fram að þeir hefðu áhyggjur af far­sæld laxa­stofns­ins. Af þeim sem töldu rétt að færa Urriða­foss í vernd­ar­flokk nefndu tæp­lega tvö hund­ruð að staða laxa­stofns­ins skipti mestu þar um.

Breytt kostnaðarmat útiloki ekki frekari virkjanir

Ágúst segir að sam­hliða sífellt vax­andi áherslu á kostn­aðar- og ábata­mat verði umfang umhverf­is­á­hrifa að taka alvar­lega. „Samkvæmt þeim mats­ramma þarf að bera öll vel­ferð­ar­á­hrif saman við allan kostnað vegna fyr­ir­hug­aðra fram­kvæmda yfir líf­tíma verk­efn­is­ins. Ef ábati er meiri en kostn­að­ur­inn telst verk­efnið arð­bært og auka vel­sæld, ann­ars ekki. Við gætum borið kostn­að­inn af því að segja upp stór­iðju­samn­ingi saman við annan kostnað sem hlýst af nýrri virkj­un­ar­fram­kvæmd, þar með talið umhverfis­kostnað.“

Hann bendir á að í til­felli Urriða­foss myndi heild­ar­kostn­aður virkj­un­ar­innar hækka um 60 pró­sent ef svo væri. „Það hefði senni­lega ein­hver áhrif á arð­sem­is­matið, en úti­lokar ekki frek­ari virkj­anir,“ ritar Ágúst Arn­órs­son.

Hægt er að lesa grein Ágústs í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár