Meira framboð nauðsynlegt til að aðgerðir Seðlabankans virki

Hag­fræð­ingur hjá Íslands­banka segir aðgerðir Seðla­bank­ans til að bregð­ast við verð­hækk­unum á íbúða­mark­aði og auk­inni skuld­setn­ingu heim­ila ekki enn hafa haft til­ætluð áhrif. Til þess þurfi aukið fram­boð íbúða.

Bergþóra Baldursdóttir, hagfræðingur hjá Íslandsbanka.
Bergþóra Bald­urs­dóttir, hag­fræð­ingur hjá Íslands­banka. Mynd: Aðsend/Íslandsbanki

Miklar verð­hækk­anir umfram lang­tíma­þætti og aukin skuld­setn­ing fyrstu kaup­enda á íbúða­mark­aði er tölu­vert áhyggju­efni, að mati Bergþóru Bald­urs­dóttur, hag­fræð­ings hjá Íslands­banka. Samkvæmt henni er lík­legt að aðgerðir Seðla­bank­ans til að bregð­ast við þess­ari þróun muni ekki hafa til­ætluð áhrif fyrr en fram­boð íbúða verði aukið hér­lendis.

Í grein sem Bergþóra skrif­aði í síð­asta tölu­blaði Vís­bend­ingar fer Bergþóra yfir áhrif far­ald­urs­ins á íbúða­mark­að­inn. Þar segir hún það vera mjög óvenju­legt að íbúða­verð hækki svo hratt á sama tíma og hag­kerfi dregst saman, líkt og raunin var eftir að far­ald­ur­inn skall á. Sú þróun hafi hins vegar ekki verið eins­dæmi fyrir Ísland, en íbúða­verð hækk­aði einnig mjög hratt í öðrum OECD-ríkjum.

Þar, líkt og hér­lendis, áttu aðgerðir stjórn­valda í byrjun far­ald­urs­ins örvandi áhrif á íbúða­mark­að­inn, en Bergþóra segir hegð­un­ar­breyt­ingar vegna útbreiðslu veirunnar og aukna heima­vinnu einnig hafa stuðlað að verð­hækk­unum. Vís­bend­ingar séu þó uppi um að þessar breyt­ingar, sem Bergþóra nefnir kór­ón­u­á­hrifin, séu að mestu að fjara út núna.

Verð­hækk­an­irnar hafa valdið því að íbúða­verð er nú vikið veru­lega frá þeim þáttum sem til lengri tíma eru taldir ráða þróun þess. Sömu­leiðis nefnir Bergþóra að skuldir heim­il­anna hafi auk­ist, þar sem nú þarf að taka lán fyrir stærri upp­hæðir til að eign­ast hús­næði. Sér­stak­lega hafi skuld­irnar, sem og greiðslu­byrði lána, auk­ist á meðal fyrstu kaup­enda á hús­næð­is­mark­aði.

Fleiri íbúðir og meiri fyrirsjáanleiki nauðsynlegur

„Þetta er tölu­vert áhyggju­efni,“ segir Bergþóra og bætir hún við að Seðla­bank­inn hafi gripið til aðgerða til að bregð­ast við þess­ari þróun, líkt og hækkun stýri­vaxta, reglur um hámark veð­setn­ing­ar­hlut­falls og reglur um hámarks­greiðslu­byrði á nýjum íbúða­lánum. Hins vegar hafi þessar aðgerðir ekki haft til­ætluð áhrif á íbúða­mark­að­inn, en telja megi lík­legt að auka þurfa fram­boð íbúða til þess að þær geri það.

Samkvæmt Bergþóru er erfitt fyrir íbúða­mark­að­inn að bregð­ast við sveiflum í eft­ir­spurn, þar sem að jafn­aði tekur um tvö ár að byggja hverja íbúð. Þó sé bæði mögu­legt og afar æski­legt að hafa meiri fyr­ir­sjá­an­leika um stöðu og upp­bygg­ingu nýrra íbúða á fram­boðs­hlið­inni en sé núna, ásamt því að vera með skýra sýn á íbúða­þörf­ina næstu árin. „Það myndi í það minnsta draga úr líkum á jafn öfga­kenndum sveiflum og við höfum séð upp á síðkastið,“ bætir hún við.

Hægt er að lesa grein Bergþóru í heild sinni með því að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

vísbending

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár