Verð á matvöru hefur hækkað um rúmlega 13 prósent á tveimur árum

Mat- og drykkj­ar­vara hefur hækkað frá því heims­far­aldur hófst. Í grein í Vís­bend­ingu veltir Auður Alfa Ólafs­dóttir því upp hvort fákeppni á mat­vöru­mark­aði hér­lendis hafi áhrif á vöru­verð ekki síður en trufl­anir í fram­leiðslu vegna heims­far­ald­urs COVID-19.

Hærra verð á matvöru í heimsfaraldri er staðreynd, en fákeppni gæti verið ástæðan ekki síður en COVID-19.
Hærra verð á mat­vöru í heims­far­aldri er stað­reynd, en fákeppni gæti verið ástæðan ekki síður en COVID-19. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Und­an­farin tvö ár hefur verð á mat­vöru hækkað um 13,3 pró­sent hér á landi, sem er skarpasta hækkun á mat- og drykkj­ar­vöru frá tíma­bil­inu eftir fjár­mála­hrun. Þetta segir Auður Alfa Ólafs­dóttir sér­fræð­ingur í umhverfis- og neyt­enda­málum og verk­efn­is­stjóri verð­lags­eft­ir­lits ASÍ í grein í Vís­bend­ingu sem kom út á föstu­dag.

„Til að setja þessa hækkun í sam­hengi hækk­aði verð á mat- og drykkj­ar­vöru um 32,1 pró­sent á tíu ára tíma­bili, frá apríl 2012 til apríl 2022. Matur og drykkj­ar­vara er nauð­synja­vara og koma verð­hækk­anir á þessum vöru­flokki því illa við almenn­ing og bitna helst á þeim sem minnst hafa. Töluverð umræða hefur því skap­ast í sam­fé­lag­inu um til­drög, rétt­mæti og áhrif verð­hækk­ana á mat­vöru í Covid far­aldr­inum og nú síð­ast í kjöl­far stríðs­ins í Úkraínu,“ segir enn­fremur í grein Auðar.

Umræðan einsleit hér á landi

Hún segir umræð­una hér á landi hafa verið eins­leita og mest­megn­ist snú­ast um hversu mikið megi búast við að verð á mat­vöru muni hækka.

„Minna hefur verið fjallað um fákeppni og áhrif hennar á verð­lag þrátt fyrir að mikil sam­þjöppun sé á íslenskum mat­vöru­mark­aði og vitað sé að skortur á sam­keppni leiði til hærra verð­lags. Sú umræða er hins vegar í fullum gangi í nágranna­lönd­unum þar sem mat­vara hefur hækkað mikið í verði á sama tíma og afkoma mat­vöru­versl­ana hefur vænkast mikið,“ segir Auður og bendir á að alþjóða­stofn­anir hafi einnig fjallað um hætt­una á að fyr­ir­tæki mis­noti stöðu sína í far­aldr­inum og hækki verið umfram til­efni auk þess sem stjórn­völd í sumum löndum hafi fylgst með gangi mála og sum gripið til aðgerða.

Hún segir að engum dylj­ist að trufl­anir í fram­leiðslu hafi haft áhrif á fram­boð vöru og þjón­ustu og þar með á rekstur mat­vöru­versl­ana og mögu­lega ver ðtil neyt­enda, en vafi leiki hins vegar á að hve miklu margi þessir þættir ættu að hafa áhrif á smá­sölu­verð á mat­vöru. „Þrátt fyrir ýmis skakka­föll í kjöl­far Covid má segja að verslun á Íslandi hafi blómstrað í far­aldr­inum, þ.m.t. verslun með mat­vöru.“

Grein Auða Ölfu má nálg­ast í nýjasta hefti Vís­bend­ingar, sem sent var áskrif­endum á föstu­dag. Hægt er að ger­ast áskrif­andi með því að smella hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

matvöruverslun

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár