Algjör óþarfi að hamstra mat

Það er engin ástæða fyrir íslenskan almenn­ing að hamstra mat eða aðrar nauð­synja­vörur. Það er nóg til af mat og nóg til af lyfjum, segir fram­kvæmda­stjóri Samtaka versl­unar og þjón­ustu. Hamstur veldur óþarfa álagi á versl­un­ar­fólk.

„Við hvetjum almenning til að haga innkaupum sínum til heimilisins með eðlilegum hætti, það er engin ástæða til annars,“ sagði Andrés.
„Við hvetjum almenn­ing til að haga inn­kaupum sínum til heim­il­is­ins með eðli­legum hætti, það er engin ástæða til ann­ars,“ sagði Andrés. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Andrés Magn­ús­son, fram­kvæmda­stjóri Samtaka versl­unar og þjón­ustu, seg­ist hafa heyrt frá versl­un­ar­fólki að síð­ustu daga hefði það upp­lifað Þor­láks­messu-traffík, algjör­lega að ástæðu­lausu. Hann kom því á fram­færi við þjóð­ina að engin ástæða væri til þess að hamstra mat og óþarfa hamstur setti gíf­ur­legt og óþarft álag á versl­un­ina í land­inu.

„Það eru til nægar birgðir af mat í land­inu, bæði af inn­fluttum mat og inn­lendum mat. Það er engin ástæða til þess fyrir almenn­ing í þessu landi að hamstra mat eða aðrar nauð­synja­vörur til heim­il­is­ins,“ sagði Andrés á blaða­manna­fundi í sam­hæf­ing­ar­stöð almanna­varna í Skóg­ar­hlíð í dag. [links]

„Við hvetjum almenn­ing til að haga inn­kaupum sínum til heim­il­is­ins með eðli­legum hætti, það er engin ástæða til ann­ars,“ sagði Andrés og bætti við að sömu­leiðis væri engin ástæða til þess að hamstra lyf í apó­tek­unum, óvenju mikið væri til af lyfjum í land­inu.

[adspot]

Sam­komu­bann verður í gildi á Íslandi frá og með aðfara­nótt mánu­dags. Und­an­farna daga hafa borist fréttir af miklu álagi í mat­vöru­versl­unum, jafn­vel þannig að ekki gef­ist ráð­rúm til þess að fylla jafn­óðum á hill­urnar. Þegar sam­komu­bannið tekur gildi verður lagt bann við því að fleiri en 100 manns verði á sama stað á sama tíma.

Bannið mun gilda um stór­mark­aði og aðrar versl­anir og verður fjölda þeirra sem geta verslað í einu í þeim stýrt, þótt útfærsla á því liggi ekki fyr­ir að svo stöddu. Það er þó engin ástæða fyrir fólk að rjúka til núna og hamstra mat, þar sem nægar birgðir eru til í land­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár