Þetta felst í samkomubanninu

Sam­komu­bann mun skella á eftir helgi. Hér er hægt að nálg­ast helstu upp­lýs­ingar um hvað það felur í sér, til hverra það nær, hvenær það tekur gildi og af hverju það verður sett á.

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Sótt­varn­ar­læknir hefur sent heil­brigð­is­ráð­herra til­lögu um að virkja heim­ildir sótt­varn­ar­laga til að setja á sam­komu­bann á Íslandi. Heil­brigð­is­ráð­herra hefur tekið ákvörðun um að sam­þykkja til­lög­una.. Markmið banns­ins er að hefta útbreiðslu COVID-19 sjúk­dóms­ins svo að heil­brigð­is­þjón­ustan eigi auð­veld­ara með að takast á við álag í tengslum við veiru­sjúk­dóm­inn.

Hvað felst í samkomubanninu?

Allar sam­komur sem fleiri en 100 manns koma saman á vera bann­aðar. Bannið mun til að mynda gilda um stór­mark­aði og verður fjölda þeirra sem geta verslað í einu í þeim stýrt, þótt útfærsla á því liggi ekki fyrir. Yfirvöld hafa sagt skýrt að birgða­staða á mat og lyfjum á Íslandi, og öðrum nauð­syn­legum vörum, sé góð og eng­inn þurfi að ótt­ast vöru­skort. Bannið mun sömu­leiðis gilda um við­burði eins og íþrótta­kapp­leiki, tón­leika og aðra þar sem stór hópur fólks kemur saman.

[adspot]Samhliða verður skóla­hald tak­markað þannig að háskólar og fram­halds­skólar loka en tak­mark­anir verða í gildi á starf­semi grunn- og leik­skóla. Þær tak­mark­anir ganga út á að börn verði í sem minnstum hópum og aðskilin eins og kostur er á. Kennurum verður fjölgað ef með þarf til að mæta þess­ari stöðu.

Hvenær tekur það gildi og hvað gildir það lengi?

Frá og með mið­nætti 15. mars næst­kom­andi, eða strax eftir kom­andi helgi og mun gilda, að minnsta kosti til að byrja með, í fjórar vikur.

Eru undanþágur?

Sam­komu­bannið tekur ekki til alþjóða­flug­valla eða alþjóða­hafna en þar verða sótt­varð­ar­ráð­staf­anir efldar og lögð áhersla á úrræði til að draga úr smit­hættu. Aðrar und­an­þágur hafa ekki verið til­greindar af stjórn­völdum.

Hverju breytir samkomubannið í baráttunni gegn útbreiðslu kórónuveirunnar?

Viðbrögð hingað til hafa beinst gegn fljótri grein­ingu ein­stak­linga, ein­angrun sýktra og sótt­kví þeirra sem grun­aðir eru um smit. Þá hafa verið sendar út leið­bein­ingar til almenn­ings, stofn­ana og fyr­ir­tækja til að sporna við útbreiðslu veirunnar og sér­stök áhersla verið lögð á að vernda við­kvæma hópa, til að mynda með heim­sókn­ar­bönnum á dval­ar­heim­ili aldr­aðra, Lands­spít­ala og á aðrar heil­brigð­is­stofn­anir. Þá hefur verið biðlað til heil­brigð­is­starfs­manna að fresta öllum utan­lands­ferðum­Allar þær aðgerðir verða áfram virkar en sam­komu­bannið bæt­ist við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár