Ekki fara beint úr sóttkví í sýnatöku til Kára

Sótt­varna­læknir brýnir fyrir fólki í sótt­kví að freist­ast ekki til þess að skjót­ast í sýna­töku til Íslenskrar erfða­grein­ingar. 128 hafa greinst með COVID-19 hér á landi. Land­læknir segir læknum að ávísa ein­ungis eðli­legu magni lyfja til fólks.

Skilaboð sóttvarnalæknis eru þau að fólk eigi alls ekki að yfirgefa sóttkví til þess að fara í sýnatöku til Íslenskrar erfðagreiningar.
Skilaboð sótt­varna­læknis eru þau að fólk eigi alls ekki að yfir­gefa sótt­kví til þess að fara í sýna­töku til Íslenskrar erfða­grein­ingar. Mynd: Íslensk erfðagreining

Hundrað tutt­ugu og átta manns hafa nú greinst með COVID-19 hér á landi. Flest smitin tengj­ast sem fyrr skíða­svæðum í Ölpunum en „það eru fleiri lönd að koma inn í þetta,“ að sögn Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis sem greindi frá því á upp­lýs­inga­fundi kl. 14 í dag að fólk sem hefði nýlega komið frá bæði Danmörku og Bret­landi hefði greinst með veiruna.

Ekki hefur tek­ist að rekja upp­runa þriggja smita hér á landi og var ekki óvið­búið að sú staða kæmi upp, að sögn Þórólfs. „Samt verður að segj­ast eins og er að maður er ánægður með að það hafi ekki greinst fleiri svona óvænt smit inn­an­lands, enn sem komið er,” sagði sótt­varna­læknir á fund­inum. Tveir sjúk­lingar liggja inni á Land­spít­ala með COVID-19, hvor­ugur á gjör­gæslu.

Mikið prófað hér á landi miðað við önnur ríki

Búið er að taka um 1.230 sýni, sem þýðir að það er búið að prófa um 0,3% þjóð­ar­innar fyrir veirunni. Þórólfur sagði það mikið í alþjóð­legum sam­an­burði og að það skýrði vænt­an­lega hversu margar sýk­ingar hafa greinst hér á landi miðað við höfða­tölu.

[links]

Til þessa er búið að reyna að tefja fram­gang far­ald­urs­ins hér­lendis með ein­angrun fólks og með því að fá að almenn­ing og fyr­ir­tæki til að grípa til ákveð­inna var­úð­ar­ráð­staf­ana. Þórólfur segir að þessu stigi sé nú ef til vill lokið, eftir að stjórn­völd boð­uðu að blásið yrði til sam­komu­banns frá og með aðfara­nótt mánu­dags.

„Sú aðgerð, henni er ætlað að hindra dreif­ingu veirunnar enn meira,” sagði sótt­varna­læknir. Framhald aðgerða mun ráð­ast af fram­gangi far­ald­urs­ins, meðal ann­ars því hvernig sýna­töku Íslenskrar erfða­grein­ingar ganga. Fyr­ir­tækið ráð­gerir taka um 1.000 sýni á dag frá öllum þeim sem vilja láta skima sig fyrir veirunni og hófst sýna­takan í dag.

Þórólfur sagð­ist hafa heyrt af því að fólk sem væri í sótt­kví, sökum þess að það hefði orðið útsett fyrir smiti, hefði verið að panta sér tíma í sýna­tökur. Hann ráð­leggur fólki í sótt­kví ein­dregið að fara ekki í sýna­tök­una. Það væri bæði brot á sótt­kví­ar­reglum og einnig væri það mögu­leiki að fólk fengi „falskt nei­kvætt sýni“ þrátt fyrir að vera með veiruna og freist­að­ist í kjöl­farið til þess að yfir­gefa sótt­kvína. „Ég vil ein­dregið vara við þessu,“ sagði Þórólfur.

Læknar passi upp á lyfjaávísanir

Alma Möller land­læknir benti almenn­ingi á að skoða vef­síð­una covid.is, nýja upp­lýs­inga­síðu land­lækn­is­emb­ætt­is­ins og almanna­varna, þar sem finna má mikið magn upp­lýs­inga um COVID-19.

Hún sagði að lyfja­birgðir í land­inu hefðu verið auknar, en þrátt fyrir það væri mik­il­vægt að læknar ávís­uðu lyfjum ekki í óhófi. „Það er mik­il­vægt að ávísað magn lyfja hald­ist sem eðli­leg­ast, því ann­ars gætu lyf hlað­ist upp hjá sumum sjúk­lingum á meðan öðrum skorti,“ sagði land­læknir og bætti við að apó­tekum lands­ins hefði verið fyr­ir­skipað að afgreiða ekki óþarf­lega mikið af lyfjum til fólks.

Nú þegar hafa 260 skráð sig í bak­varða­sveit heil­brigð­is­kerf­is­ins, fjöldi sjúkra­liða, hjúkr­un­ar­fræð­inga og lækna, bæði til þess að sinna COVID-19 sjúk­lingum og einnig til þess að vera til taks og ganga í önnur störf innan heil­brigð­is­kerf­is­ins, ef álag á kerfið eykst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár