Að ferðast á tímum kórónuveirunnar

Ertu á leið í ferða­lag eða að velta því fyrir þér að fara í ferða­lag og ert óviss vegna Covid-19 veirunnar?

Ef þú ert þegar staddur erlendis á ferða­lagi brýnir land­læknir fyrir þér að fara eftir ákveðnum leið­bein­ingumsem finna má hér að neðan. Sérstök athygli er vakin á því að sótt­varna­læknir mælir gegn ónauð­syn­legum ferðum á svæði með mikla smitá­hættu. Ef þú hefur verið á slíkum svæðum, skaltu vera heima í sótt­kví í 14 daga eftir heim­komu.

Ertu staddur erlendis?

  • Fylgstu vel með ferða- og sam­komu­tak­mörk­unum á þeim svæðum sem þú heim­sækir og aðlag­aðu ferða­á­ætl­anir eins og þurfa þykir.
  • Þú getur skráð ferðir þínar hjá utan­rík­is­ráðu­neyt­inu. Upp­lýs­ingar í grunn­inum verða aðeins not­aðar í örygg­is­skyni og til að hægt sé að ná í þig ef þörf krefur.
  • Ferða­mála­stofa hefur tekið saman helstu upp­lýs­ingar um rétt­indi fólks vegna ferða­laga. Einnig er gott að þú hafir sam­band við trygg­inga­fé­lagið þitt vegna skil­mála ferða­trygg­inga.
  • Gættu vel að almennu hrein­læti, sér­stak­lega hand­þvotti með sápu og vatni.
  • Forðastu umgengni við villt dýr og dýr á mörk­uðum meðan á ferða­lagi stendur.
  • Smit­hætta á hinum ýmsu svæðum getur breyst hratt. Fylgstu reglu­lega með upp­lýs­ingum frá land­lækni um svæði með smitá­hættu. Í neyð getur þú haft sam­band við neyð­ar­númer borg­ara­þjón­ustu utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, 545 0112. Þar færðu upp­lýs­ingar allan sól­ar­hring­inn.

Skemmtiferðaskip og önnur sem koma til landsins

Öll skip sem koma til lands­ins erlendis frá þurfa nú að veita Land­helg­is­gæsl­unni sér­staka heil­brigð­is­yf­ir­lýs­ingu vegna COVID-19 áður en þau fá heim­ild til að koma til hafnar. Vegna núver­andi aðstæðna ber skip­stjórum og skips­læknum, ef þeir eru um borð, að fylla út sér­stakt eyðu­blað sem getur gefið upp­lýs­ingar um COVID-19 smit. Skipum verður ekki hleypt til hafnar nema eyðu­blaðið ber­ist Land­helg­is­gæsl­unni. Stjórn­stöð Land­helg­is­gæsl­unnar sendir eyðu­blaðið til skip­anna.

Ef þú starfar í ferða­þjón­ustu þar sem smit kemur upp þarf ákveðið ferli að fara í gang sam­kvæmt leið­bein­ingum.

Ertu á leið til útlanda?

Á heima­síðu Ferða­mála­stofu er að finna ítar­legar leið­bein­ingar fyrir fólk sem hefur bókað ferðir, hótel, flug eða gist­ingu og hver rétt­indi þeirra eru.

Ef þú hefur keypt pakka­ferð áttu alltaf rétt á að afpanta pakka­ferð, hvenær sem er áður en ferð er farin, segir í sam­an­tekt­inni. Seljandi pakka­ferð­ar­innar á þó rétt á að halda eftir þóknun eða stað­fest­ing­ar­gjaldi í sam­ræmi við skil­mála ferð­ar­innar. Á því er und­an­tekn­ing ef óvenju­legar og óvið­ráð­an­legar aðstæður eru á ferða­stað eða í næsta nágrenni.

Óvenju­legar og óvið­ráð­an­legar aðstæður geta t.d. verið útbreiðsla far­sótta eða sjúk­dóma sem hafa afger­andi áhrif á ferða­lög til við­kom­andi staða. Í þeim til­vikum á ferða­maður rétt á að fá fulla end­ur­greiðslu. Þessar aðstæður þarf að meta í hverju til­viki út frá aðstæðum á ferða­stað. Ferða­skrif­stofu ber að end­ur­greiða verð ferð­ar­innar innan 14 daga frá afpöntun. Leiða má að því líkur að ef heil­brigð­is­yf­ir­völd vara almennt við ferða­lögum til við­kom­andi staðar eða ef ferða­bann er í gildi, sé um að ræða óvenju­legar og óvið­ráð­an­legar aðstæður.

Ef þú hefur keypt pakka­ferð og ferða­skrif­stofan ákveður að aflýsa pakka­ferð­inni þá áttu rétt á fullri end­ur­greiðslu. Ferða­skrif­stof­unni ber að end­ur­greiða verð ferð­ar­innar innan 14 daga frá aflýs­ingu ferð­ar­innar.

Neyt­enda­stofa hefur eft­ir­lit með ákvæðum pakka­ferða­laga sem snúa að afpöntun og aflýs­ingu pakka­ferðar. Nánari upp­lýs­ingar veitir Neyt­enda­stofa í síma 510-1100. Upp­lýs­ingar má einnig finna á vef Neyt­enda­stofu.

Ef flugi er aflýst

Ef þú hefur ein­göngu keypt flug og flug­fé­lagið aflýsir flug­inu þá áttu rétt á end­ur­greiðslu frá flug­fé­lag­inu.

Ef þú vilt hætta við ferð­ina og afpantar flug­miða sem þú varst búinn að kaupa þá áttu ekki rétt á end­ur­greiðslu frá flug­fé­lag­inu nema annað komi fram í skil­málum flug­fé­lags­ins. Þú átt hins vegar alltaf rétt á end­ur­greiðslu á sköttum og gjöldum sem þú greiddir sem voru hluti af heild­ar­verði flugs­ins.

Ef þú hefur keypt gist­ingu sem sam­kvæmt skil­málum er óend­ur­greið­an­leg þá áttu ekki rétt á end­ur­greiðslu frá gisti­staðnum.

Á vef­síðum ein­hverra trygg­inga­fé­laga hafa verið teknar saman helstu upp­lýs­ingar um ferða­trygg­ingar og Covid-19 veiruna. Hverjum og einum er ráð­lagt að hafa sam­band við sitt trygg­ing­ar­fé­lag og athuga rétt sinn þar sem skil­málar eru mis­mun­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár