Hver komufarþegi kostaði samfélagið að minnsta kosti 80 þúsund krónur

Pró­fessor í hag­fræði segir að Íslend­ingar hafi þurft að færa fórnir að and­virði tuga þús­unda króna með hverjum far­þega sem kom til lands­ins í sumar.

Tinna Laufey Ásgeirsdóttir, prófessor í hagfræði við Háskóla Íslands.
Tinna Laufey Ásgeirs­dóttir, pró­fessor í hag­fræði við Háskóla Íslands. Mynd: Skjáskot- HÍ

Sam­fé­lags­legur auka­kostn­aður hvers komu­far­þega til lands­ins í sumar nam að minnsta kosti 80 þús­und krónum. Þetta er mat Tinnu Lauf­eyjar Ásgeirs­dóttur, pró­fess­ors í hag­fræði við Háskóla Íslands.

Háskól­inn birti fyrr í dag mynd­band með Tinnu Laufeyju þar sem hún fer yfir eina leið til þess að fram­kvæma mat á hag­kvæmni fyr­ir­komu­lags á landa­mær­unum.

Í mynd­bandi sínu mælir hún tvo kostn­að­ar­liði sem hljót­ast af komu­far­þegum til lands­ins sem ekki eru inni­faldir í miða­verði þeirra: Annars vegar aukna smit­hættu, sem eykur líkur á sótt­kví og ein­angrun, og hins vegar hertar sótt­varn­ar­að­gerðir, sem fela í sér sam­komu- og fjar­lægð­ar­tak­mörk.

Aukin áhætta og hertar aðgerðir

Kostn­að­ur­inn af auk­inni smit­hættu er mældur með því að meta virði þess að þurfa ekki að vera í sótt­kví eða ein­angrun. Í því til­viki mælir hún hversu mikið fram­leiðslutap hlýst af slíkum aðgerðum, auk þess sem hún ber saman fjölda komu­far­þega í sumar við fjölda fólks sem var í sótt­kví á sama tíma.

Samkvæmt henni er kostn­aður hvers komu­far­þega vegna auk­innar smitá­hættu met­inn á að minnsta kosti tíu þús­und krónur, en bætir þó við að um lík­legt van­mat sé að ræða þar sem aðferð hennar geri ráð fyrir að frí­tími fólks sé einskis virði.

Til við­bótar við aukna smitá­hættu bætir Tinna Laufey við nei­kvæðu ytri áhrifin sem hljót­ast af almennum sótt­varn­ar­að­gerðum inn­an­lands og hversu mikið fólk sé til­búið að greiða til þess að losna við þær. Í því til­felli sé matið er aðeins vanda­sam­ara, en Tinna segir að kostn­að­inn sé hægt að meta með ýmsum aðferðum.

Hún byggir matið sitt á spurn­inga­listum þar sem spurt var hversu mikið fólk væri til­búið að borga til þess að losna við þessar aðgerðir. Tinna við­ur­kennir að þessi aðferð er talin síðri en aðrar, en útskýrir þó að hún að gott sé að styðj­ast við hana þar sem aðferðin býður upp á var­færið mat á kostn­að­inum.

Hér fyrir ofan má sjá mynd­band Tinnu Lauf­eyjar

Útreikn­ingar Tinnu Lauf­eyjar benda til þess að hver ein­stak­lingur væri til­bú­inn að greiða að minnsta kosti þús­und krónur á dag til þess að þurfa ekki að búa við gild­andi fjar­lægðar- og sam­komu­tak­mörk. „Fólk getur svo sjálft metið hvort þessi upp­hæð sé raun­hæf eða ekki,“ segir Tinna í mynd­band­inu.

80 þúsund krónur á farþega

Ef ein­ungis þessir tveir liðir eru not­aðir segir Tinna Laufey að nei­kvæð ytri áhrif sem hljót­ast af hverjum komu­far­þega nemi að minnsta kosti 80 þús­und krónum. Þar sem þessi upp­hæð er langtum minni en sú sem ferða­menn greiddu við kom­una hér til lands­ins í sumar segir Tinna að opnun landamær­anna hafi falið í sér fórn fyrir lands­menn sem jafn­gildir verð­inu á flug­mið­anum til lands­ins og hluta gist­ing­ar­innar.

Virðistap ferðaþjónustunnar tekið með í reikninginn

Í mynd­band­inu áréttir Tinna að umrætt mat taki einnig til­lit til vöru og þjón­ustu sem teng­ist ferða­tak­mörk­unum með við­skipta­legum hætti, eins og t.d. útflutn­ing, sem og virði þess að geta farið til útlanda. Virð­is­tap ferða­þjón­ust­unnar ætti því að heyra þar undir. Þar sem útreikn­ingar hennar nái ein­ungis til ytri áhrifa þurfi hins vegar ekki að vega þá upp á móti sam­fé­lags­lega kostn­að­inum sem koma ferða­mann­anna veldur.

Að lokum bætir Tinna Laufey við að útreikn­ingar hennar snú­ast um að hámarka þjóð­ar­hag og byggi ekki á sið­ferð­is­legum hug­myndum um frelsi. „Ef fólki finnst að frelsi trompi þjóð­ar­hag hef ég lítið við það að segja,“ bætir hún við.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár