Ferðaskrifstofur fá áratug til þess að greiða lánin frá Ferðaábyrgðarsjóði til baka

Síðustu lánin sem ríkið veitti ferða­skrif­stofum til að end­ur­greiða neyt­endum vegna ferða sem felldar voru niður í upp­hafi heims­far­ald­urs­ins verða ekki að fullu greidd til baka fyrr en undir lok árs 2032, sam­kvæmt frum­varpi ráð­herra.

Lilja Alfreðsdóttir er ráðherra ferðamála.
Lilja Alfreðs­dóttir er ráð­herra ferða­mála. Mynd: Bára Huld Beck

Þær ferða­skrif­stofur sem alls fengu 3,2 millj­arða króna lán­aða frá sér­stökum Ferða­á­byrgð­ar­sjóði hins opin­bera, til þess að end­ur­greiða neyt­endum pakka­ferðir sem ekki voru farnar í upp­hafi kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins, munu fá allt að tíu ár til þess að end­ur­greiða lánin en ekki sex ár eins og áður hafði verið lagt upp með.

Frumvarp þessa efnis er nú á greiðri leið í gegnum þingið, en atvinnu­vega­nefnd er sam­stíga um að sam­þykkja skuli frum­varpið, sem lagt var fram af Lilju Alfreðs­dóttur, mennta- og við­skipta­ráð­herra í byrjun apríl, en ferða­mál heyra undir ráðu­neyti hennar.

Rúmlega fimmtíu lán veitt

Fyrsti gjald­dagi þeirra 54 lána sem Ferða­á­byrgð­ar­sjóður hefur veitt er 1. des­em­ber 2022, en á sein­asta ári var ákveðið að seinka þessum fyrsta gjald­daga um eitt ár sökum þess að rekstur ferða­skrif­stofa væri ekki orð­inn nægi­lega burð­ugur til þess að þær gætu staðið straum af afborg­unum þess­ara lána, sem verða fjórar á ári. [links]

Fyrstu afborgun lán­anna hefur raunar verið frestað tvisvar, en þegar lögin voru sett árið 2020 var lagt upp með að fyrsta afborgun yrði innt af hendi 1. mars 2021, en því síðar frestað til 1. des­em­ber sama ár.

Nú er svo lengt í þessum lánum um fjögur ár, með stöðu grein­ar­innar huga, en í grein­ar­gerð með frum­varpi ráð­herra segir að við­spyrna ferða­þjón­ust­unnar hafi „ekki orðið jafn hröð og von­ast var til“ og að fjár­hags­staða flestra ferða­skrif­stofa sé um þessar mundir „veru­lega slæm og ljóst að flestum lán­tak­endum mun reyn­ast erfitt að standa í skilum með end­ur­greiðslur af lánum sínum á sex árum frá lán­veit­ingu.“

„Í ljósi mik­il­vægis ferða­þjón­ust­unnar fyrir hag­kerfið leiðir heild­ar­mat á hags­munum til þess að rétt sé að veita heim­ild til að lengja lánin til allt að tíu ára og styrkja þannig rekstr­ar­stöðu ferða­skrif­stofa,“ segir sömu­leiðis í grein­ar­gerð með frum­varpi ráð­herra.

[adspot]

Í nefnd­ar­á­liti atvinnu­vega­nefndar segir að ljóst sé að verði ekki lengt í lán­unum verði greiðslu­byrði lán­tak­enda mjög mikil á fyrsta gjald­daga lán­anna. Fram kemur að við með­ferð máls­ins í nefnd­inni hafi verið rætt um að eitt af mark­miðum með stofn­setn­ingu Ferða­á­byrgð­ar­sjóðs hafi verið að aðstoða ferða­skrif­stofur í því erf­iða rekstar­um­hverfi sem leiddi af heims­far­aldr­inum. Nefndin telur því nauð­syn­legt að lengt verði í láns­tíma þeirra lána sem Ferða­á­byrgð­ar­sjóður veitti.

Kom í veg fyrir fjöldagjaldþrot ferðaskrifstofa

Stofnun Ferða­á­byrgð­ar­sjóðs átti sér nokkurn aðdrag­anda, en við upp­haf kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins í vetr­ar­lok 2020 kom upp bráða­vandi hjá ferða­skrif­stofum, bæði þeim sem gera út á ferðir ferða­manna hingað til lands og þeirra sem selja Íslend­ingum ferðir út í heim.

Ferða­tak­mark­anir leiddu til þess að nær öllum ferða­lögum var aflýst og því reynd­ist ómögu­legt að koma pakka­ferðum sem neyt­endur höfðu greitt fyrir í fram­kvæmd. Samkvæmt lögum eiga neyt­endur rétt á fullri end­ur­greiðslu innan 14 daga frá því að til­kynnt er um aflýs­ingu ferðar eða hún afpöntuð vegna óvið­ráð­an­legra aðstæðna.

Hjá fyrri ráð­herra ferða­mála, Þórdísi Kolbrúnu R. Gylfa­dóttur, voru til að byrja með uppi áform um að heim­ila ferða­­skrif­­stofum að fresta end­­ur­greiðslum pakka­­ferða sem féllu niður um allt að tólf mán­uði með því að gefa út inn­­­eign­­arnótur fyrir and­virði ferð­­ar­inn­­ar.

Þetta frum­varp var afar umdeilt og sögðu Neyt­enda­sam­tökin til dæmis að það fæli í sér að ferða­skrif­stofur fengju vaxta­laus lán hjá neyt­endum án þess að þeir hefðu nokkuð um það að segja.

Að end­ingu varð nið­ur­staðan sú að Þórdís Kolbrún ját­aði að frum­varp hennar nyti ekki stuðn­ings á þingi og haf­ist var handa við að teikna upp Ferða­á­byrgða­sjóð­inn, sem ríkið svo fjár­magn­aði til þess að leysa bráða­vanda ferða­skrif­stofa og forða fjölda­gjald­þrotum í grein­inni. Ferða­mála­stofa hefur umsjón með sjóðnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár