Ferðaskrifstofum veitt aukaár til að byrja að greiða Ferðaábyrgðarsjóði til baka

Ráðherra ferða­mála hefur tekið ákvörðun um að fresta fyrsta gjald­daga á lánum sem ríkið veitti ferða­skrif­stofum til að end­ur­greiða neyt­endum pakka­ferðir til 1. des­em­ber 2022. Staða ferða­skrif­stofa er sögð erfið, í til­kynn­ingu atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ráðherra ferðamála.
Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir ráð­herra ferða­mála. Mynd: Bára Huld Beck

Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttur ráð­herra ferða­mála hefur tekið ákvörðun um að fresta fyrsta gjald­daga hér­lendra ferða­skrif­stofa, vegna lána sem þær hafa fengið úr Ferða­á­bygð­ar­sjóði, um eitt ár.

Því munu ferða­skrif­stofur, sem fengu lán­aða alls 3,2 millj­arða frá rík­inu í fyrra til þess að end­ur­greiða ferða­mönnum vegna ferða sem ekki voru farnar eða afpant­aðar, ekki byrja að greiða af lán­unum fyrr en 1. des­em­ber árið 2022.[links]

Frá þessu er greint í til­kynn­ingu frá atvinnu- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­inu. Þar segir einnig að til skoð­unar sé hjá ráðu­neyt­inu að lengja láns­tíma lán­anna sem ferða­skrif­stof­urnar fengu frá ferða­á­byrgð­ar­sjóðnum.

Ferða­á­byrgða­sjóði var komið á fót síð­asta sumar til þess að veita ferða­skrif­stofum lán til þess að end­ur­greiða ferða­mönnum vegna ferða sem var aflýst eða þær afpant­aðar á tíma­bil­inu 12. mars til 31. júlí í fyrra, þegar fyrsta bylgja kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins setti ferða­lög á milli landa úr skorðum.

Gætu einungis greitt af lánum í undantekningartilfellum

Í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins segir að í sumar hafi verið fylgst náið með þróun og horfum í rekstri ferða­skrif­stofa og að þrátt fyrir aukn­ingu í sölu ferða í sumar og þrátt fyrir að sú aukn­ing myndi halda sér út árið, sem ekki sé öruggt, sé „tölu­vert í að umsvif og lausa­fjár­staða ferða­skrif­stofa verði þannig að þeim verði kleift að standa straum af umtals­verðum afborg­unum af lánum frá Ferða­á­byrgða­sjóði.“

Þar segir jafn­framt að aðstæður í ferða­þjón­ustu hafi „breyst hratt“ að und­an­förnu, meðal ann­ars vegna breyt­inga á reglum á landa­mærum fyrir Íslend­inga og þá sem hafa tengsl við landið, sem nú þurfa að fram­vísa nei­kvæðu PCR-prófi fyrir kom­una til lands­ins.

[adspot]

„Þessar breyt­ingar hafa dregið úr ferða­vilja Íslend­inga erlendis og dregið hefur úr bók­unum ferða­skrif­stofa. Í ljósi þeirrar óvissu í rekstri ferða­skrif­stofa er það því sam­dóma mat aðila að íslenskar ferða­skrif­stofur muni ekki geta greitt af lánum frá Ferða­á­byrgða­sjóði á gjald­daga 1. des­em­ber nk. nema í und­an­tekn­ing­ar­til­vikum. Því hefur ráð­herra ákveðið að fresta gjald­daga fyrstu afborg­ana lána úr sjóðnum enn um sinn, eða til 1. des­em­ber 2022,“ segir í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins.

Þar er haft eftir Þórdísi Kolbrúnu að það sé hennar mat að „hags­munum rík­is­sjóðs og íslenskrar ferða­þjón­ustu sé best borgið með því að gjald­daga fyrstu afborg­unar verði frestað“ og að ferða­skrif­stofum muni með þeim hætti „gef­ast aukið svig­rúm til að aðlaga rekstur sinn og bæta lausa­fjár­stöðu sína.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár