Allt að 4,5 milljarðar frá ríkinu í endurgreiðslu pakkaferða

Ráðgert er að allt að 4,5 millj­örðum króna verði veitt úr nýjum Ferða­á­byrgð­ar­sjóði til þess að end­ur­greiða neyt­endum pakka­ferðir sem ekki voru farnar vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Ferða­skrif­stofur hafa allt að 6 ár til að greiða rík­inu til baka.

Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, ráðherra ferðamála.
Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir, ráð­herra ferða­mála. Mynd: Bára Huld Beck

Ráðgert er að heim­ilt verði að veita allt að 4,5 millj­örðum króna úr nýjum Ferða­á­byrgð­ar­sjóði, sem verður í vörslu Ferða­mála­stofu, til þess að end­ur­greiða neyt­endum pakka­ferðir sem ekki voru farnar vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins. Ferða­skrif­stofur munu hafa allt að sex ár til þess að greiða sjóðnum til baka.

[links]Ekki er búið að leggja fram frum­varp um sjóð­inn, en fjallað er um vænt­an­lega stofnun hans í nefnd­ar­á­liti meiri­hluta fjár­laga­nefndar um frum­varp til fjár­auka­laga, sem birt var á vef Alþingis í dag.

Stofnun þessa nýja sjóðs er við­bragð við því að frum­varp sem Þórdís Kolbrún R. Gylfa­dóttir ráð­herra ferða­mála lagði fram og átti að heim­ila ferða­skrif­stofum að end­ur­greiða neyt­endum með inn­eign­arnótum til 12 mán­aða naut ekki meiri­hluta­stuðn­ings á Alþingi.

Samkvæmt því sem fram kemur í nefnd­ar­á­lit­inu mun frum­varpið ná til end­ur­greiðslu ferða sem átti að fara frá 12. mars til og með 30. júní en þurfti að aflýsa vegna heims­far­ald­urs­ins.

[adspot]

„Ef ferða­menn hafa ekki fengið end­ur­greiðslu frá skipu­leggj­endum eða smá­sölum geta þeir beint kröfu að Ferða­mála­stofu um að sjóð­ur­inn end­ur­greiði þeim þær greiðslur sem þeir eiga rétt á til end­ur­greiðslu sam­kvæmt ákvæðum lag­anna. Skipu­leggj­endur eða smá­salar sem hafa end­ur­greitt ferða­mönnum vegna pakka­ferða geta einnig beint kröfu að Ferða­mála­stofu um að sjóð­ur­inn end­ur­greiði þeim þær greiðslur,“ segir í nefnd­ar­á­lit­inu.

Þar kemur einnig fram að lagt sé upp með að ferða­skrif­stofur end­ur­greiði það sem sjóð­ur­inn leggur til á allt að sex árum og að vext­irnir á kröfu sjóðs­ins verði á mark­aðs­for­sendum.

Skilyrði fyrir end­ur­greiðslu úr sjóðnum verða nánar útfærð í frum­varp­inu sjálfu, þegar það lítur dags­ins ljós.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðalög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár