Til tannlæknis á Tene

Írsk stjórn­völd íhuga að hækka sekt­ar­greiðslur fyrir ónauð­syn­leg ferða­lög út úr land­inu, sem voru nýlega bönnuð. Landamæra­verðir veita því athygli að margir virð­ast á leið til tann­læknis í sól­ar­löndum.

Það hefur vakið athygli hjá írskum landamæravörðum að síðan ónauðsynleg ferðalög út úr landinu voru bönnuð eru jafnvel 30-40 prósent farþega í sumum sólarlandaferðum með bókaða tannlæknatíma.
Það hefur vakið athygli hjá írskum landamæra­vörðum að síðan ónauð­syn­leg ferða­lög út úr land­inu voru bönnuð eru jafn­vel 30-40 pró­sent far­þega í sumum sól­ar­landa­ferðum með bók­aða tann­lækna­tíma. Mynd: Pexels

Írsk stjórn­völd lok­uðu nýlega fyrir öll ónauð­syn­leg ferða­lög til og frá land­inu. Þessa dag­ana liggja sektir við því að fara til útlanda án þess að hafa í reynd nauð­syn til þess að fara. Sektin er í dag 500 evrur, tæpar 80 þús­und krónur, en stjórn­völd eru að hugsa um að fjór­falda sekt­ar­upp­hæð­ina upp í 2.000 evrur.

Þetta kemur fram í umfjöllun írska rík­is­mið­ils­ins RTÉ um hertar tak­mark­anir á ferða­lög, en gripið var til þess ráðs að banna ónauð­syn­leg ferða­lög frá Írlandi í jan­ú­ar­mán­uði.

Það var gert nokkru eftir að gríð­ar­lega harðar sótt­varn­ar­að­gerðir tóku gildi inn­an­lands í kjöl­far mik­illar útbreiðslu kór­ónu­veirunnar – eftir að bent var á að það skyti skökku við að meina fólki að fara í ónauð­syn­legar ferðir á milli svæða inn­an­lands á sama tíma og margir kusu að fara frá land­inu í sól­ar­landa­frí.

Samkvæmt írsku lög­regl­unni, Garda, er búið að sekta um 150 manns fyrir að fara frá land­inu án nægi­legrar ástæðu, en fólk er krafið um skýr­ingar á brott­för sinni af landamæra­vörðum.

Vinnuferð í fjarvinnu

Einn maður sagði landamæra­vörðum að hann væri á leið til Tenerife vegna nauð­syn­legrar vinnu­ferðar, en við nán­ari athugun kom í ljós að þessi ein­stak­lingur væri ein­fald­lega að vinna að heiman fyrir fyr­ir­tæki í Dyflinni þessa dag­ana.

Manninum var sagt að þetta virt­ist ekki vera nauð­syn­legt ferða­lag hjá honum – en hann fór engu að síður af stað, vit­andi að mögu­lega biði hans dágóð sekt við heim­komu.

Framvísa gögnum um læknistíma

Það má ferð­ast erlendis til þess að sækja sér lækn­is­þjón­ustu. Samkvæmt frétt RTÉ hafa þónokkrir Írar fram­vísað gögnum um að þeir séu að fara til læknis eða tann­læknis á Tenerife eða jafn­vel í Istanbúl í Tyrk­landi. 

Þá geta landamæra­verð­irnir lítið sagt, en þó hefur það vakið athygli þeirra að í sumum flug­vélum á leið til sól­rík­ari landa eru jafn­vel 30-40 pró­sent far­þeg­anna að fara rak­leiðis til tann­læknis. Eða svo segja þeir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár