Landamærin ekki lokuð og Icelandair því bótaskylt

Sam­göngu­stofa segir að þær sótt­varna­ráð­staf­anir sem fylgja ferða­lögum á milli landa í dag séu ekki til­efni til að losa Icelandair undan bóta­skyldu sam­kvæmt Evr­ópu­reglu­gerðum ef flugi er aflýst með skömmum fyr­ir­vara. Neyt­enda­sam­tökin fagna nið­ur­stöð­unni.

Icelandair hefur ekki mikið upp úr því að fljúga með nær tómar flugvélar yfir hafið og aflýsa því stundum flugi með skömmum fyrirvara. Samgöngustofa segir slíkt gera félagið bótaskylt.
Icelandair hefur ekki mikið upp úr því að fljúga með nær tómar flug­vélar yfir hafið og aflýsa því stundum flugi með skömmum fyr­ir­vara. Sam­göngu­stofa segir slíkt gera félagið bóta­skylt. Mynd: Icelandair

Sam­göngu­stofa hefur gert Icelandair að greiða tveimur flug­far­þegum sam­tals 800 evrur í skaða­bætur sökum þess að flugi þeirra til Berlínar í sept­em­ber var aflýst með tveggja daga fyr­ir­vara. Fólkið var flutt yfir í annað flug frá land­inu og kom til Berlínar fimm klukku­stundum síðar en áætlað hafði verið, með tengiflugi sem Icelandair útveg­aði.

Icelandair hafn­aði bóta­kröfu fólks­ins og vís­aði til þess að strangar tak­mark­anir væru í gildi á för yfir landa­mæri og einnig til­mæla frá fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins. Flug­fé­lagið sagði þau fela í sér að aðgangs­tak­mark­anir, sem í reynd yrðu til þess að hindra för far­þega yfir landa­mæri með þeim afleið­ingum að útlit væri fyrir að engir eða nær engir far­þegar yrðu um borð í flug­væri, bæri að fella undir til­felli óvið­ráð­an­legra aðstæðna. Því þyrfti flug­fé­lagið ekki að greiða skaða­bætur í sam­ræmi við reglu­gerðir Evr­ópu­sam­bands­ins.

Eins og kunn­ugt er og oft hefur verið fjallað um í fréttum á þessu ári hefur Icelandair mætt þeim stór­und­ar­legu aðstæðum sem eru nú í flug­geir­anum með því að hafa áætlun sína sveigj­an­lega og aflýsa stundum flug­ferðum með skömmum fyr­ir­vara, ef ein­sýnt er að ekki verði nægi­leg eft­ir­spurn eftir miðum til að flug­legg­ur­inn standi undir sér. Þá er þeim fáu far­þegum sem eru á flakki komið á áfanga­stað sinn eftir öðrum leiðum.

Sam­göngu­stofa telur þá túlkun Icelandair, að um óvið­ráð­an­legar aðstæður hafi verið að ræða, ekki eiga við í þessu til­viki. Landa­mæri hafi ekki verið lokuð, en það sé ein­göngu í þeim til­fellum sem bóta­skylda falli niður sam­kvæmt áður­nefndum til­mælum frá fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins, sem Icelandair bar fyrir sig.

Fáar svipaðar kröfur borist Icelandair

Kjarninn sendi fyr­ir­spurn til Icelandair um það hversu margir far­þegar gætu átt bóta­rétt á flug­fé­lagið í sam­ræmi við þessa nið­ur­stöðu og fékk það svar að „fáar bóta­kröfur vegna svip­aðra til­vika“ hefðu borist á und­an­förnum mán­uðum.

Flug­fé­lagið getur kært ákvörðun Sam­göngu­stofu í þessu máli til sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráðu­neyt­is­ins og hefur ekki lokið skoðun sinni á mál­inu, sam­kvæmt svar­inu.

Neytendasamtökin fagna niðurstöðunni

Neyt­enda­sam­tökin segj­ast á vef sínum fagna nið­ur­stöðu Sam­göngu­stofu og hvetja neyt­endur sem er í þess­ari stöðu til þess að sækja þær bætur sem það eigi rétt á og full­yrða jafn­framt að Icelandair hafi „þverskall­ast við“ að greiða bætur í sam­bæri­legum málum.

Innan við fjórðungur sæki rétt sinn til flugbóta

Ómar R. Valdi­mars­son lög­maður stendur á bak við þjón­ust­una Flug­bætur.is, sem aðstoðar fólk við að sækja bætur frá flug­fé­lögum gegn þóknun. Hann seg­ist í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Kjarnans að áætla að minna en 25 pró­sent far­þega sem í reynd eigi rétt á skaða­bótum vegna aflýs­inga eða seink­ana sæki þann rétt sinn og svo sé mjög mis­jafnt hvernig inn­heimtan tak­ist hjá fólki.

Ómar segir enn­fremur að mögu­lega kunni að vera fjár­hags­legur ávinn­ingur af því fyrir flug­fé­lög að hafna ein­fald­lega bóta­skyldu en gefa sig svo gagn­vart þeim fáu sem nenni að elt­ast við bæt­urnar.

„Alls eru ríf­lega 200 ein­stak­lingar sem eru að sækja bætur hjá okkur gegn hinum ýmsu flug­fé­lögum, sem eru með mál sín ýmist fyrir eða á leið­inni fyrir dóm. Oftast eru nokkrir far­þegar saman í einu máli. Norwegian, Vueling og Neos hafa verið atkvæða­mikil í þeim málum sem rata fyrir dóm­stóla, en alla jafna hafa sam­skiptin við Icelandair gengið vel,“ segir í svari Ómars. 

Hann telur mjög ólík­legt að þessi til­tekna ákvörðun Sam­göngu­stofu verði Icelandair til ein­hverra sér­stakra trafala, í þeim skiln­ingi að hol­skefla svip­aðra bótakrafna muni nú skella á flug­fé­lag­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðalög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár