Það er flókið að reka flugvelli í heimsfaraldri

Tap Isavia eftir skatta nam 13,2 millj­örðum árið 2020. Tekju­sam­drátt­ur­inn á þessu ári far­ald­urs nam 62 pró­sentum og for­stjór­inn segir far­ald­ur­inn hrein­lega hafa tekið völdin af stjórn­endum opin­bera hluta­fé­lags­ins.

Keflavíkurflugvöllur. Farþegum þar fækkaði um 81 prósent í fyrra miðað við árið 2019.
Kefla­vík­ur­flug­völlur. Farþegum þar fækk­aði um 81 pró­sent í fyrra miðað við árið 2019. Mynd: Isavia

Afkoma sam­stæðu Isavia árið 2020 var nei­kvæð um 13,2 millj­arða króna – um 14,4 millj­örðum lak­ari en í árið 2019. Tekj­urnar dróg­ust saman um 62 pró­sent frá fyrra ári og námu um 14,7 millj­örðum.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Isavia, en árs­reikn­ingur opin­bera hluta­fé­lags­ins var sam­þykktur á aðal­fundi í dag.

Tekju­sam­drátt­inn má að sjálf­sögðu rekja til þess að umferð um Kefla­vík­ur­flug­völl hefur hrunið vegna heims­far­ald­urs­ins, en far­þegum sem fóru um Kefla­vík­ur­flug­völl fækk­aði um 81 pró­sent frá árinu 2019.

Faraldurinn tók völdin

„Árið 2020 var afar krefj­andi fyrir rekstur flug­valla og flug­leið­sögu í öllum heim­inum. Heims­far­ald­ur­inn af völdum Covid-19 tók í raun völdin í öllum okkar dag­legu athöfnum og fór Isavia síður en svo var­hluta af því. Á síð­asta ári fór mikil orka í að tryggja fjár­mögnun og aðgang okkar að lausu fé ásamt því að standa vörð um sterka inn­viði félags­ins,“ er haft eftir Svein­birni Ind­riða­syni, for­stjóra Isavia, í frétta­til­kynn­ingu.

Hann segir að búið sé að snúa vörn í sókn. Vel hafi tek­ist að tryggja aðgang að lausu fé, en hand­bært fé Isavia nam um 9,4 millj­örðum króna í árs­lok 2020. Svein­björn segir að þrátt fyrir að taka hafi þurft erf­iðar ákvarð­anir og fækka starfs­fólki á síð­asta ári hafi félagið engu að síður getað „staðið vörð um stærri hluta starfa.

Ríkið tók ákvörðun um það í jan­úar að spýta 15 millj­örðum króna inn í rekstur Isavia. Svein­björn segir það hafa verið mik­il­væga ákvörðun.[links]

„Fjár­mála­ráð­herra, fyrir hönd eig­anda okkar, tók ákvörðun í byrjun þessa árs að auka hlutafé í félag­inu sem gerði okkur kleift að fara með upp­bygg­inga­á­form Kefla­vík­ur­flug­vallar af stað á ný. Sú ákvörðun var afar mik­il­væg, bæði fyrir sam­keppn­is­hæfni flug­vall­ar­ins til fram­tíðar og mögu­leika okkar að kom­ast út úr Covid-19, miðað við mis­mun­andi sviðs­myndir en ekki síst fyrir erfitt atvinnu­á­stand í nær­sveit­ar­fé­lögum Kefla­vík­ur­flug­vallar,“ er haft eftir Svein­birni.

Áfram má búast við því að rask verði á ferðum til og frá Íslandi vegna far­ald­urs­ins, enda bólu­setn­ing hér á landi skammt á veg komin. Svein­björn segir það engu að síður „lyk­il­at­riði að missa ekki sjónar á því mark­miði að opna Ísland þegar tæki­færið gefst“ og bætir við að bólu­setn­ingar á tveimur mik­il­væg­ustu mörk­uð­unum, Bret­landi og Banda­ríkj­unum, gangi vel og stjórn­völd á Íslandi hafi boðað „afar mik­il­væg skref í átt að opnun lands­ins.“

[adspot]

„Auðvitað þurfum við að taka mið af stöðu far­ald­urs­ins hverju sinni en við finnum fyrir miklum áhuga hjá flug­fé­lögum sem við þjónum á þeim skrefum sem hafa verið rædd vegna umferðar til Íslands og munum að sjálf­sögðu gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja að end­ur­heimtin verði sem far­sælust,” segir Svein­björn.

Á aðal­fundi Isavia í dag var kosin stjórn og vara­stjórn félags­ins. Stjórn­irnar eru óbreyttar. Í aðal­stjórn sitja Orri Hauksson, stjórn­ar­for­maður, Eva Pandora Bald­urs­dóttir, Matthías Páll Imsland, Nanna Margrét Gunn­laugs­dóttir og Valdimar Hall­dórs­son.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

ferðalög

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár