Ríkið spýtir fimmtán milljörðum inn í Isavia

Hlutafé í opin­bera hluta­fé­lag­inu Isavia hefur verið aukið um 15 millj­arða króna. Þetta er gert til að mæta tapi vegna áhrifa COVID-far­ald­urs­ins og svo hægt verði að ráð­ast í fram­kvæmdir á Kefla­vík­ur­flug­velli, sem eiga að skapa störf strax á þessu ári.

Sveinbjörn Indriðason forstjóri Isavia segir hlutafjáraukninguna gera Isavia kleift að ráðast í framkvæmdir til að auka samkeppnishæfni Keflavíkurflugvallar.
Svein­björn Ind­riða­son for­stjóri Isavia segir hluta­fjár­aukn­ing­una gera Isavia kleift að ráð­ast í fram­kvæmdir til að auka sam­keppn­is­hæfni Kefla­vík­ur­flug­vallar. Mynd: Hallmar.fr@gmail.cam

Hlutafé í Isavia hefur verið aukið um 15 millj­arða króna, en þetta var sam­þykkt af hlut­hafa­fundi 12. jan­úar síð­ast­lið­inn. Þessir fjár­munir koma úr rík­is­sjóði, en íslenska ríkið er eini eig­andi Isavia.

Isavia greinir frá hluta­fjár­aukn­ing­unni í til­kynn­ingu í dag. Þar segir að henni sé ætla að mæta rekstr­ar­tapi vegna COVID-19 og gera félag­inu kleift að hefja vinnu við upp­bygg­ingu á Kefla­vík­ur­flug­velli á ný.[links]

Isavia fékk fjög­urra millj­arða króna inn­spýt­ingu í apríl á síð­asta ári, til þess að þurfa ekki að fresta fram­kvæmdum sem fyr­ir­hug­aðar voru á Kefla­vík­ur­flug­velli.

Nú segir í til­kynn­ingu Isavia að ljóst sé að ákvörð­unin um að veita 15 millj­örðum til félags­ins skapi fjölda nýrra starfa við upp­bygg­ingu á Kefla­vík­ur­flug­velli, þar með talið strax á þessu ári.

Í fjár­lögum árs­ins 2021 er heim­ild til að auka við hlutafé í opin­berum félögum í því skyni að auka fjár­fest­ing­ar­getu eða bregð­ast við meiri háttar rekstr­ar­vanda vegna heims­far­ald­urs kór­ónu­veirunnar.

„Það er gríð­ar­lega mik­il­vægt að við verðum reiðu­búin þegar flug­um­ferð verður orðin álíka og fyrir heims­far­aldur. Fram að því getum við ráð­ist í fram­kvæmdir sem miða að því að gera Kefla­vík­ur­flug­völl sam­keppn­is­hæf­ari en áður. Það skilar sér til þeirra fjöl­mörgu fyr­ir­tækja sem starfa á flug­vell­inum, og ferða­þjón­ust­unnar í heild,“ er haft eftir Svein­birni Ind­riða­syni for­stjóra Isavia í til­kynn­ingu.

[adspot]

„Það er ljóst að við hjá Isavia getum lítið gert til að hafa áhrif á það hvenær ferða­tak­mörk­unum í heim­inum verður aflétt en við getum haft mikil áhrif á það hvernig okkur reiðir af á kom­andi árum. Það má ekki gleyma því að hluta­fjár­aukn­ingin veitir okkur líka svig­rúm til að mæta mis­mun­andi sviðs­myndum út úr COVID-19 og á sama tíma auð­velda flug­fé­lögum að hefja flug á ný þegar þar að kemur, m.a. með mark­aðs­stuðn­ingi. Okkur er falin mikil ábyrgð að sinna einum af lyk­il­innviðum lands­ins og við ætlum okkur að standa undir þeirri ábyrgð,“ er einnig haft eftir for­stjór­anum.

Verklok 2025

Fram kemur í til­kynn­ingu Isavia að fyr­ir­hug­uðum fram­kvæmdum á Kefla­vík­ur­flug­velli sé ætlað að „styrkja sam­keppn­is­hæfni flug­vall­ar­ins og tengi­stöðv­ar­innar með því að bæta þjón­ustu við við­skipta­vini, bæta aðstöðu flug­véla og far­þega, stytta afgreiðslu­tíma og auka þannig afköst og skil­virkni hans.“

Gert er ráð fyrir að þeim fram­kvæmdum sem fyr­ir­hugað er að ráð­ast í að svo stöddu verði að fullu lokið árið 2025.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár