Isavia tapaði 7,6 milljörðum á hálfu ári

Tap opin­bera hluta­fé­lags­ins Isavia nam 7,6 millj­örðum á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Svein­björn Ind­riða­son for­stjóri segir að jafn­vel sé útlit fyrir að flug­um­ferð fari ekki af stað fyrr en í lok fyrsta árs­fjórð­ungs á næsta ári.

Á öðrum ársfjórðungi varð 97 prósenta tekjusamdráttur í rekstri móðurfélagsins sem sinnir rekstri Keflavíkurflugvallar.
Á öðrum árs­fjórð­ungi varð 97 pró­senta tekju­sam­dráttur í rekstri móð­ur­fé­lags­ins sem sinnir rekstri Kefla­vík­ur­flug­vallar. Mynd: Isavia

Opinbera hluta­fé­lagið Isavia fann veru­lega fyrir áhrifum kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins á fyrri helm­ingi árs­ins. Heild­ar­af­koma fyrstu sex mán­aða árs­ins var nei­kvæð um 7,6 millj­arða króna, sam­an­borið við nei­kvæða afkomu um 2,5 millj­arða króna fyrir sama tíma­bil í fyrra.

Inn í afkomu á fyrri árs­hluta var nið­ur­færsla upp á um 1,9 millj­arða króna vegna falls WOW air. Þar var um að ræða fjár­muni sem ekki feng­ust frá erlendum flug­véla­leigu­sala hins fallna flug­fé­lags eins og Isavia von­að­ist eftir.

Rekstr­ar­af­koma sam­stæð­unnar fyrir fjár­magnsliði og skatta (EBIT) á fyrri helm­ingi árs­ins var nei­kvæð um 5,3 millj­arða króna sam­an­borið við nei­kvæða rekstr­ar­af­komu upp á 942 millj­ónir á fyrri árs­helm­ingi 2019.

Samkvæmt til­kynn­ingu frá Isavia nam sam­dráttur í tekjum frá sama tíma­bili í fyrra um 9,6 millj­örðum króna eða um 53 pró­sentum. Ef horft er ein­göngu til ann­ars árs­fjórð­ungs dróg­ust tekjur saman um 77 pró­sent fyrir sam­stæðu Isavia í heild, en um heil 97 pró­sent ef horft er til rekst­urs móð­ur­fé­lags­ins sem sinnir rekstri Kefla­vík­ur­flug­vallar.

Rekstr­ar­kostn­aður félags­ins hefur minnkað um 12,4 pró­sent á milli ára, se mfé­lagið segir að megi að mestu rekja til aðgerða sem gripið var til eftir að WOW air féll og einnig vegna áhrifa af kyrr­setn­ingu Boeing 737-MAX véla Icelandair.

Samkvæmt árs­hluta­reikn­ingi sam­stæð­unnar nam eigið fé Isavia rúmum 32,8 millj­örðum króna 30. júní og dróst saman um á fjórða millj­arð frá ára­mótum. Íslenska ríkið, eig­andi Isavia, steig inn með tæpa fjóra millj­arða í nýtt hlutafé á tíma­bil­inu.[links]

Skuldir Isavia námu í heild 53,3 millj­örðum króna í lok júní, en voru tæpir 44,2 millj­arðar í upp­hafi árs.

Flugumferð fari jafnvel ekki af stað fyrr en í lok vetrar

„Áhrif kór­ónu­veirunnar á rekstur flug­valla og flug­leið­sögu­þjón­ustu hafa verið veru­leg og ber afkoman hjá sam­stæðu Isavia þess merki,“ er haft eftir Svein­birni Ind­riða­syni for­stjóri Isavia í til­kynn­ingu.

„Við höfum gripið til umfangs­mik­illa aðgerða til að mæta þessum áhrifum og höfum m.a. því miður neyðst til þess að segja upp fjölda starfs­manna hjá móð­ur­fé­lag­inu og í Frí­höfn­inni ásamt því að skerða starfs­hlut­föll starfs­manna hjá sam­stæð­unni. Við búum okkur undir að flug­um­ferð fari jafn­vel ekki af stað á ný fyrr en í lok fyrsta árs­fjórð­ungs næsta árs. Þannig lítur þetta út í dag.

Afkomu­spá okkar gerir nú ráð fyrir að heild­ar­af­koma sam­stæðu Isavia verði nei­kvæð um 13-14 millj­arða króna á árinu 2020 og að áhrif kór­ónu­veirunnar geti því numið um 15-16 millj­örðum króna á heild­ar­af­kom­una. Aftur á móti er sjóð­staða félags­ins sterk og við ráðum við að vera tekju­laus á Kefla­vík­ur­flug­velli fram á næsta vor án þess að sækja við­bótar fjár­mögnun. Við gerum þó ráð fyrir í okkar áætl­unum að sækja nýtt fjár­magn inn í félagið til að geta við­haldið okkar umsvifum til næstu ára,“ segir for­stjór­inn einnig, í til­kynn­ingu félags­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár