Fjórir milljarðar úr ríkissjóði í Isavia

Fjármála- og efna­hags­ráð­herra hefur ákveðið að auka við hlutafé Isavia ohf. um 4 millj­arða króna með því skil­yrði að félagið ráð­ist í inn­viða­verk­efni á Kefla­vík­ur­flug­velli strax á þessu ári.

Keflavíkurflugvöllur
Kefla­vík­ur­flug­völlur Mynd: Isavia

Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefur ákveðið að auka við hlutafé Isavia ohf. um fjóra millj­arða króna með því skil­yrði að félagið ráð­ist í inn­viða­verk­efni á Kefla­vík­ur­flug­velli strax á þessu ári. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í dag en málið var rætt á rík­is­stjórn­ar­fundi í morgun.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni er ann­ars vegar um að ræða verk­efni sem fyr­ir­huguð voru á yfir­stand­andi ári en hefði þurft að fresta vegna þess tekju­falls sem félagið hefur orðið fyrir og hins vegar flýt­ingu á öðrum mann­afla­frekum fram­kvæmdum sem fyr­ir­hug­aðar voru á árunum eftir 2023.

Áætlaður fjöldi nýrra starfa sem verður til við þessar fram­kvæmdir nemur um 50 til 125 störfum fyrir hvern mánuð fram á mitt ár 2021, sam­kvæmt ráðu­neyt­inu. Þá muni verða til fjöldi afleiddra verk­efna á Suð­ur­nesj­unum sem tengj­ast umfangs­miklum fram­kvæmdum á Kefla­vík­ur­flug­velli.

Í til­kynn­ing­unni segir að ákvörð­unin sé í sam­ræmi við aðgerðir stjórn­valda við að auka við fjár­fest­ingar til að vinna gegn sam­drætti í hag­kerf­inu með arð­bærum fjár­fest­ingum sem auka eft­ir­spurn eftir vinnu­afli.

Svartasta spá um atvinnuleysi raungerist

Bjarni segir að síð­ustu daga „höfum við séð okkar svört­ustu spá um atvinnu­leysi raun­ger­ast sem kallar á hraða en jafn­framt upp­lýsta ákvarð­ana­töku.“ Isavia hafi síð­ustu árin unnið mikla und­ir­bún­ings­vinnu hvað varðar fram­tíð­ar­upp­bygg­ingu á Kefla­vík­ur­flug­velli sem muni styðja við milli­landa­flug til og frá Íslandi til fram­tíðar. Það sé skyn­sam­legt að halda áfram fram­kvæmdum á flug­vell­inum til að standa vörð um sam­keppn­is­hæfni Íslands þegar kemur að ferða­mennsku. „Þess vegna höfum við tekið ákvörðun um að leggja félag­inu til aukið hlutafé til að það fái svig­rúm til að ráð­ast í verk­efni sem hefði að öðrum kosti verið frestað í ljósi aðstæðna,“ segir ráð­herr­ann.

Svein­björn Ind­riða­son, for­stjóri Isavia, segir í til­kynn­ing­unni að ákvörðun fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins um að styðja við félagið geri þeim kleift að fara í verk­efni sem þau hefðu ann­ars ekki haft svig­rúm til á þess­ari stundu.

„Hún býr ekki ein­göngu til ný störf í fram­kvæmd­unum sjálfum heldur getum við vegna hennar staðið vörð um fjölda starfa innan Isavia. Inn­spýt­ingin mun einnig hafa jákvæð áhrif á Suð­ur­nesj­unum því margir sem þar búa starfa hjá okkur auk þess að til verður fjöldi afleiddra verk­efna á svæð­inu. Þetta er afar mik­il­vægt fyrir Isavia því það mun hjálpa okkur við að koma sterk­ari út úr þessum erf­iðu tímum og gera flug­völl­inn enn sam­keppn­is­hæf­ari til fram­tíðar,“ segir Svein­björn.

Þá kemur fram hjá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu að af þessum 4 millj­örðum króna fari um helm­ingur til verk­efna sem tengj­ast hönnun og það sem eftir stendur verði nýtt í fram­kvæmdir. Miðað sé við að við­bót­ar­fjár­mögn­unin muni nýt­ast breiðum hópi fyr­ir­tækja.

Þá muni þessi aðgerð opna fyrir mögu­leika á frek­ari fram­kvæmdum á Kefla­vík­ur­flug­velli, fyrr en ella, upp á ríf­lega þrjá millj­arða króna. Heild­ar­um­fang fjár­fest­inga sem tengj­ast þess­ari hluta­fjár­aukn­ingu geti því numið ríf­lega 7 millj­örðum króna yfir tveggja ára tíma­bil.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár