Búið að taka út 32 milljarða króna af séreignarsparnaði í kórónuveirufaraldrinum

Upp­haf­legar áætl­anir stjórn­valda reikn­uðu með að úttektir á sér­eign­ar­sparn­aði í kór­ónu­veiru­far­aldr­inum myndu skila rík­is­sjóði um 3,5 millj­arða króna í tekjur. Raun­veru­leik­inn er sá að tekjur hans vegna þessa verða um 11,5 millj­arðar króna.

Fyrsti efnahagspakki stjórnvalda var kynntur til leiks í mars 2020.
Fyrsti efna­hag­s­pakki stjórn­valda var kynntur til leiks í mars 2020. Mynd: Bára Huld Beck

Lands­menn hafa alls tekið út um 32 millj­arða króna af sér­eign­ar­sparn­aði sínum síðan slíkar úttektir voru kynntar til leiks sem hluti af fyrsta aðgerð­ar­pakka stjórn­valda til að takast á við kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn. Úttekt­irnar áttu að hjálpa fólki til að takast á við skamm­tíma­fjár­hags­vanda.

Aðgerðin, sem er tíma­bundin og stendur til boða fram í mars á næsta ári, var þó líka tekju­öfl­un­ar­leið fyrir rík­is­sjóð á erf­iðum tímum, enda þurftu allir sem nýttu sér úrræðið að greiða skatt af sparn­að­inum þegar hann var greiddur út.

Þegar aðgerðin var kynnt til leiks kom fram að rík­is­stjórnin reikn­aði með að teknir yrðu út tíu millj­arðar króna af sér­eign­ar­sparn­að­inum, en upp­haf­lega hug­myndin í kringum hann var sú að slíkur sparn­aður myndi auka ráð­stöf­un­arfé fólks þegar það fer á eft­ir­laun. Það hefði skilað rík­is­sjóði um 3,5 millj­örðum króna í nýjar tekjur.

Nú liggur fyrir að eft­ir­spurnin eftir því að nýta úttekt á sér­eign­ar­sparn­aði var langt umfram vænt­ingar stjórn­valda, er þegar komin í 32 millj­arða króna og mun sam­kvæmt áætlun enda í að minnsta kosti 32,7 millj­örðum króna. Því munu úttektir vera vel rúm­lega þrisvar sinnum það sem upp­haf­lega var áætlað og því má gera ráð fyrir því að tekjur rík­is­sjóðs vegna skatt­greiðslna af nýt­ingu sér­eign­ar­sparn­aðar sem hluta af aðgerða­pakka til að takast á við efna­hags­legar afleið­ingar kór­ónu­veiru­far­ald­urs verði um 11,5 millj­arðar króna.

Fjórðungur launafólks átti í erfiðleikum með að ná endum saman

Ekki hefur verið birt neitt nið­ur­brot á þeim hópi sem hefur nýtt sér þetta úrræði en ætla má að þar sé, að minnsta kosti að hluta, um að ræða fólk sem hefur átt í greiðslu­erf­ið­leikum vegna efna­hags­legra áhrifa COVID-19. Þeir sem fóru úr vel laun­uðum störfum á atvinnu­leys­is­bætur eru lík­legri til að til­heyra þessum hópi en aðrir, þar sem tekju­hærri hafa almennt verið lík­legri til að spara sér­eign en tekju­lægri.

[adspot]Sú ályktun fær stoð í fjöl­mörgum sam­tölum sem Kjarninn hefur átt við fólk sem hefur misst vinnu eða tekjur síðan að far­ald­ur­inn hófst og í könnun sem Varða, rann­sókn­ar­stofnun vinnu­mark­að­ar­ins, gerði og var lögð var fyrir félaga í aðild­ar­fé­lögum Alþýðu­sam­bands Íslands (ASÍ) og BSRB í nóv­em­ber og des­em­ber 2020 þar sem staða launa­fólks var könn­uð. Í nið­ur­stöðum hennar kom fram að um fjórð­ungur launa­fólks átti erfitt með að láta enda ná saman og fimmt­ungur þess gat ekki mætt óvæntum útgjöld­um. Um helm­ingur atvinnu­lausra átti erfitt með að láta enda ná saman og um 40 pró­sent þeirra gat ekki mætt óvæntum útgjöldum.

Þar er um að ræða þá hópa hér­lendis sem verða fyrir mestum nei­kvæðum efna­hags­legum áhrifum af yfir­stand­andi heims­far­aldri.

Ekki greiddur skattur af annars konar nýtingu

Á meðan að þeir sem hafa orðið fyrir fjár­hags­legum búsifjum vegna kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins þurfa að greiða skatt af nýt­ingu heim­ildar til að taka út sér­eign­ar­sparnað á þurfa þeir sem nýta sama sparnað til að greiða niður hús­næð­is­lán ekki að greiða neinn skatt. Tíma­bundin heim­ild til að gera slíkt hefur verið í gildi í lögum frá sumr­inu 2014 og síðan verið fram­lengd þrí­vegis. Hún er nú í gildi til loka júní­mán­aðar 2023.

[links]Kjarninn greindi frá því um miðjan mars síð­ast­lið­inn að frá 2014 og fram til loka jan­úar 2021 hefðu alls 62.952 ein­stak­lingar, um 17 pró­sent allra lands­manna og um 30 pró­sent allra sem eru á vinnu­mark­aði, nýtt sér hið skatt­frjálsa úrræði. Þar er um að ræða bæði þá sem hafa nýtt sér almenna úrræðið og úrræðið „Fyrsta fast­eign“, sem kynnt var til sög­unnar sum­arið 2016.

Samkvæmt tölum sem fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið tók saman fyrir Kjarnann nam umfang nýt­ingar Íslend­inga á úrræð­unum tveimur á tíma­bil­inu alls 92 millj­örðum króna. Í þeim tölum kom einnig fram að áætluð lækkun tekju­skatts og útsvars frá því að úrræðin buð­ust fyrst og fram til síð­ustu ára­móta sé 21,1 millj­arður króna.

Því hefur þessi hópur fengið 21,1 millj­arða króna í með­gjöf úr rík­is­sjóði sem öðrum hefur ekki boð­ist á umræddu tíma­bili. Um er að ræða tekju­tap sem ríki og sveit­ar­fé­lög þurfa ekki að takast á við nú, þar sem skattur af sér­eign­ar­sparn­aði er vana­lega borg­aður þegar fólk fer á eft­ir­laun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár